Barist gegn verðbólgunni í Bandaríkjunum

Vinsældir stjórn­valda í Banda­ríkjunum hafa versnað töluvert samhliða hækkandi verðlagi, en verð­bólgan þar í landi hefur ekki verið hærri í 31 ár. Forseti landsins boðar aðgerðir gegn verð­bólgunni, en ekki er búist við að vextir verði hækkaðir strax.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna.
Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Verð­bólgan í Banda­ríkjunum nam 6,2 prósentum í síðasta mánuði, en hún hefur ekki verið hærri frá árinu 1990. Á sama tíma og verð­bólgan hefur aukist hefur óánægja með forseta landsins, Joe Biden, vaxið. Biden sagði að frum­varpið hans um fjár­festingar í innviðum myndi draga úr þessum vanda, en ekki er búist við að seðla­bankinn hækki vexti vegna hennar á allra næstu mánuðum.

Meiri eftirspurn og flöskuhálsar í framboði

Verðbólgu­tölurnar fyrir október voru birtar í gær, en samkvæmt frétt Bloomberg var hún drifin áfram af verð­hækkunum á orku, húsnæði, matvöru og farar­tækjum. Þessar hækkanir má rekja til aukinnar eftir­spurnar eftir efnahags­lægðina sem myndaðist í kjölfar faraldursins, auk þess sem truflanir hafa orðið á framboði vegna flösku­hálsa í vöru­flutningum og skorts á vinnuafli.

Þetta er mesta verðbólga sem mælst hefur í Banda­ríkjunum í 31 ár, en hún nam 6,3 prósentum í nóvember árið 1990. Hún hefur hækkað hratt á síðustu mánuðum, en í lok febrúar nam hún einungis 1,7 prósentum þar í landi.

Hefur trú á innviðafrumvarpi

Í yfir­lýsingu sem Biden sendi frá sér í gær segir Biden að frumvarp hans um innviða­fjár­festingar, sem er nú til umræðu á Banda­ríkjaþingi, muni taka á þessu vandamáli. Samkvæmt honum gætu bættir innviðir dregið úr hiksti í fram­leiðslu, sem myndi hafa neikvæð áhrif á verð.

„Við erum nú þegar í miðjunni á sögulegri efnahags­viðspyrnu,“ segir Biden í ávarpinu sínu sem sjá má hér að neðan. „Þökk sé allra aðgerð­anna sem við höfum ráðist í munum við mjög bráðlega sjá virðis­keðjuna ná í skottið á eftir­spurninni.“

Hins vegar er ekki víst að frumvarp Biden muni ná í gegnum þingið, þar sem það veltur á stuðningi frá öldunga­deildar­þing­manninum Joe Manchin. Fréttamiðillin Axios greindi frá því í gær að Manchin hygðist ekki ætla að styðja frum­varpið, þar sem hann er óviss um hvaða áhrif það muni hafa á efnahags­lífið vestanhafs.

Engar vaxtalækkanir enn

Stýri­vextir seðla­banka Banda­ríkjanna eru nú í 0,25 prósentum, en þeir hafa verið nálægt núll prósentum frá byrjun faraldursins í mars í fyrra. Seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, Jerome Powell, sagði í síðasta mánuði að hann teldi vaxta­hækkanir vera ótíma­bærar, þar sem hann telur yfir­standandi verðbólgu­skot einungis vera tíma­bundið.

Samkvæmt frétt CNBC frá í gær vænta markaðs­aðilar vestanhafs hins vegar að vaxta­hækkunar­ferlið þar byrji fyrr í ljósi nýútgefinna verðbólgu­talna, en samkvæmt þeim eru 80 prósent líkur á að stýri­vextir verði hækkaðir um 0,25 prósent í júlí á næsta ári. Fyrir birtingu verðbólgu­talnanna töldu þeir að vextirnir yrðu ekki hækkaðir fyrr en í september 2022.

Aðeins Trump var óvinsælli

Líkt og Kjarninn fjallaði um fyrr í vikunni hafa vinsældir Biden minnkað hratt á sama tíma og verðlag hefur hækkað, en samkvæmt nýrri skoðana­könnun er meirihluti Bandaríkja­manna óánægður með frammistöðu hans sem forseta. Einungis einn forseti hefur mælst óvinsælli eftir jafn­langan tíma í embætti, en það var Donald Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár