Bezos jók virði eigna sinna um 8 milljarða á dag

Óhætt er að segja að uppgangurinn hjá Amazon hafi komið sér vel fyrir stofn­andann og forstjórann, Jeff Bezos.

Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon.
Jeff Bezos, stofn­andi og for­stjóri Amazon. Mynd: EPA.

Árið 2016 var ótrúlegt ár fyrir hinn 56 ára gamla Jeff Bezos, stofnanda og forstjóra Amazon. Hrein eign hans jókst um 27 milljarða Bandaríkja­dala og stóð í 75 milljörðum Bandaríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 8.200 milljörðum króna.

Einungis 24 ríkustu menn heims eiga meiri eignir en sem nemur þessari árlegu aukningu hjá Bezos, sem nú er þriðji ríkasti maður heims á eftir Warren Buffett og Bill Gates.

Eignir Bezos eru að miklu leyti bundnar í hluta­bréfum í Amazon en hann á tæplega 17 prósent í smásölu- og tækni­risanum. Amazon varð á árinu 2016 það fyrirtæki sem nær því á stystum tíma, að afla meira en 100 milljarða Bandaríkja­dala í tekjur á einu ári.

Bezos er einnig eigandi Washington Post, Blue Origin, geimvísinda­fyrir­tækisins, og fleiri fyrir­tækja. Hann hefur rekið Amazon síðan árið 1994 en þá hætti hann störfum hjá vogunar­sjóði í New York og hóf að selja bækur í gegnum netið. Óhætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan, því Amazon er nú mitt í ævintýra­legu vaxtar­skeiði.

Fyrir­tækið ætlar sér miklu stærri hluti á smásölu­markaði, og er þar að auki að þróa ýmsar tækni­nýjungar á sviði gervi­greindar. Í lok síðasta árs voru starfs­menn á Seattle-svæðinu, þar sem fyrir­tækið er með höfuð­stöðvar, 35 þúsund talsins, en í lok árs 2019 verða þeir yfir 70 þúsund, samkvæmt vaxtar­áformum fyrir­tækisins. Mesta fjölgunin verður þó annars staðar í Banda­ríkjunum en fyrir­tækið vinnur nú að eflingu á söluneti sínu með byggingu vöruhúsa vítt og breitt um Banda­ríkin.

Bezos hefur sagt að stefnan sé sú að ráða 100 þúsund nýja starfs­menn á næstu átján mánuðum, sem verða starfandi í vöruhúsum fyrir­tækisins. Ráðningarnar eru liður í undir­búningi fyrir­tækisins fyrir stig­vaxandi heimsendingar­þjónustu í smásölu­viðskiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár