Réttarhöld í Samherjamálinu í Namíbíu hefjast í apríl

Ákveðið hefur verið að réttarhöld hefjist í spillingar­máli sem tengist mútu­greiðslum Samherja í Namibíu í apríl. Saksóknari boðar að þrír til viðbótar verði ákærðir í málinu, auk þeirra sjö sem hafa setið í gæslu­varðhaldi um lengri tíma.

Tveir ákærðu í málinu, Bernhard Esau fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og tengdasonur hans Tamson Hatuikulipi, ráða ráðum sínum. Þeir og aðrir sakborningar verða áfram í haldi.
Tveir ákærðu í mál­inu, Bernhard Esau fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og tengda­sonur hans Tamson Hatuikulipi, ráða ráðum sínum. Þeir og aðrir sak­born­ingar verða áfram í haldi. Mynd: Werner Menges/The Namibian

Réttarhöld yfir sjö mönnum sem hafa verið í haldi namibískra yfirvalda vegna spillingar og mútu­greiðslna í tengslum við úthlutun afla­heimilda til félaga tengdum Samherja í Namibíu hefjast 22. apríl á næsta ári. Mennirnir sjö, þar af tveir fyrr­verandi ráðherrar landsins, verða áfram í haldi yfirvalda þangað til.

Þetta varð ljóst við fyrirtöku í málinu í Windhoek höfuðborg Namibíu í morgun, samkvæmt fréttum namibískra fjölmiðla, meðal annarra Informanté.

Einnig kom þar fram af hálfu ákæru­valdsins að þrír menn til viðbótar verði ákærðir í málinu. Þeirra á meðal er lögfræðingur að nafni Maren de Klerk, sem fór til Suður-Afríku í upphafi árs og hefur verið þar síðan. Saksóknari sagðist búast við því að tveir menn yrðu hand­teknir á næstu dögum.

Flestir mannanna hafa setið í gæslu­varðhaldi frá því í nóvember í fyrra, en sjömenningarnir eru Bernhard Esau fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra, Sacky Shanghala fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, James Hatuikulipi fyrr­verandi stjórn­andi ríkis­útgerðarinnar Fischor og Tamson Hatuikulipi frændi hans, sem einnig er tengda­sonur Bernhard Esau, og þeir Ricardo Gustavo, Pius Mwatelulo og Mike Nghipunya. Flestir þeirra hafa þegar verið ákærðir.

Samkvæmt frétt á namibíska frétta­vefnum NBC hefur ríkis­saksóknari Namibíu nú lokið rannsókn sinni á málinu, en fyrir daginn í dag höfðu namibískir frétta­miðlar sagt frá því að ef ákæru­valdið myndi óska eftir frekari fresti til þess að ljúka rann­sókninni gæti farið svo að mönnunum yrði sleppt úr haldi, en lögmenn þeirra hafa sagt mála­rekstur yfirvalda hafa dregist úr hófi fram.

Fischor og Fishrot

Síðan Samherja­skjölin komu upp á yfir­borðið í nóvember í fyrra eftir umfjöllun Kveiks, Stundarinnar og fleiri miðla um skjöl sem Wikileaks fékk í hendur frá uppljóstraranum Jóhannesi Stef­ánssyni, hefur namibíska lögreglan verið með málið til rann­sóknar.

Flestir sakborninganna voru hand­teknir í þeim sama mánuði og síðan þá hafa yfirvöld undir­byggt mála­reksturinn gegn þeim – og öðrum.

Um tvö aðskilin mál að ræða, sem gerður er skýr greinar­munur á í frétta­flutningi Namibian í dag. Annars vegar er um að ræða Fishcor-málið og hins vegar Fishrot-málið, að sögn blaðsins.

Málið sem nú hefur verið ákveðið að taka til meðferðar í apríl er Fishcor-málið, en það lýtur að misnotkun stjórn­málamanna og annarra ákærðra á aðstöðu sinni, til þess að hagnast sjálfir á úthlutun afla­heimilda með því að þiggja mútur.

Í Fishrot-málinu er hins vegar sérstak­lega til umfjöllunar sá vafasami milliríkja­samningur sem gerður var á milli Namibíu og Angóla um hrossa­makrílkvóta. Ríkis­saksóknari Namibíu segir samninginn svika­myllu sem sett hafi verið upp með virkri þátttöku Samherja. Í því máli hefur ríkis­saksóknari Namibíu sagt ætlan sína að ákæra félög tengd Samherja og stjórn­endur þeirra.

Samkvæmt frétta­skoti The Namibian á Twitter óskaði saksóknari eftir fresti til 26. mars til þess að leggja fram endanlegar ákærur í Fishrot-málinu, en fékk frest til 5. febrúar.

Viðbót kl. 14:05: Í nýrri frétt Informanté kemur reyndar fram að saksóknari hafi í morgun sagt að ríkis­saksókn­arinn hafi í hyggju að slá málunum tveimur saman í eitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár