Jóhanna spyr hvort Drífa verði næsti forseti ASÍ

Þrýst á Drífu Snædal um að gefa kost á sér. Jóhanna Sigurðar­dóttir, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, spyr hvort í henni sé ekki kominn næsti forseti Alþýðu­sambandsins. Drífa vill hvorki segja af eða á um framboð.

Næsti forseti ASÍ?
Næsti for­seti ASÍ? Fullyrt er að þrýst sé á Drífu Snædal að gefa kost á sér sem for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á sam­bands­þingi í haust. Hún játar því hvorki né neitar að hún hygg­ist fara fram.

Fullyrt er að þrýst sé á Drífu Snædal, framkvæmda­stýru Starfs­greina­sambandsins, um að gefa kost á sér í stól forseta Alþýðu­sambands Íslands á sambands­þingi í haust. Síðast í gær velti Jóhanna Sigurðar­dóttir, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, því upp á Facebook hvort Drífa yrði ekki næst til að setjast í þann stól. Uppskar færsla Jóhönnu ánægju meðal lesenda. Drífa vill hvorki segja af né á í samtali við Stundina.

Tilefni þess að Jóhanna veltir upp þessari hugmynd er sú að Drífa tjáði sig í gær um fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar og er ekki par hrifin. Drífa birti kafla úr áætluninni þar sem sagði að ríkis­stjórnin leggði áherslu á að gott samstarf tækist milli stjórn­valda og aðila vinnu­markaðarins „til að varð­veita efna­hags­legan stöð­ug­leika og efla vel­ferð. Þannig megi stuðla að far­sælli nið­ur­stöðu í kjara­samn­ingum næstu ára sem varð­veiti óvenju mikla kaup­mátt­ar­aukn­ingu síð­ustu ára með hóf­legum launa­hækk­unum og skili heim­il­unum áfram auknum kaup­mætti.“ Í fram­haldinu spurði Drífa: „Ha? Hóf­legum launa­hækk­un­um? Án þess að nýta skatt­kerfið til tekju­jöfn­unar heldur þvert á móti ýkja mis­skipt­ing­una? Stöð­ug­leika hvers er verið að vernda? Vel­ferð hvers? Hvaða góða sam­starf á að byggja á þessum grunn­i?“

Kemur að því að taka þarf ákvörðun

Drífa var í samtali við Stundina ekki tilbúin til að játa því að hún hyggði á framboð í forseta­stólinn. Hún neitaði því hins vegar ekki að það kæmi til greina. „Það er ekki tímabært núna að segja af eða á um það en sá tíma­punktur kemur að ég þarf að hugsa þetta, eða taka ákvörðun. Sá tíma­punktur er samt ekki núna.“

„Það er ákveðinn samkvæmis­leikur í gangi um hvað verður í haust“

Spurð hvort hún hafi fengið áskoranir um að gefa kost á sér vildi Drífa lítið gefa út um það. „Það er ákveðinn samkvæmis­leikur í gangi um hvað verður í haust. Ég held ég segi ekki meira í bili, ég er ekki búin að taka ákvörðun.“

Þegar gengið var enn frekar á Drífu og blaða­maður sagði að af svörum hennar mætti þó greina að hún afsegði ekki framboð hló hún við. „Ég held að það segi enginn nei á þessum tíma­punkti, það eru ýmis nöfn nefnd og þannig er nú bara það.“

Miklar deilur innan ASÍ

Mikill styrr hefur staðið innan verkalýðs­hreyfingarinnar upp á síðkastið og hefur Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, legið undir háværri gagnrýni af hálfu forsvars­manna sumra stærstu aðildar­félaga sambandsins. Þannig vilja fjórir forystu­menn verkalýðs­félaga að forystu ASÍ verði skipt út á sambands­þinginu í haust og fer Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, einna fremstur þar í flokki. Ragnar hefur verið afar gagn­rýninn á Gylfa síðustu misseri, svo mjög að Gylfi sjálfur lýsti því sem persónulegri heift og norna­veiðum í viðtali við Stundina. Í téðu viðtali var Gylfi hins vegar ekki tilbúinn að segja til um hvort hann hyggðist gefa kost á sér áfram sem forseti í haust.

Drífa hefur starfað sem framkvæmda­stýra Starfs­greina­sambandsins frá árinu 2012. Áður starfaði hún meðal annars sem framkvæmda­stýra Vinstri­hreyfingarinnar græns framboðs og Samtaka um kvenna­athvarf auk þess sem hún var formaður Iðnnema­sambands Íslands. Drífa er viðskipta­fræðingur með meistara­gráðu í vinnu­rétti frá Háskólanum í Lundi en einnig er hún menntaður tækni­teiknari.

„Eins og að éta skít“

Það vakti mikla athygli þegar Drífa sagði sig úr Vinstri grænum í nóvember síðastliðnum. Ástæðan fyrir úrsögn Drífu var ákvörðunin um ríkis­stjórnar­samstarf flokksins með Sjálfstæðis­flokki og Framsóknar­flokki. Drífa hafði átt samleið með flokknum allt frá stofnun hans og var um tíma vara­þingmaður hans. Hún sagði í bréfi til flokks­manna að henni væri óvært í flokknum eftir ákvörðunina um ríkis­stjórnar­samstarfið. „Við og við vellur gröfturinn upp í formi frændhygli, innherja­viðskipta, skatta­skjóla, auðvalds­dekurs, útlendingar­andúðar eða skjald­borgar um ofbeldis­menn. Þá verður VG í þeirri stöðu að verja samstarfs­flokkinn og mörkin munu sífellt færast til í samstarfinu líkt og í ofbeldis­sambandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil, ef stjórnin endist svo lengi,“ skrifaði Drífa.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár