Leigubílaleyfum fjölgar um 100 – Mesta fjölgun frá því að lög voru sett um starfsemina

Inni­viða­ráðherra hefur ákveðið að fjölga leigubíla­leyfum á höfuð­borgar­svæðinu og á Suðurnesjum, þar sem alþjóða­flug­völlurinn er, um 17,2 prósent. Breyt­ing­arnar eru gerðar til að koma til móts við óskir í samfélaginu um meiri þjónustu á leigu­bílamarkaði.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fer með leigubílamál í ríkisstjórninni.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra fer með leigu­bíla­mál í rík­is­stjórn­inni. Mynd: Samsett.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra hefur ákveðið að fjölga atvinnu­leyfum fyrir leigu­bílaakstur um 100 á höfuð­borgar­svæðinu og á Suðurnesjum. Með breytingunni fjölgar úthlutuðum leyfum úr 580 í 680, eða um 17,2 prósent. Um er að ræða mestu fjölgun atvinnu­leyfa í einu skrefi frá því að lög um leigu­bifreiðar voru sett árið 2001, eða í 21 ár. Úthlutun nýrra atvinnu­leyfa er fyrir­huguð á næstu vikum.

Í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins segir að breytingarnar séu gerðar til að koma til móts við óskir í samfélaginu um meiri þjónustu á leigu­bílamarkaði. Þar segir enn fremur að Samgöngu­stofa hafi ekki gert athuga­semdir um fjölgun leyfa á umræddu svæði, en hún á samkvæmt lögum að meta tillögur að breytingum sem þessum. „Á hinn bóginn taldi stofnunin ekki ástæðu til að fjölga atvinnu­leyfum á öðrum takmörkunar­svæðum.“

Afturkallaði frumvarp um breytingar á markaðnum

Sigurður Ingi lagði fram frumvarp um leigu­bifreiða­akstur í febrúar síðastliðnum sem byggði á tillögum starfs­hóps ráðuneytis hans um heildar­endurskoðun á reglu­verki í kringum starfsemina. Starfs­hópurinn var skipaður 19. október 2017 og skilaði tillögum sínum til ráðuneytisins í mars 2018, eða fyrir rúmum fjórum árum. Hann hefur aftur­kallað frum­varpið.

Þegar Sigurður Ingi mælti fyrir frum­varpinu í byrjun mars sagði hann tildrög þess vera að snemma árs 2017 hafi Eftirlits­stofnun EFTA (ESA) hafið frumkvæðis­athugun á leigu­bíla­markaðnum á Íslandi og mögulegum hindrunum að aðgengi að honum.

ESA tók ákvörðun í nóvember í fyrra um að stíga fyrsta skrefið í samnings­brotamáli gegn Íslandi fyrir að virða ekki EES-reglur um leigu­bíla­markaðinn. Í tilkynningu frá eftirlits­stofnuninni sagði að núverandi löggjöf takmarki úthlutun atvinnu­leyfa fyrir leigubiílaakstur innan takmörkunar­svæða. „Reglur um úthlutun atvinnu­leyfa innan skilgreindra svæða eru ekki hlutlægar og hygla núverandi leyfis­hafa. Þetta felur í sér mögulegar aðgangs­hindranir og hindrar fyrir að nýir aðilar hefji starfsemi í atvinnu­greininni. Löggjöfin skyldar einnig leyfis­hafa til að hafa leigu­bifreiða­akstur sem megin­atvinnu og krefst þess að viðkomandi sé tengdur leigu­bifreiðastöð.“

Uber og Lyft ekki á leiðinni

Sigurður Ingi sagði þegar hann mælti fyrir frum­varpinu sem hann hefur nú aftur­kallað að ráða mætti af samskiptum við ESA að stofnunin teldi líkur á því að íslensk löggjöf um leigu­bílar fæli í sér aðgangs­hindranir sem ekki samræmdust alþjóð­legum skuld­bindingum íslenska ríkisins. „Markmiðið með frum­varpinu sem ég mæli hér fyrir er fyrst og fremst að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigu­bifreiða­þjónustu fyrir almenning á Íslandi. Þá er frum­varpinu ætlað að færa lög og reglur um leigu­bifreiðar til nútímalegra horfs þar sem öruggar og tryggar samgöngur eru hafðar að leiðar­ljósi auk þess að tryggja að íslenska ríkið uppfylli þjóðréttarlegar skuld­bindingar sínar. Verði frum­varpið að lögum munu þau auka atvinnu­tækifæri fjöl­breyttra hópa.“

Ef frum­varpið yrði að lögum myndi svokölluðu takmörkunar­svæði heyra sögunni til, en þau eru höfuð­borgar­svæðið, Suðurnes, Árborgar­svæðið og Akureyri. Svokallaðar farveitur, á borð við Uber og Lyft, gætu hafið starfsemi hérlendis en þær þyrftu að uppfylla sömu skilyrði og hefð­bundnar leigu­bílastöðvar til að fá leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár