G20: Trump og Pútín funda í dag

Leið­toga­ráð­stefna G20-ríkj­anna hefst í dag. Donald Trump og Vladimír Pútín hitt­ast þar í fyrsta sinn sem for­setar.

Leiðtogar G20 ríkjanna komu til Hamborgar í gær. Leiðtogafundurinn hefst í dag. Trump og Pútín funda saman kl. 13:45 í dag.
Leið­togar G20 ríkj­anna komu til Ham­borgar í gær. Leið­toga­fund­ur­inn hefst í dag. Trump og Pútín funda saman kl. 13:45 í dag. Mynd: EPA

Leið­toga­fundur 20 stærstu iðn­velda heims, G20-ríkj­anna, hefst í Hamborg í dag. Þar mun Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, hitta starfs­bróður sinn frá Banda­ríkj­unum, Donald Trump, í fyrsta sinn eftir að sá síð­ar­nefndi var svar­inn í emb­ætti.

[links]Trump var í opin­berri heim­sókn í Póllandi í gær. Í ávarpi sem hann flutti var hann gagn­rýn­inn á stjórn­völd í Kreml og sagð­ist ætla að leggja áherslu á að Rússar myndu láta af öllum vöðva­sýn­ingum við landa­mæri grann­ríkja sinna, hætta afskiptum sínum í átök­unum í Úkraínu og hætta stuðn­ingi sínum við óvin­veitt stjórn­völd í Sýrlandi og Íran.

Fyrir fund­inn hafði Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands og gest­gjafi þjóð­ar­leið­tog­anna í Hamborg, lagt til að á dag­skrá fund­ar­ins yrði fjallað um lofts­lags­mál og flótta­manna umfram annað. Þetta væru stærstu verk­efnin sem þessi 20 öfl­ug­ustu hag­kerfi heims ættu við að etja.

Gert er ráð fyrir að Donald Trump muni fá að heyra gagn­rýni á lofts­lags­stefnu sína úr mörgum hornum á ráð­stefn­unni. Merkel hefur sagst telja mis­mun­andi leiðir færar þegar kemur að úrlausn ágrein­ings­ins þar á milli.

„Við erum enn að semja,“ sagði Merkel þegar hún var spurð um hver umræðu­efni ráð­stefn­unnar yrðu í gær. „Það eru mörg mál sem við eigum mögu­leika á að ræða. Við vitum að Banda­ríki hafa dregið sig úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Allir aðrir, í það minnsta sem mér og fleirum er kunn­ugt um, standa enn með sam­komu­lag­inu. Hvernig þetta fer allt saman er eitt­hvað sem við látum ykkur svo vita þegar við höfum lokið okkar sam­skiptum.“

Lög­gæslan í Hamborg er gríð­ar­lega mikil og hefur verið í aðdrag­anda ráð­stefn­unnar. Auk þess að þjóð­ar­leið­togar efna­hags­lega öfl­ug­ustu ríkja heims leggi land undir fót, hafa mót­mæl­endur og and­kap­ít­al­ískar hreyf­ingar flykkst til Ham­borgar. Lög­reglan gerir ráð fyrir að nærri því 100.000 mót­mæl­endur muni láta sjá sig á götum borg­ar­innar um helg­ina.

Nú þegar hefur hlaupið í kekki milli lög­reglu og mót­mæl­enda. Í gær, fimmtu­dag, spraut­uðu lög­reglu­menn úr bruna­slöngum að mót­mæl­endum til að dreifa þeim.

Fríverslun stórmál

Annað mál sem Merkel mun þurfa að koma á dag­skrá eru við­fangs­efni frí­versl­unar í heim­inum. Forseti Banda­ríkj­anna hefur talað fyrir frek­ari ein­angrun Banda­ríkj­anna í efna­hags­legum skiln­ingi. Merkel mun þurfa að beita öllum ráðum til það láta ekki bit­urð eða heift ráða ferð­inni í sam­ræðum leið­tog­anna.

Merkel tók á móti Donald Trump á flug­vell­inum í Hamborg og ræddi við hann um ráð­stefn­una fram undan, Norður-Kóreu, Mið-Aust­ur­lönd og átökin í Úkraínu.

Kjarninn mun segja frá fram­vindu ráð­stefn­unnar hér á vefnum um helg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár