9 hlutir sem framtíðin mun dæma okkur fyrir

Fyrir fáum árum þótti í lagi að reykja með börnin í bílnum og í flug­vélum, fáir not­uðu bíl­belti og kyn­ferð­is­brota­menn nutu skiln­ings og umburð­ar­lyndis. Hvað er það í dag sem fólk mun dæma okkur fyrir í fram­tíð­inni?

1Bílaborgir

48 pró­sent Reykja­víkur­borgar er lögð undir umferð­ar­mann­virki, sem er svipað og í bíla­­borgum Norður-Ameríku. Þetta þýðir að ein­ungis um helm­ingur land­svæð­is­ins þar sem flestir Íslend­ingar búa nýt­ist í græna reiti, íveru­staði mann­eskja, íþrótta­velli og fleira. Á sama tíma er rekstr­ar­kostn­aður vegna bíls sem kostar 2,8 millj­ónir á bil­inu 1,2 til 1,7 millj­ónir króna á ári. Bíla­borgir og sam­hang­andi útþensla byggðar (urban sprawl) er nú þegar við­ur­kennt sem eitt helsta efna­hags-, umhverfis- og heilsu­far­s­vanda­mál heims­ins, þótt það hafi lærst seint í Reykja­vík eftir að borg­ar­full­trúar eins og Gísli Marteinn Bald­urs­son byrj­uðu að tala fyrir því af alvöru að laga þetta. Að eyða klukku­tíma á dag í bið­röð sitj­andi í mis­dýrum meng­andi stál­kössum er lík­lega eitt­hvað sem verður for­dæmt í fram­tíð­inni.

2Líkamsræktar­stöðvar

Á meðan dæmi­gert nútíma­fólk hefur undan­farin ár reynt allt hvað það getur til að forð­ast að nota lík­ama sinn við að færa sig á milli staða, keyrir það margt hvert á bíl á sér­hann­aðar lík­ams­rækt­ar­stöðvar til að ná að hreyfa sig. Þar borgar fólkið fyrir að nota lík­ama sinn og brenna orku án þess að

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár