Afganski hælisleitandinn Abdolhamid Rahmani er nú að hefja sinn átjánda dag í hungurverkfalli. „Þetta er eina leiðin sem ég hef til að mótmæla stöðu minni,“ segir Abdolhamid með aðstoð túlks í samtali við Stundina. Hann hefur verið í hungurverkfalli síðan 27. febrúar, þegar hann fékk þau skilaboð að honum yrði vísað úr landi og sendur aftur til Grikklands. Þar segist hann óttast um líf sitt. Hann býr nú í félagslegu húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar og síðan hann hóf verkfallið segir hann að öryggisgæslan sé orðin strangari og vinum hans sé meinað að koma í heimsókn. Abdolhamid var fámáll í samtali við blaðamann, enda örmagna af næringarskorti. „Ég er þreyttur og mér líður ekki vel. Enginn má koma að heimsækja mig og ég get ekkert gert,“ segir Abdolhamid.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir