„Fjölskyldu sem þurfti að kljást við skilnað, dauða og mannlegan harmleik var velt upp úr svaðinu“

Einar Hann­es­son, aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, er óánægður með umfjöllun stjórn­mála­manna og fjöl­miðla um afskipti Braga af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu.

Einar Hann­es­son, aðstoð­ar­maður Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra, telur að nið­ur­staða úttektar um með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda leiði í ljós að stjórn­mála­menn sem tjáðu sig um afskipti Braga Guð­brands­sonar af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu hafi haft rangt fyrir sér. 

Einar birtir harð­orða athuga­semd um málið á DV.is undir frétt þar sem fjallað er um gagn­rýni Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Pírata.

„Nú þegar það er komið í ljós að þess­ari fjöl­skyldu sem þurfti að kljást við skilnað, dauða og mann­legan harm­leik var velt upp úr svað­inu fyrir netsmelli og stund­ar­at­hygli blogg­ara og stjórn­mála­manna sem höfðu rangt fyrir sér - munu þau biðj­ast afsök­unar?“ skrifar Einar og bætir við: „Það er eig­in­lega ótrú­legt að sjá að RÚV reynir að hjakka áfram í sama far­inu. Hvað sér þetta fólk þegar það lítur í spegil á morgn­anna?“

Málið rataði upp­haf­lega í fréttir í nóv­em­ber 2017 þegar barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar kvart­aði undan því að Bragi Guð­brands­son hefði beitt sér fyrir því að ungar stúlkur yrðu látnar umgang­ast föður sinn þrátt fyrir grun­semdir um að kyn­ferð­is­lega mis­notkun.

Stundin varp­aði svo ljósi á afskipti Braga af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu þann 27. apríl síð­ast­lið­inn og birti ítar­legar upp­lýs­ingar um hvernig afskipt­unum var háttað. Í umfjöllun Stund­ar­innar var greint frá þeim vís­bend­ingum sem fram höfðu komið í mál­inu og rakið hvernig til­vís­un­ar­bréf vegna ann­arrar stúlkunnar gleymd­ist í póst­hólfi Barna­húss um leið og tölvu­póst­kerfi þess bil­aði. Þá kom fram að Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefði byggt á ummælum Braga þegar hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að beita skyldu dag­sektum á móð­ur­ina vegna tálm­unar, en síðar var dag­sekt­ar­úr­skurð­inum snúið við, meðal ann­ars með vísan til þess að meint kyn­ferð­is­brot væru enn til skoð­unar. 

Umfjöllun Stund­ar­innar byggði ann­ars vegar á frum­gögnum um Hafn­ar­fjarð­ar­málið og hins vegar á við­tölum við Braga, föð­ur­inn og föð­urafann. Haft var eftir Braga að þegar hann skipti sér af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu hefði hann ekki búið yfir gögnum um málið og ekki viljað vita hvort fað­ir­inn hefði hugs­an­lega brotið gegn dætrum sínum. „Ég vissi ekk­ert hvort pabb­inn í þessu til­viki hefði gert eitt­hvað á hlut þessa barns eða ekki. Ég var ekki dóm­bær á það og hafði ekki aðgang að neinum gögnum og hafði í raun og veru engan áhuga á að vita það,“ sagði hann. Föð­ur­af­inn sagð­ist mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál, en Bragi neit­aði því síðar að hafa nokkurn tím­ann talað við mann­inn.

Í úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents er ekki lagt heild­ar­mat á vinnu­brögð og emb­ætt­is­færslur Braga í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu. Bent er á að í ljósi þess að vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu láð­ist að upp­lýsa máls­at­vik hafði ráðu­neytið ekki full­nægj­andi grund­völl til að stað­hæfa að Bragi hefði  farið út fyrir starfs­svið sitt eða brotið gegn þagn­ar­skyldu sinni með sam­skipt­unum við föð­urafann. Ráðu­neytið hafi ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni við athugun máls­ins né virt and­mæla­rétt Braga. 

Í úttekt­inni eru birt skjöl um afskipti Braga Guð­brands­sonar af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu sem eru þau sömu og Stundin byggði atvika­lýs­ing­una á þann 27. apríl. Um er að ræða einu skráðu sam­tíma­gögnin um afskipti Braga af umræddu máli.

Umfjöllun Stund­ar­innar olli nokkru fjaðrafoki í lok apríl, einkum vegna þess að í ljós kom að Ásmundur Einar Daðason hafði ekki afhent vel­ferð­ar­nefnd Alþingis gögn um afskipti Braga þegar fjallað var um málið á fundi nefnd­ar­innar í febr­úar og jafn­framt haldið því leyndu að vel­ferð­ar­ráðu­neytið teldi Braga hafa farið út fyrir starfs­svið sitt með afskipt­unum af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu.

Frétta­flutn­ingur Stund­ar­innar, upp­taka máls­ins á Alþingi og úttekt óháðrar úttekt­ar­nefndar urðu til þess að í ljós kom að ráðu­neyt­inu mistókst að rann­saka með eðli­legum hætti þær ávirð­ingar sem bornar voru á Braga. Fyrir vikið verða nú kvört­un­ar­efni barna­vernd­ar­nefnd­anna tekin til athug­unar að nýju. Þrátt fyrir þetta hefur Bragi sjálfur lýst því yfir að mál­inu sé „lokið“ og sakað fjöl­miðla um að flytja „fals­fréttir“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár