Skýrsla Hannesar verður birt rúmum tveimur árum á eftir áætlun

Skýrsla Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar, um erlenda áhrifa­þætti banka­hrunsins, verður birt þann 8. október, á níu ára afmæli þess að bresk stjórn­völd beittu hryðjuverka­lögum gegn Íslandi. Hannes hefur brugðist illa við frétta­flutningi um tafir á birtingu skýrslunnar.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Er að leggja loka­hönd á skýrsl­una sem birt verður þann 9. októ­ber.

Skýrsla Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar, prófessors við Háskóla Íslands, um erlenda áhrifa­þætti á banka­hrunið, verður birt í haust en áætluð verklok voru þann 1. september 2015. „Hannes er að leggja lokahönd á skýrsluna núna og hún verður birt þann 8. október á níu ára afmæli þess að bresk stjórn­völd beittu hryðverkalögum gegn Íslandi,“ segir Gylfi Ólafsson, aðstoðar­maður Benedikts Jóhannessonar fjármála­ráðherra.

Hannes átti frumkvæði að vinnslu skýrslunnar og fékk til verksins 10 milljónir króna frá fjármála­ráðuneyti Bjarna Benedikts­sonar. Þá hefur hann brugðist illa við frétta­flutningi um að birting skýrslunnar hafi tafist.

„Frétta­stofa RÚV flutti í gær sérstaka frétt um það þjóðarböl, að líklega komi skýrsla mín ekki út fyrir næstu áramót. Töfin á minni skýrslu er hins vegar vegna þess tvenns, að ég er líka að vinna að lengri skýrslu (þótt samningurinn við fjármála­ráðuneytið hafi ekki krafist þess) og að erfitt hefur verið að fá viðtöl við einn eða tvo menn, sem þó er nauðsynlegt að tala við. Ég hefði ella getað skilað styttri skýrslunni fyrir löngu,“ sagði Hannes í færslu á Facebook þann 21. október 2015. Þá voru áætluð verklok liðin.

Í blogg­færslu sem Hannes birti þann 12. ágúst í fyrra sagði hann ekkert sérstak­lega liggja á því að skýrslan yrði birt. „Ég hef talsverða reynslu af stórum verkum og tel, að tafir séu illskárri en óðagot og óvandvirkni. Ég hygg, að ég geti lofað því, að skýrslan tefjist minna en skýrslan um spari­sjóðina,“ sagði hann í blogg­færslunni.

Loforðið tekst Hannesi ekki að standa við en þegar skýrslan verður birt í október verða rúmlega tvö ár liðin frá áætluðum verklokum. Spari­sjóðs­skýrslunni var skilað nærri tveimur árum eftir áætlun.

Hannes hefur áður unnið að skýrslu á vegum Félags­vísinda­stofnunar HÍ fyrir fjármála­ráðuneytið. Árið 2007 samdi Árni Mathiesen, þáverandi fjármála­ráðherra, við stofnunina um gerð skýrslu sem fjallaði um skatta­breytingar á valdatíma Sjálfstæðis­flokksins á árunum 1991 til 2007. Í samningnum var áskilið að Hannes annaðist verkefnið en ásamt honum komu Tryggvi Þór Herbertsson, fyrr­verandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, og Friðbjörn Orri Ketilsson, fyrrum ritstjóri Amx-vefsins, að gerð skýrslunnar.

Áætlað var að kostnaður við skýrsluna yrði tíu milljónir króna en heildar­kostnaðurinn nam um þrettán milljónum króna. Þá skilaði Hannes af sér skýrslunni rúmi ári eftir umsamin verklok, í nóvember 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár