Kosningastjóri Framsóknar tjáir sig um brjóstaherferð

Svanur fjarlægði ummæli sín um borgar­stjóra. Eiginkona hans segir #freethenipple-herferðina „hámark plebbismans“

„Vitiði afhverju Dagur var svona ánægður með brjósta­daginn? Hann fékk loksins að sjá brjóstin á Hildi Lilliendahl,“ skrifaði Svanur Guðmundsson, kosninga­stjóri Fram­sóknar og flugvallar­vina í síðustu borgar­stjórnar­kosningum, á Facebook-síðu sína í dag. Hann hefur nú falið ummælin, en skjáskot af þeim hefur vakið talsverða athygli á Twitter.

Svanur er eigin­maður Guðfinnu Jóhönnu Guðmunds­dóttur, borgar­fulltrúa Fram­sóknar og flugvallar­vina, en hún lét hafa eftir sér í gær að herferðin #FreetheNipple væri „hámark plebbismans“.

Svanur hefur lagt sitthvað til málanna. Meðal annars deildi hann frétt um mennta­skóla­stúlkur sem gengu berbrjósta niður Lauga­veginn og skrifaði: „Ef þetta fer í erlenda fjölmiðla þá þarf að endur­skoða spá um fjölda ferða­manna og áfalla­hjálp fyrir feður þessa lands.“ Þá spurði hann á Facebook í gærkvöldi: „Er einhver hér, einhver karlkyns, sem skilur betur konur eftir daginn í dag?“

Kosninga­stjórinn er framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins Smáíbúða ehf. DV tók viðtal við hann í fyrra þar sem fram kom að hann vonaðist til að Guðfinna myndi beita sér fyrir hagsmunum fyrir­tækis síns sem hafði þá lýst yfir vilja til að reisa gámahús í höfuð­borginni. Guðfinna og Svanur brugðust við með því að segja að rangt væri haft eftir þeim í frétt DV sem birti í kjölfarið hljóð­upptökur af símtölunum sem leiddu í ljós að svo var ekki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár