Átök í uppsiglingu á ráðstefnu G20-ríkja

Trump hittir Pútín í fyrsta sinn sem for­seti í Þýska­landi í næstu viku. Dagskrá ráð­stefnu G20 ríkj­anna fjallar um lofts­lags­breyt­ingar, frí­verslun og flótta­menn.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, verður gestgjafi þjóðarleiðtoga í Hamborg í næstu viku.
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, verður gest­gjafi þjóð­ar­leið­toga í Hamborg í næstu viku. Mynd: EPA

Lofts­lags­breyt­ingar, frí­verslun og hnatt­rænn flótta­manna­vandi verða aðal­um­fjöll­un­ar­efnin á ráð­stefnu 20 stærstu iðn­velda heims, G20, sem haldin verður í Hamborg í Þýska­landi í næstu viku.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, tekur þá á móti þjóð­ar­leið­togum 19 ríkja heims og föru­neyti þeirra.

Með þessa dag­skrá að vopni mun Merkel eiga erfitt að stýra fram hjá ágrein­ingi við Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna. Trump hefur fjallað um öll þessi mál síðan hann tók við emb­ætti vest­an­hafs og snúið frá stefnu fyrri stjórn­valda þannig að Banda­ríkin eru nú á leið ein­angr­unar í alþjóða­sam­skiptum.

Ráð­stefnan í Hamborg verður jafn­framt fyrsti fundur Donalds Trump og Vla­dimírs Pútín eftir að Trump var kjör­inn for­seti í vetur.

Á fundi sjö stærstu iðn­velda heims, G7, í maí tók­ust leið­togar Evr­ópu­ríkja og Donald Trump á um lofts­lags­mál og flótta­manna­vand­ann. Líklegt er að enn verði tek­ist á í Hamborg, enda hefur Trump sagt Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu í milli­tíð­inni.

[adspot]

Angela Merkel á breiðan stuðn­ing vís­ann frá öðrum þjóðum sem sækja G20 ráð­stefn­una. Þegar kemur að lofts­lags­breyt­ingum eru Kína og Indland mik­il­vægar banda­lags­þjóðir. Bæði ríki taka þátt í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu og hafa und­ir­strikað fylgi sitt við mál­stað­inn eftir að Trump dró Banda­ríkin út.

Kína ber ábyrgð á stærsta hluta útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­und nokk­urs ríkis, rétt á undan Banda­ríkj­unum. Indland er þriðja mesta meng­un­ar­ríki heims. Ef þessar þjóðir myndu einnig segja sig frá Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu myndi það falla.

[box]

Und­an­farið hefur Merkel treyst böndin við Kína og Indlandi. Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, var nýlega í opin­berri heim­sókn í Berlín og Li Keqiang, for­sæt­is­ráð­herra Kína, kom einnig í opin­bera heim­sókn.

Leiðtogi hins frjálsa heims

Þó Donald Trump hafi ekki verið for­seti Banda­ríkj­anna lengi þá hefur hann haft tals­verð áhrif á lands­lag alþjóða­stjórn­mála. Nokkur Evr­ópu­ríki hafa ákveðið að snúa sér enn frekar að öðrum banda­mönnum þegar kemur að sam­starfi á alþjóða­vett­vangi og frá Banda­ríkj­unum.

Trump hefur verið var­aður við. Antonio Guterres, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, fjall­aði um stöðu Banda­ríkj­anna á sínum fyrsta blaða­manna­fundi sem aðal­rit­ari.

„Ef Banda­ríkin aftengja sig í hinum ýmsu mál­efnum sem tengj­ast utan­rík­is­málum og alþjóða­sam­skiptum, þá er óum­flýj­an­legt að aðrir leik­menn taka við kefl­inu,“ sagði Guterres. „Ég held að það verði ekki gott fyrir Banda­ríkin og ég held að það sé ekki gott fyrir heim­inn.“

Þýsk stjórn­völd segj­ast ekki vera að leita eftir árekstrum á ráð­stefnu G20-land­anna. Sigmar Gabriel, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, segir Þýska­land heldur ekki ætla að stilla sér upp and­spænis Banda­ríkj­unum.

Merkel hefur þó verið nefnd sem næsti „leið­togi hins frjálsa heims“. Það er óform­legur tit­ill sem for­seti Banda­ríkj­anna hefur borið í alþjóða­stjórn­málum und­an­farna ára­tugi. Í Evrópu hefur Merkel nokkuð gott traust þegar kemur að alþjóða­málum. Í könnun Pew Research Center kemur fram að 52% Evr­ópu­búa treysta Merkel til að „gera hið rétta í alþjóða­málum“.

Merkel virð­ist einnig telja að nú séu tíma­mót í alþjóða­sam­skiptum Þýska­lands. „Þeir tímar þar sem við getum treyst full­kom­lega á aðra eru liðnir, í vissum skiln­ingi. Það er það sem ég hef upp­lifað und­an­farna daga,“ lét Merkel hafa eftir sér á fundi með flokks­fólki sínu eftir G7-fund­inn í maí. „Þess vegna get ég aðeins sagt: Við Evr­ópu­búar verðum raun­veru­lega að taka örlögin í okkar hendur.“

Í for­mála kynn­ing­ar­bæk­lings sem dreift er í tengslum við G20-ráð­stefnunna skrifar Merkel um sam­starf stærstu iðn­velda heims og þau mál sem brenna helst á alþjóða­sam­fé­lag­inu. „Þessi verk­efni verða aug­ljós­lega ekki unnin af löndum á eigin veg­ferð eða með ein­angr­un­ar­hyggju og vernd­ar­hyggju. Ekki er hægt að snúa aftur í heim­inn fyrir hnatt­væð­ing­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár