Allt í puttunum og engar uppskriftir

Jóhannes Bragi Bjarna­son, betur þekktur sem Jói B., segir frá matnum sem hann elskar að borða en ekki síður að bera á borð fyrir aðra.

Jói B.
Jói B. Hann smakk­aði pitsu í fyrsta sinn á Dairy Queen á Hjarð­ar­hag­anum í kringum 1980. Hann varð ekki fyrir eins mik­illi mat­ar­upp­lifun aftur fyrr en hann próf­aði að grilla pitsu sjálfur nokkuð mörgum árum síðar. Mynd: Garðar Pétursson

Flestir sem þekkja Jóa B. hafa á honum djúpa mat­ar­ást, enda veit hann sjálfur fátt meira gef­andi en að seðja svanga munna. Hann vílar ekki fyrir sér að slá upp mat­ar­veislum fyrir tugi gesta, sem vinnu­fé­lagar hans, kunn­ingjar og vinir hafa notið góðs af í gegnum tíð­ina. Oftar en ekki er kjöt í rétt­unum hans Jóa. Ekki það að hann borði ekki fisk og græn­meti. Honum finnst bara ekk­ert skemmti­legt að elda það sjálfur.

1. Saltkjöt í karrí

Sprengi­dagur rennur ekki upp hjá mér nema ég fái salt­kjöt í karrí. Það fékk ég bæði hjá ömmu minni og mömmu, þegar ég var strákur. Ég fæ þetta enn þá stundum hjá mömmu og reyni að gera þetta sjálfur þegar hennar nýtur ekki við. Það er nú samt ekki nema svona tvisvar á ári sem maður leyfir sér þennan unað, enda er þetta einn af fáum réttum sem ég get …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár