Hringbraut bendlar föður Sigmundar við fjármögnun Vefpressunnar í annað sinn

Gunn­laugur M. Sig­munds­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra, hafn­aði því í sam­tali við Stundina í sumar að hann hefði lagt fjár­muni til rekstrar fjöl­miðla­veldis Björns Inga Hrafns­sonar. Fjöl­mið­ill­inn Hring­braut heldur því nú fram öðru sinni, en í fyrra skiptið var nafn­laus pist­ill fjar­lægður.

Hringbraut bendlar föður Sigmundar við fjármögnun Vefpressunnar í annað sinn

Fjöl­mið­ill­inn Hring­braut hefur tvisvar sinnum í vetur haldið því fram, í pistlum sem skrif­aðir eru undir nafn­leynd, að Gunn­laugur M. Sig­munds­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra, hafi lagt fjár­muni til rekstrar fjöl­miðla­veldis Björns Inga Hrafns­sonar.

Fyrri pistill­inn, sem birt­ist undir dul­nefn­inu Náttfari í byrjun nóv­em­ber, var fjar­lægður. Að sögn Sig­mundar Ernis Rún­ars­sonar, rit­stjóra Hring­brautar, var þetta gert vegna þess að heim­ild­irnar fyrir efni pistils­ins voru ekki taldar nægi­lega tryggar.

Á aðfanga­dag birti Hring­braut aðra grein, nú undir dul­nefn­inu Ólafur Jón Sívert­sen, þar sem líkum er leitt að því að Gunn­laugur og aðilar tengdir honum hafi lagt fjár­muni til rekstrar fjöl­miðla­veld­is­ins.

Stundin hafði sam­band við Gunnlaug síð­asta sumar, áður en Hring­braut fjall­aði um málið, og spurði hvort rétt væri að hann hefði lánað fyr­ir­tæki Björns Inga 60 millj­ónir króna árið 2013. Gunn­laugur hafn­aði því og sagði að sér hefði verið kennt fyrir löngu að óskyn­sam­legt væri að fjár­festa í fjöl­miðlum. 

Í fyrri pistl­inum sem var fjar­lægður af vef Hring­brautar er rakið hve rekstr­ar­kostn­aður DV og dv.is er mik­ill meðan tekju­streymið láti á sér standa. „Heim­ild­ar­maður Náttfara sem hefur mikla reynslu af fjöl­miðla­rekstri heldur því fram að það þurfi að borga með rekstri DV 10 millj­ónir króna á mán­uði til að halda skip­inu á floti,“ segir í pistl­inum og er full­yrt að skulda­hali fjöl­miðla­veldis Björns Inga hafi numið um 80 millj­ónum króna árið 2013 og inn­spýt­ingar verið þörf.

Frekari innspýtingu spáð

Í fram­hald­inu skrifar höf­undur pistils­ins: 

„Heim­ild­ar­maður Náttfara telur sig hafa öruggar heim­ildir fyrir því hvaðan umræddir fjár­munir hafa komið. Hann hefur ekki getað sýnt skrif­legar sann­anir en er viss í sinni sök. Hann telur full­víst að Gunn­laugur M. Sig­munds­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra, hafi lagt þessa fjár­muni til rekstr­ar­ins. Gunn­laugur var á sínum tíma eig­andi Kögunar og seldi fyr­ir­tækið á réttum tíma með gíf­ur­legum hagn­aði. Gunn­laugur er millj­arða­mær­ingur. Honum hefur runnið til rifja að sjá hve illa flokkur sonar hans hefur komið út úr skoð­ana­könn­unum og hefur viljað kenna fjöl­miðlum um það. Einkum DV á meðan Reynir Trausta­son stýrði þar á bæ. Fram­sókn­ar­menn mátu það svo að það væri líf­nauð­syn­legt fyrir flokk­inn að aftengja DV og tryggja að mið­ill­inn væri mein­laus gagn­vart Fram­sókn­ar­flokknum og rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs. Þetta hefur gengið eftir. DV lætur Framsókn og rík­is­stjórn­ina alveg í friði, reynir frekar að hjálpa til ef eitt­hvað er með við­tölum við ráð­herra og þing­menn flokks­ins.“

Þá eru leiddar að því líkur að fram að næstu kosn­ingum muni fjöl­skylda Sig­mundar Davíðs leggja til mörg hund­ruð millj­ónir króna til að freista þess að halda honum við völd. „Fjöl­skyldan hefur fjár­hags­legt afl til þess. Það á svo eftir að koma á dag­inn hvort unnt er að kaupa völd og halda völdum á Íslandi með slíkum hætti.“

Umdeild fréttaskrif

Í umræðum á Facebook upp­lýsti Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri Hring­brautar, um ástæður þess að pistill­inn var fjar­lægður. „Ég tók þetta út þar eð ég taldi ekki nægi­lega tryggar heim­ildir fyrir efni pistils­ins. Við hljótum öll að vilja byggja á þeim traustum og hald­góðum. Engar hót­anir hér, aðeins við­leitni til að vanda betur til verka,“ skrif­aði hann og vís­aði því á bug að nokkur maður hafi farið sér­stak­lega fram á að pistill­inn yrði tek­inn út.

Í seinni pistl­inum, sem birt­ist á aðfanga­dag, seg­ist huldu­mað­ur­inn Ólafur Jón Sívert­sen hafa heim­ildir fyrir því að fjár­munir til rekstrar „allra þess­ara flokksmiðla Fram­sóknar komi frá nán­ustu ætt­ingjum og vinum for­manns flokks­ins“ og bendir á að faðir Sig­mundar er sterk­efn­aður. Skömmu eftir að pistill­inn fór í loftið birt­ist frétt á vef Hring­brautar upp úr skrifum huldu­manns­ins.

Fjöl­margir gagn­rýndu þessi vinnu­brögð og skrif­aði Björn Þor­láks­son, blaða­maður á Hring­braut, pistil um „mis­tök Hring­brautar“ þar sem hann gagn­rýndi kollega sína fyrir að hafa birt frétt upp úr skrifum manns sem ekki er til.

Taprekstur Vefpressunnar

Eins og Stundin hefur áður fjallað um í ítar­legri frétta­skýr­ingu hefur fjöl­miðla­veldi Björns Inga allt frá upp­hafi reitt sig á stuðn­ing fjár­sterkra aðila. Ef litið er á árs­reikn­inga Vef­pressunnar má sjá að hún hefur verið rekin með umtals­verðu tapi allt frá stofnun ef frá er talið rekstr­ar­árið 2013 þegar félagið skil­aði loks­ins hagn­aði.

Pressan ehf. var rekin með 66 millj­óna tapi árið 2012. Á rekstr­ar­ár­inu 2013 hækk­uðu skyndi­lega skamm­tíma­skuldir félags­ins um rúmar 60 millj­ónir króna, án þess að gefnar væru skýr­ingar á því í árs­reikn­ingi. Vísir fjall­aði um málið í júní og hafði eftir Arnari Ægissyni, fram­kvæmda­stjóra Pressunnar, að hann myndi ekki hvernig lánið væri til komið. Líklega væri um að ræða „yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eign­ar­halds­fé­lag­inu Vef­press­unni ehf.“. Hann stað­festi þó að yfir­drátt­ur­inn væri hjá MP banka. „Yfir­drátt­ur­inn er þar. Hann var það, hann er ekki lengur. Það er eng­inn yfir­dráttur í dag.“

Tengsl Sigmundar við MP banka

Engin opin­ber skjöl eru til um lánið frá MP banka, sem verður að telj­ast rausn­ar­legt í ljósi þess hver fjar­hags­staða Pressunnar var á þessum tíma. Eins og bent hefur verið á í fjöl­miðlum hafa Sig­mundur Davíð, og rík­is­stjórn Íslands, marg­vís­leg tengsl við MP banka. For­stjóri bank­ans, Sigurður Atli Jónsson, er kvæntur systur Sig­mundar Davíðs. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar MP banka, er náinn vinur og helsti efna­hags­ráð­gjafi Sig­mundar. Þá hafa þrír af sjö með­limum fram­kvæmda­hóps rík­is­stjórn­ar­innar um losun gjald­eyr­is­hafta gegnt yfir­manns­stöðu í bank­anum.

Frægt varð þegar Hlín Ein­ars­dóttir, fyrr­ver­andi sam­býl­is­kona Björns Inga Hrafns­sonar, og Malín Brand systir hennar voru hand­teknar fyrir til­raun til fjár­kúg­unar á hendur Sigmundi Davíð for­sæt­is­ráð­herra. Í nóv­em­ber­blaði Stund­ar­innar birt­ist við­tal við Malín þar sem hún lýsti aðdrag­and­anum, meðal ann­ars því þegar systir hennar sagði henni að hún byggi yfir upp­lýs­ingum um Sigmund Davíð og Björn Inga.

„Það var Sigmundur Davíð sem kippti í einhverja spotta í MP-banka og bjargaði rétt eftir að hann varð forsætisráðherra“

Haft er eftir Malín: „Mér leist ekk­ert á það hversu breytt fas hennar var frá því fyrr um dag­inn og spurði hvað hún væri eig­in­lega búin að drekka marga bjóra. Það fauk í hana og hún sagði mér að hlusta. Svo spurði hún hvort ég myndi þegar Vef­pressan var við það að fara á haus­inn. Vissu­lega mundi ég það. Þá var stundum ekk­ert hlaupið að því að fá útborgað. Hlín rifj­aði upp að skyndi­lega hefði verið til nóg af pen­ingum og Vef­press­unni borgið. „Það var Sig­mundur Davíð sem kippti í ein­hverja spotta í MP-banka og bjarg­aði rétt eftir að hann varð for­sæt­is­ráð­herra,“ sagði hún áköf.“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa sam­skipti Björns Inga og Sig­mundar Davíðs færst mjög í auk­ana und­an­farin ár og vin­skapur tek­ist með þeim. Hafa þeir átt sam­veru­stundir erlendis auk þess sem Sig­mundur Davíð hefur heim­sótt Björn Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár