Sumir þurfa hjálp við að tengjast börnum sínum

Það er ekki nóg að veita fjöl­skyldum þar sem annað foreldri eða báðir berjast við geðrænan vanda aðstoð í eitt ár eftir fæðingu barns, að mati teymis­stjóra FMB teymisins á geðsviði Land­spítalans. Of mikið sé í húfi fyrir framtíð barnanna.

Í einu meðferðarherbergjanna
Í einu með­ferð­ar­her­bergj­anna Elísabet Sig­fús­dóttir, teym­is­stjóri FMB-teym­is­ins, segir mikla áherslu lagða á að her­bergin séu nota­leg og jafn­framt lítið í umhverf­inu sem truflar. Til að mynda eru ekki myndir á veggj­unum. Mynd: Heiða Helgadóttir

FMB-teymið er viðbótar­þjónusta við göngu­deild geðsviðs Land­spítalans. Þar er unnið með foreldrum með alvarlegan geðrænan vanda, sem eiga von á barni eða eru með barn á fyrsta ári. Þangað mæta foreldrar í samtals­meðferð en sérstök áhersla er lögð á tengsla­eflandi innsæis­vinnu sem miðar að því að styrkja tengsl foreldra við barn. Í fyrra var 130 barns­hafandi konum eða nýbökuðum mæðrum vísað til teymisins.

Pabbarnir vita ekki hvað þeir eru mikilvægir

Börnin eru tekin með í meðferðina og þjónustan stendur bæði mæðrum og feðrum til boða. Elísabet segir að feður átti sig oft ekki á því sjálfir að þeir séu hluti af heildar­myndinni, geti bæði verið hluti af vanda­málinu og lausn þess. „Það mynstur sem við sjáum oft þegar við tökum á móti pörum er að mömmu líður illa og pabbi veit ekki hvernig hann á að tækla málið, líður jafnvel illa sjálfum. Marga vantar skilning á því hvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár