Ferðaþjónustufyrirtæki Icelandair endurspegla samdráttinn í ferðaþjónustunni

Hagn­að­ar­sam­dráttur tveggja ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja Icelandair nam meira en 30 pró­sentum milli áranna 2016 og 2017. Annað fyr­ir­tækið hefur verið sett í sölu­með­ferð. Hætt var við sam­ein­ingu hins fyr­ir­tæk­is­ins og Gray Line af ástæðum sem eru ekki gefnar upp. Tekju­aukn­ing fyr­ir­tækj­anna er núlluð út og gott betur af mik­illi kostn­að­ar­aukn­ingu.

Samdrátturinn víðast hvar
Sam­drátt­ur­inn víð­ast hvar Árs­reikn­ingar dótt­ur­fé­laga Icelandair sýna þann sam­drátt sem ein­kenndi ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki árið 2017. Árið í ár er erf­ið­ara en árið í fyrra á flestum bæjum. Mynd: Icelandair

Nýir árs­reikn­ingar tveggja stórra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja í eigu flug­ris­ans Icelandair end­ur­spegla þann sam­drátt sem á sér nú stað í íslenskri ferða­þjón­ustu.

Hagnaður Flug­leiða­hót­ela ehf., fyr­ir­tækis sem rekur 19 hótel í land­inu undir merkjum Icelandair og Eddu, og ferða­skrif­stof­unnar Iceland Travel ehf. dróst saman um 32 og 35 pró­sent milli áranna 2016 og 2017 sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingum beggja fyr­ir­tækja. Hagnaður Flug­leiða­hót­ela var tæp­lega 247 millj­ónir króna í fyrra en 361 millj­óna króna 2016; hagn­aður Iceland Travel var tæp­lega 335 þús­und evrur 2017, tæp­lega 42 millj­ónir króna, en 512 þús­und evrur 2016, tæp­lega 61 milljón króna.

Mikið hefur verið rætt um harðn­andi árferði í íslenskri ferða­þjón­ustu síð­ustu mán­uði og spurt hvað sé til ráða. Eftir því sem fleiri árs­reikn­ingar ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja verða opin­berir skýrist myndin af stöð­unni í geir­anum betur.  

Selja hót­elin og reyna sam­ein­inguIcelandair reynir að selja hót­elin sín og áform­aðir sam­ein­ingu ferða­skrif­stofu sinnar. Bogi Nils Bogason er fjár­mála­stjóri Icelandair.

Meira selt en minni hagnaður

Nýlega var greint frá því að Icelandair hefði ákveðið að reyna að selja hót­el­keðj­una. Í sam­tali við Stundina sagði Bogi Nils Bogason, fjár­mála­stjóri Icelandair, að þetta væri gert til að skerpa fók­us­inn í starf­sem­inni. „Icelandair Group er í eðli sínu flug­fé­lag. Flug­rekstur er okkar kjarna­starf­semi og er um 85% af veltu sam­stæð­unnar. Miðað við okkar áætl­anir mun þetta hlut­fall aukast á næstu árum. Ákvörð­unin nú snýst um að setja enn meiri rekstrar- og stjórn­un­ar­legan fókus á flug­rekst­ur­inn hjá Icelandair.“ 

Árs­reikn­ingur Flug­leiða­hót­ela, og minnk­andi hagn­aður, lá ekki fyrir þegar Stundin spurði Boga þess­ara spurn­inga en hann gerir það nú.

Bogi sagði að ákvörð­unin um að selja hót­elin sner­ist ekki um sam­drátt í rekstr­inum. „Ákvörð­unin núna teng­ist ekki afkom­unni heldur skýr­ari fókus í starf­sem­inni.“

Árs­reikn­ingur Flug­leiða­hót­ela sýnir hins vegar að jafn­vel þótt tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafi auk­ist úr nærri 9,3 millj­örðum upp í rúm­lega 10,1 þó dróst hagn­að­ur­inn saman um meira en 100 millj­ónir króna, að lang­mestu leyti vegna auk­ins kostn­aðar við starf­sem­ina. Flug­leiða­hót­elin eru því tví­mæ­laust ekki að skila þeirri arð­semi sem þau gerðu áður.

Bogi Nils neit­aði því hins vegar að þetta væri skýr­ingin á vilja Icelandair til að selja hót­elin. „Í hrein­skilni sagt þá hefðum við ekki sett félagið í sölu­ferli ef við teldum horf­urnar slæmar því það myndi að sjálf­sögðu hafa nei­kvæð áhrif á verðið.  Við höfum alltaf spáð því að það myndi hægja á fjölgun ferða­manna til lands­ins og teljum það reyndar heil­brigða þróun.  Landið getur ekki tekið við tug­pró­senta aukn­ingu ár eftir ár,“ sagði hann.  

Fyrst staða félags­ins var svona í fyrra má búast við því að hagur Flug­leiða­hót­ela verði verri á þessu ári, að frek­ari sam­dráttar muni gæta, þar sem staðan í ferða­þjón­ust­unni er almennt séð þyngri í ár en í fyrra. Þá er gistin­óttum að fækka milli ára en síð­ast­liðin ár hefur verið stöðug aukn­ing í notkun ferða­manna á hót­elum á Íslandi.

Hagstofa Íslands greindi frá því lok maí að gistin­óttum hefði fækkað um 7 pró­sent á milli áranna 2017 og 2018, farið frá 576600 niður í 534700. Á sama tíma er ljóst að komur ferða­manna eru fyrst nú, einnig eftir ára­langa stöðuga fjölgun ferða­manna, byrj­aðar að standa í stað en sam­an­burður á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins í ár og í fyrra sýnir svo litla fjölgun ferða­manna að tala má um stöðnun. 

Ekki gefið uppSigurdór Sig­urðs­son, sem sést hér með Þóri Garð­ars­syni, hefur ekki viljað gefa upp af hverju fyr­ir­tækið sam­ein­að­ist ekki Iceland Travel í fyrra. Þeir tveir eru stærstu hlut­hafar Gray Line.

Launahækkanir vega þungt

Eitt af því sem aðilar í ferða­þjón­ustu hafa bent á sem skýr­ingu á ver­sandi afkomu eru launa­hækk­anir sem tóku gildi á síð­asta ári. Þannig lýsti Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða, versn­andi afkomu fyr­ir­tæk­is­ins á síð­asta ári en þá var tug­millj­óna tap á rútu­fyr­ir­tæk­inu: „Það er ýmis­legt. Krónan styrkt­ist umtals­vert í fyrra og hafði það tölu­verð áhrif. Launa­þróun hefur verið tölu­vert upp á við, sér­stak­lega lægri laun, en mikið er um slík störf hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum. Þetta er mjög mann­frek starf­semi og fer um helm­ing­ur­inn af tekjum í launa­kostnað. Þetta rífur mikið í.“

Í sam­tali við Stundina tók fram­kvæmda­stjóri rútu­fyr­ir­tæk­is­ins Hópbíl í svip­aðan streng og lýsti hann árinu 2018 sem „þungu“: „Þetta er gríð­ar­lega þungt núna víð­ast hvar. Ég held að fólk átti sig ekki á því hvað það er þungt að vera með mikið af tekjum í erlendri mynt, og fá svo 20 til 25 pró­sent drop þar út af geng­inu, og fá svo kostn­að­ar­hækk­anir, sér­stak­lega á launa­lið, auk íþyngj­andi opin­berra gjalda. Stjórn­völd hafa hingað til tekið þessu sem sjálf­sögðum hlut af því það hefur gengið mjög vel en nú er að koma annað hljóð í strokk­inn og ég held að það þurfi að fara mjög var­lega á næstu árum,“ sagði Guðjón. 

„Það strand­aði eig­in­lega hvor­ugum megin“ 

Tals­verðir erf­ið­leikar blasa því við rútu­fyr­ir­tækj­unum sem og öðrum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum. Eitt af þessum fyr­ir­tækjum er rútu­fyr­ir­tækið Gray Line. 

Hættu við sameininguna

Gray Line teng­ist dótt­ur­fé­lagi Icelandair, Iceland Travel ehf. þannig að til stóð að fyr­ir­tækin myndu sam­ein­ast í fyrra. Eins og Stundin fjall­aði um fyrir skömmu sendi Icelandair Group frá sér til­kynn­ingu í októ­ber 2017 um að hætt hefði verið við við­skiptin af ótil­greindum ástæðum. 

Í nýlegu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um ástæður þess­arar ákvörð­unar sagði Bogi Nils gefi ekki upp for­sendur samn­ings­slit­anna: „Eins og fram kemur í til­kynn­ing­unni þá ákváðu samn­ings­að­ilar að hætta við sam­run­ann eftir að nið­ur­stöður áreið­an­leikakann­ana lágu fyrir.  Við höfum og munum ekki tjá okkur frekar um málið.“ Til stóð að Icelandair myndi eiga 70 pró­sent í hinu sam­ein­aða félagi og eig­endur Gray Line 30 pró­sent. 

Þá vildi Sigurdór Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Gray Line, heldur ekki gefa upp ástæð­una: „Það er trún­aður á milli okkar um það. […] Það strand­aði eig­in­lega hvor­ugum megin,“ sagði hann en tap var á rekstri Gray Line árið 2017 og hefur 49 pró­senta hlutur fjár­fest­ing­ar­fé­lags í eigu líf­eyr­is­sjóð­anna sem keypti í Gray Line verið færður niður úr 1400 millj­ónum og niður í 900 millj­ónir. 

Tekjuaukning en hagnaðarsamdráttur

Árs­reikn­ingur Iceland Travel sýnir tals­verðan sam­drátt í rekstr­inum milli ára. Tekjur voru umtals­vert hærri 2017 en 2016, fóru úr rúm­lega 82 millj­ónum evra og upp í tæp­lega 105 millj­ónir evra árið 2017. Um var að ræða tekju­aukn­ingu upp á 28 pró­sent. Á sama tíma minnk­aði hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins um nærri 35 pró­sent á milli ára. Hagn­að­ur­inn fór úr tæp­lega 512 þús­und evrum og niður í tæp­lega 335 þús­und evrur.  Ástæðan fyrir þessu er að kostn­að­ar­aukn­ingin við starf­sem­ina núll­aði út hagn­að­ar­aukn­ing­una í starf­sem­inni og gott betur. Stóra spurn­ingin er svo hvernig bók­hald fyr­ir­tæk­is­ins lítur út núna þar sem sam­drátt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni hefur víð­ast hvar auk­ist á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár