Sýknaður af skotárás í Bryggjuhverfi og fær bætur frá ríkinu

Axel Már Smith sat í gæslu­varð­haldi þar til sýknu­dómur féll. Hæsti­réttur úrskurð­aði í gær að íslenska ríkið skyldi borga honum hálfa milljón króna í bætur.

Sýknaður af skotárás í Bryggjuhverfi og fær bætur frá ríkinu
Sýknaður Einn skotárás­armanna úr Bryggju­hverfi færður fyrir dóm. Mynd: Geirix / Pressphotos.biz

Hæsti­réttur komst í gær að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið sé skaða­bóta­skylt gagn­vart Axel Má Smith vegna gæslu­varð­halds sem hann sat í rúmar tvær vikur, eftir að yfir­völd hefðu átt að láta hann lausan.

Axel Már er einn þriggja manna sem ákærðir voru fyrir skotárás í Bryggju­hverf­inu þann 18. nóv­em­ber 2011. Axel Már var þó, ólíkt hinum tveimur aðil­unum, sýkn­aður í hér­aðs­dómi af aðild að skotárásinni. Hann sat í gæslu­varð­haldi frá 8. des­em­ber 2011 til 22. mars er sýknu­dómur féll.

Viðurkenndi að hafa verið viðstaddur

Í upp­hafi neit­aði Axel Már stað­fast­lega allri aðild að mál­inu og sagð­ist ekki hafa verið við­staddur skotárás­ina. Hann breytti þó fram­burði sínum við aðal­með­ferð máls­ins og ját­aði að hafa verið við­staddur skotárás­ina. Þrátt fyrir þá játn­ingu var Axel Má ekki sleppt úr gæslu­varð­haldi fyrr en hann var sýkn­aður.

Nið­ur­staða Hæsta­réttar var sú að áfram­hald­andi gæslu­varð­hald eftir að hann ját­aði þetta atriði geri íslenska ríkið skaða­bóta­skylt gagn­vart honum. Á hann að fá 500 þús­und krónur í bætur.

Eltu fórnarlambið með haglabyssu  

Skotárásin í Bryggju­hverfi vakti mikla athygli og umtals­verð umfjöllun var um málið í fjöl­miðlum á árunum 2011 og 2012. Þann 18. nóv­em­ber árið 2011 barst lög­reglu til­kynn­ing um að skotið hafi verið með hagla­byssu á bíl við Tang­ar­höfða í Reykja­vík. Málið tengd­ist mót­or­hjóla­sam­tök­unum Outlaws en sá sem skotið var á skuld­aði einum ger­anda, Tómasi Pálssyni, umtals­verða upp­hæð. Samkvæmt dómi hitt­ust menn­irnir þann 16. nóv­em­ber 2011 til að semja um greiðslu á skuld­inni. Nið­ur­staða þeirrar samn­inga­gerðar var að fórn­ar­lambið neit­aði að greiða skuld­ina í heild sinni.

Tveimur dögum síðar hitt­ust menn­irnir aftur og var Tómas þá í fylgd tveggja manna, Axels Más og Krist­jáns Halldórs Jens­sonar. Samkvæmt dómnum ók Tómas í veg fyrir fórn­ar­lambið á fund­ar­stað. Þá stigu fylgd­ar­menn Tómasar út úr bílnum með hulin and­lit og hélt annar þeirra á afsag­aðri hagla­byssu. Tómas var æstur og spark­aði í bíl fórn­ar­lambs­ins sem í kjöl­farið ók burt. Þegar mað­ur­inn var komið í um 20 metra fjar­lægð hleypti Kristján Halldór af byss­unni og hittu skotin bíl fórn­ar­lambs­ins að fram­an­verðu. Maðurinn flúði af vett­vangi en þre­menn­ing­arnir fylgdu á eftir. Við hring­torg hjá Bílds­höfða og Sæbraut var skotið á ný á bíl fórn­ar­lambs­ins og brotn­aði aft­ur­rúða bíls­ins við það. Eftir það hættu þre­menn­ing­arnir eft­ir­för­inni.

Sýknaður vegna skorts á vitneskju

Kristján var dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi fyrir hættu­brot og vopna­laga­brot. Tómas var sýkn­aður af til­raun til mann­dráps en var líkt og Kristján dæmdur fyrir hættu­brot og vopna­laga­brot. Hann fékk 18 mán­aða fang­els­is­dóm.

Líkt og fyrr segir var Axel sýkn­aður af ákæru á þeim for­sendum að hann hafi mætt á inn­heimtufund­inn með skömmum fyr­ir­vara og sam­kvæmt dómnum var talið að hann hefði ekki vitað að Tómas og Kristján hefðu haft með sér hagla­byssu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár