Almennir borgarar safna fyrir hælisleitendum sem búa við skammarlegar aðstæður

Aðstæður á heim­ilum hæl­is­leit­enda á Íslandi eru víða eins eða verri en á Skeggja­götu, þar sem menn þurftu, þar til í gær, að borða mat sinn af gólf­inu þar sem engir stólar voru fyrir þá til að sitja á. Þetta segir Sema Erla Serdar, sem fór fremst í flokki þeirra sem söfn­uðu hús­gögnum og öðrum hús­bún­aði fyrir fólkið. Söfnunin heldur áfram.

Björg borin í bú
Björg borin í bú Engar hirslur hafa verið á Skeggja­götu, til þess að geyma föt og verð­mæti hæl­is­leit­enda. Því var kippt í lið­inn á þriðju­dags­kvöld. Mynd: Press photos

Brotnir gluggar, bil­aðir ofnar, mygla í eld­húsi, ónýtur eld­hús­vaskur sem lyktar illa, engar gard­ínur og slæmur frá­gangur á raf­magni. Örfáir stólar og borð, lít­ill sem eng­inn borð­bún­aður og óþrifn­aður. Þannig lýsir Sema Erla Serdar aðstæð­unum eins og þær voru á Skeggja­götu í byrjun vik­unnar, áður en hópur fólks gekk þar inn á þriðju­dags­kvöld með hirslur, stóla, lampa, kaffi­vélar og fleiri nauð­synjar til að bæta líf hæl­is­leit­enda sem þar búa.

Aðdrag­and­ann að heim­sókn Semu Erlu og félaga má rekja til þess að á mánu­dags­kvöld las Sema Erla frétt Stund­ar­innar um að hæl­is­leit­endur sem byggju á Skeggja­götu borð­uðu mat sinn af gólf­inu, þar sem þeir hefðu enga stóla til að sitja á. Hún sendi út neyð­ar­kall á Facebook og óskaði eftir hús­gögnum og öðrum hlutum, til að gera búsetu þeirra bæri­legri og mann­úð­legri. Hátt í hund­rað manns höfðu sam­band og buðu fram aðstoð.

 

Daginn eftir heim­sótti hún Skeggja­götu ásamt vin­konu sinni, Margréti Norðdahl. Um kvöldið fóru þær svo, ásamt öðrum, söfn­uðu saman hús­gögnum og keyrðu þau á Skeggja­göt­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár