Tengir ásakanir og reiði almennings við hnignun kristinnar trúar

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmála­fræði­prófessor við Háskóla Íslands, telur boðorðin tíu úr Gamla testamentinu vera á meðal grunn­stoða hins borgara­lega samfélags.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands, telur að trúgirni gagnvart ásökunum standi í beinu sambandi við hnignun trúarinnar og siðrof í íslensku samfélagi. Þá heldur hann því fram að boðorðin tíu úr Gamla testamentinu séu á meðal megin­stoða borgara­legs skipulags.

Þessar skoðanir viðrar Hannes á Facebook-síðu sinni en talsvert hefur verið fjallað um nauðgunarmál og meðferð þeirra hjá lögreglu í fjöl­miðlum undan­farna daga.

„Tvær mann­tegundir, náskyldar, hafa sprottið upp eftir banka­hrunið og siðarofið: netormar, sem reyna að naga í sundur þrjár megin­stoðir hins borgara­lega skipulags (trúna á rétt og rangt, boðorðin tíu og Fjall­ræðuna; eignar­réttinn; fjöl­skylduna), og ásökunar­dólgar, sem slengja fram hverri ásökuninni af annarri og æsa upp trúgjarnt fólk,“ skrifar Hannes og bætir við: „Líklega stendur trúgirni í beinu sambandi við hnignun trúarinnar og siðarofið. Þeir, sem engu trúa, trúa öllu.“ 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár