„Hail Trump!“ Hægri öfgamenn fagna og útfæra boðskap verðandi Bandaríkjaforseta

Ræða leiðtoga hægri öfgamanna í Banda­ríkjunum tengir boðskap Donalds Trump við fasisma.

Richard Spencer
Richard Spencer Hélt ræðu fyrir öfga­sinn­aða þjóð­ern­is­sinna um helg­ina. Mynd: The Atlantic

„Heill sé Trump! Heill sé fólkinu okkar! Heill sé sigrinum!“ kallar Richard Spencer, forseti National Policy Institute, í ræðu sinni á ársfundi samtak­anna í Washington um helgina, þar sem jakkafata­klæddir, hægri fasistar hittust og fögnuðu því meðal annars að Donald Trump hefði verið kjörinn forseti Banda­ríkjanna.

Ræðunni hefur nú verið dreift á Facebook af frétta­tímaritinu The Atlantic. Í ræðunni færir Spencer orðræðu Donalds Trump lengra í átt til fasisma. 

Donald Trump hefur í ræðum sínum endur­tekið að fjöl­miðlar séu „lyga­fjölmiðlar“. Þá hefur hann sakað þá um heimsku sem eru andvígir boðskap hans og gert lítið úr þeim á ýmsan annan hátt.

„Stóru fjöl­miðlarnir, sem við ættum kannski að nota uppruna­lega þýska heitið yfir -Lügenpresse...“ segir Spencer í ræðunni, en slagorðið var meðal annars notað af nasistum til þess að grafa undan trúverðug­leika fjölmiðla í upprisu þeirra í Þýska­landi á milli­stríðs­árunum. Adolf Hitler notaði slagorðið strax árið 1922. Stuðnings­menn Trumps hafa einnig sungið slagorðið Lügenpresse á fundum hans.

Richard Spencer notar sambærilegt orðalag í ræðu sinni og Donald Trump, en gengur lengra og lýsir andstæðingum sínum sem ómanneskjulegum. „Það er ekki bara að þeir eru vinstri sinnaðir og veikgeðja, það er ekki bara að þeir eru raun­verulega heimskir, maður veltir fyrir sér hvort þetta fólk sé fólk yfirhöfuð,“ sagði hann undir hlátri viðstaddra. 

Sigur Donalds Trump hefur valdið aukningu á haturs­glæpum í Banda­ríkjunum, en haturs­glæpum hafði þegar fjölgað fyrir kjör hans. 

Hér fyrir neðan má sjá stuðnings­myndband fyrir Donald Trump þar sem hann leggur áherslu á heimsku annarra og „lyga­fjölmiðla“. „Pressan lýgur, þeir eru hræðilegt fólk... Það er mjög heimskt fólk að semja fyrir okkur í þessu landi.“ 

Hér má sjá myndband af atvikum þar sem Donald Trump hefur heillað fylgis­menn sína meðal annars með því að hóta mótframbjóðanda sínum fangelsis­vist og gagnrýna það sem er „pólitískt rétt“. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakjör í BNA 2016

ErlentForsetakjör í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?

Á dögunum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þingmaður Pírata, úr ræðustól á Alþingi að Donald Trump Bandaríkja­forseti væri fasisti. Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðis­flokksins andmælti því, og nokkrir aðrir sömuleiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vefsíðan Slate viðtal sem blaða­maðurinn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræðinginn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svipuðum slóðum og fasistar eða nasistar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár