Hunsaði Trump og heilsaði frekar Melaniu

Pólska forseta­frúin sleppti því að heilsa Bandaríkja­forseta fyrst, og heilsaði frekar forseta­frúnni.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti stóð með höndina útrétta þegar hann ætlaði að taka í hönd­ina á Agata Korn­hauser-Duda, for­setafrú Pól­lands, en hún gekk vísvitandi framhjá honum og heilsaði frekar forseta­frúnni.

Trump er nú kominn til Hamborgar þar sem hann situr leiðtoga­ráðstefnu G20-ríkjanna. Hann hittir Vladimír Pútín eftir hádegið í dag.

Trump og Mel­ania Trump, eig­in­kona for­set­ans, voru í heim­sókn í Póllandi, þegar atvikið átti sér stað, en þau fara svo á fund G-20-ríkja sem fer fram í Ham­borg í Þýska­landi um helg­ina.

Trump heilsaði Andrzej Duda, for­seta Pól­lands, og ætlaði því næst að taka í hönd Korn­hauser-Duda. Þau heilsuðust ekki fyrr en pólska forseta­frúin var búin að heilsa Melaniu, og tala við hana um stund.

Atvikið hefur vakið mikla athygli á samfélags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár