Alvarlegar athugasemdir gerðar við starfsemi Sólheima

Rétt­inda­málum fatl­aðra er veru­lega ábóta­vant á Sól­heimum, ef athuga­semdir rétt­inda­gæslu­manns fatl­aðs fólks á Suð­ur­landi eiga við rök að styðj­ast. Rétt­inda­gæslu­mað­ur­inn til­kynnti vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu um málin í fyrra­haust. Lítið var gert til að bregð­ast við gagn­rýn­inni, enda vís­aði fram­kvæmda­stjóri Sólheima henni nær alfarið á bug og taldi með því mál­inu lokið.

Alvarlegar athugasemdir gerðar við starfsemi Sólheima
Sól­heimar í Gríms­nesi Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Sólheima er mark­mið stað­ar­ins að skapa sam­fé­lag sem veitir öllum íbúum tæki­færi til að vaxa, þroskast og að vera nauð­syn­legur og virkur þátt­tak­andi í þjóð­fé­lag­inu. Þar er unnið útfrá „öfugri blöndun“ sem þýði að sam­fé­lagið sé byggt upp með þarfir hins fatl­aða að leið­ar­ljósi og hinn „ófatl­aði“ lagi sig að því sam­fé­lagi. Í heild búa um um 100 manns á Sól­heimum, þar af 43 með fötlun. Mynd: Sólheimar

Síð­ast­liðið haust, nánar til­tekið 10. sept­em­ber 2015, fór rétt­inda­gæslu­maður fatl­aðra á Suð­ur­landi, Sigrún Jensey Sig­urð­ar­dóttir, á fund rétt­inda­vaktar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og greindi frá ýmsum þáttum sem hún taldi vera ábóta­vant, er snertu rétt­inda­mál íbúa á Sól­heimum í Gríms­nesi. Ábend­ing­arnar eru margar hverjar alvar­legar og varða lífs­gæði þeirra 43 ein­stak­linga með fötlun sem eiga heim­ili á Sól­heimum. Síðan eru liðnir sextán mán­uðir og aðeins fátt af því sem athuga­semdir voru gerðar við hefur breyst.

Listamenn með fötlun fái ekki greitt fyrir verk sín

Meðal þess sem fram kemur í bókun af fundi hans með rétt­inda­vakt­inni er að allur póstur til fatl­aðs fólks sé opn­aður á skrif­stofu fram­kvæmda­stjóra og ákvörðun tekin um hvort hann fari til þess sem stílað var á. Þá þurfi allir íbúar Sólheima að borga í mötu­neyti stað­ar­ins, hvort sem þeir nýti sér þjón­ustu þess eða ekki. Auk þess sé þjón­ustan und­ir­mönnuð, fag­menntun tak­mörkuð og þar fari fram raf­ræn vöktun í einka­rými án heim­ildar heim­il­is­fólks.

Gerðar voru athuga­semdir við ýmsar aðstæður á svæð­inu. Meðal ann­ars séu göngu­stígar með rauða­möl ófærir hjóla­stólum. Sumt af því hús­næði sem fólkið búi í sé óhent­ugt. Til dæmis búi sex íbúar í einu húsi, þar sem hver um sig hafi lítið her­bergi og aðeins eitt sal­erni sé fyrir alla. Í öðru húsi búi tíu ein­stak­lingar, þrátt fyrir að hámark íbúa sam­kvæmt reglu­gerð sé sex. Þá er bent á að lítil sem engin akst­urs­þjón­usta standi íbúum til boða, sem geri það meðal ann­ars að verkum að íbúar kom­ist sjaldan í lág­vöru­verðs­versl­anir og þurfi að kaupa sínar nauð­synja­vörur í verslun sem rekin er af Sól­heimum.

Margir lista­menn búa á Sól­heimum, enda er eitt af því sem ein­kennir starfið sú mikla list­ræna sköpun sem þar fer fram. Í bók­un­inni kemur fram að of lág vinnu­laun séu greidd fötl­uðum ein­stak­lingum og fatl­aðir mynd­list­ar­menn fái ekki greitt fyrir verk sín. Sann­reyna þurfi hvort greiðslur frá hinu opin­bera sem renna eigi til þjón­ust­unnar skili sér þangað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ástandið á Sólheimum

Sjálfboðaliði segir Sólheimum stjórnað eins og konungsríki
FréttirÁstandið á Sólheimum

Sjálf­boða­liði segir Sól­heimum stjórnað eins og kon­ungs­ríki

Rúmeninn Stefan George Kudor, sem starf­aði sem sjálf­boða­liði á Sól­heimum árið 2014, tekur undir frá­sagnir sjálf­boða­liða sem störf­uðu á staðnum árið 2015, sem lúta að slæmri stjórn og skipu­lagn­ingu á starfi sjálf­boða­liða. Hann seg­ist hafa horft upp á Sólheima missa fjölda hæfi­leik­a­ríks starfs­fólks af þessum sökum. „Hann kom fram við okkur eins og þræla,“ segir hann um fram­kvæmda­stjóra Sólheima.
Sjálfboðaliði ósáttur eftir leynilegt ástarsamband við sjötugan stjórnarformann Sólheima
ViðtalÁstandið á Sólheimum

Sjálf­boða­liði ósáttur eftir leyni­legt ást­ar­sam­band við sjö­tugan stjórn­ar­for­mann Sólheima

Selma Özgen er ein þeirra sem er ósátt við reynslu sína af sjálf­boða­liða­starfi á Sól­heimum. Selma átti í ást­ar­sam­bandi við stjórn­ar­for­mann Sólheima, Pétur Svein­bjarn­ar­son, sem er 42 árum eldri en hún. Mikið valda­misvægi var á milli þeirra tveggja og segir Selma að hún hafi fengið þau skila­boð að hún yrði látin fara frá Sól­heimum ef hún tjáði sig um sam­bandið, en hún var háð Sól­heimum með land­vist­ar­leyfi. Gögn sýna hvernig Pétur bað hana að halda leynd yfir komum sínum til hans.
Sjálfboðaliðar þögul verkfæri stjórnenda
FréttirÁstandið á Sólheimum

Sjálf­boða­liðar þögul verk­færi stjórn­enda

Maylis Galibert kom til starfa sem sjálf­boða­liði á Sól­heimum í árs­byrjun 2015, full vænt­inga. Hún varð hins vegar fyrir miklum von­brigðum með reynsl­una. Þegar henni varð ljóst að gagn­rýni ein­stak­linga leiddi ekki af sér úrbætur lagði hún spurn­inga­könnun fyrir aðra sjálf­boða­liða. Hún leiddi í ljós að margir þeirra höfðu svip­aða sögu von­brigða að segja.
Starfið langt frá því að standast væntingar sjálfboðaliða
FréttirÁstandið á Sólheimum

Starfið langt frá því að stand­ast vænt­ingar sjálf­boða­liða

Slæmt, lítið og heilsu­spill­andi hús­næði. Engar sam­göngur svo þeir þurftu að fara á putt­anum til að kom­ast til og frá þorp­inu. Sam­skipta­leysi. Útilokun frá þátt­töku í sam­fé­lag­inu. Þetta eru þau skila­boð sem voru gegn­um­gang­andi frá vel­flestum sjálf­boða­lið­unum sem svör­uðu spurn­inga­könnun um reynslu sína af Sól­heimum árið 2015.
„Ævintýraleg“ starfsmannavelta á Sólheimum
FréttirÁstandið á Sólheimum

„Ævin­týra­leg“ starfs­manna­velta á Sól­heimum

Ein­ræð­istil­burðir og við­mót fram­kvæmda­stjóra Sólheima, sem stutt er af stjórn­ar­for­manni stað­ar­ins sem einnig er faðir þess fyrr­nefnda, er það sem hrekur fag­fólk frá Sól­heimum og skýrir gríð­ar­lega starfs­manna­veltu þar. Þetta segir fyrrum prestur á staðnum og fleiri fyrrum starfs­menn taka undir orð hennar. Á fimmta tug starfs­manna hefur ýmist hætt störfum á Sól­heimum eða verið sagt upp á und­an­förnum tveimur árum. Fram­kvæmda­stjóri kennir árferði og stað­setn­ingu í sveit um starfs­manna­velt­una.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár