Meirihluti Bandaríkjamanna ósáttur með frammistöðu Bidens í embætti

Eftir tæplega 300 daga í embætti mælist mikil og vaxandi óánægja með störf Joe Bidens Bandaríkja­forseta í skoðana­könnunum. Einungis einn fyrr­verandi forseti landsins hefur mælst óvinsælli eftir jafn marga daga í embætti og Biden hefur setið nú.

Joe Biden forseti Bandaríkjanna mælist slælega í skoðanakönnunum um þessar mundir.
Joe Biden for­seti Banda­ríkj­anna mælist slæ­lega í skoð­ana­könn­unum um þessar mundir. Mynd: EPA

Talsvert fleiri Bandaríkja­menn segjast þessa dagana vera óánægðir með frammistöðu Joe Biden sem forseta en ánægðir, þegar spurt er um þetta efni í skoðana­könnunum. Samkvæmt vegnu meðaltali kannanna sem sjá má á vef miðilsins FiveThirtyEight segjast nú einungis 42,8 prósent Bandaríkja­manna sátt með frammistöðu Biden, en rúmur helmingur, 51,6 prósent, lýsa sig ósátt.

Í einni nýlegri könnun, sem Suffolk-háskóli framkvæmdi fyrir USA Today dagana 3.-5. nóvember, sögðust einungis 37,8 prósent sátt með frammistöðu forsetans í embætti, nú þegar styttist í að hann hafi gegnt forseta­embættinu í 300 daga.

Bara Trump óvinsælli

Einungis einn forseti hefur mælst óvinsælli en Biden á þessum tíma­punkti á forseta­ferlinum, samkvæmt yfirliti sem finna má á vef FiveThirtyEight.

Það var Donald Trump, en nær alla fjögurra ára forsetatíð Trump sagðist rösklega helmingur Bandaríkja­manna ósáttur með störf hans.

Afganistan, efnahagurinn, veiran

Ánægja með störf forsetans hefur farið lækkandi frá því í lok júlí og óánægjan vaxið að sama skapi.

Í ágúst­mánuði, eða um það leyti sem Talíbanar sóttu fram í Afganistan og sölsuðu undir sig stjórn landsins á meðan að bandarískt herlið hraðaði sér á brott í óðagoti frammi fyrir augum heimsins, féll ánægjan með störf forsetans markvert.

Undir lok mánaðarins voru þeir orðnir fleiri sem sögðust ósáttir með störf hans en sáttir, í flestum könnunum.

Síðan þá hefur enn syrt í álinn.

Erfiðlega hefur gengið hjá Biden að koma þeim stefnu­málum sem hann setti á oddinn í kosninga­baráttu síðasta árs í gegnum þingið og óvissa í efnahags­málum, verðbólga og áfram­haldandi útbreiðsla kórónu­veirunnar valda forsetanum vandræðum.

Í frétta­skýringu á vef Vox um versnandi stöðu forsetans er athygli vakin á því að hvað bæði efnahagsmál og veiruna varðar hefur almennings­álitið snúist Biden í óhag svo um munar.

Þar er vísað til könnunar NBC News, en í þeirri sömu könnun voru Bandaríkja­menn einnig spurðir hvort þeir teldu landið vera á réttri eða rangri braut. Fleiri en sjö af hverjum tíu sem svöruðu töldu Banda­ríkin á rangri braut, er könnunin var framkvæmd undir lok október­mánaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár