Fjósamaður, fjöllistakona og frú í framboði

Rúmlega 70 lögfræðingar og lögmenn eru á lista fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar. Tæpur þriðjungur er í framboði fyrir Sjálfstæðis­flokkinn. Sjö fanga­verðir eiga sæti á listum og ein göldrótt tónlistar­kona. Tvær Stellur eru í framboði.

Kattakona, hornleikari, galdrakona, fuglaathugandi og knattspyrnukona eru meðal frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningunum.
Katta­kona, horn­leik­ari, galdra­kona, fugla­at­hug­andi og knatt­spyrnu­kona eru meðal fram­bjóð­enda í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Mynd: Samsett mynd

Þau eru afar fjöl­breytt starfs­heitin og annars konar titlar þess fólks sem er á framboðs­listum til sveitar­stjórnar­kosninga sem fram fara í dag. Sem dæmi eru 249 fram­bjóðendur kennarar, 213 bændur bjóða fram krafta sína og tíu tamninga­menn. 72 lögfræðingar og lögmenn eru í kjöri og 23 húsmæður. Sömuleiðis eiga 23 núverandi eða fyrr­verandi alþingis­menn sæti á listunum.

Aðeins einn horn­leikari er í framboði. Það er hann Helgi Þ. Svavarsson, sem er á lista Vinstri grænna á Akureyri. Það verður að teljast ólíklegt að hann nái kjöri. Það hefur ekkert með hornið hans að gera eða hvernig hann leikur á það heldur þá staðreynd að hann skipar 17. sæti listans. En aðeins ellefu sæti eru í boði í bæjar­stjórninni og munu þau skiptast á milli þeirra lista sem koma inn mönnum.

Einn fram­bjóðandi titlar sig fjósamann og annar skilta­kall. Þá er ein fjöl­listakona í framboði og ein frú. Sjö fanga­verðir eru á lista og fimm ljósmæður. Fugla­athugandi skipar sæti á lista Vinstri grænna í Árborg og tveir plötu­snúðar bjóða sig fram – annar í Hvera­gerði og hinn í Hafnar­firði.

Mest er fjöl­breytnin eflaust á Katta­listanum sem býður fram á Akureyri undir forystu Snorra Ásmunds­sonar lista­manns. Með honum á lista eru mark­þjálfi, tónlistar­maður, rithöfundur, listakona, húsmóðir, málari og svo auðvitað: Kattakona.

Viðskeytið „stjóri“ er í starfs­heiti 672 fram­bjóðenda. Mögulega eru hlutfalls­lega flestir stjórn­endur á Kjósar­listanum. Sjö skipa listann, þar af þrír framkvæmda­stjórar, einn hótel­stjóri og einn deildar­stjóri. Sá sjötti er lögfræðingur og sá sjöundi múrari.

Hlutfalls­lega er bændur flestir á Tjörneslistanum því helmingur þeirra sem bjóða sig fram stunda búskap. Tíu eru á listanum og í hópnum eru tvær húsmæður sem er einnig hátt hlutfall þeirrar stéttar miðað við önnur framboð. Sjálf­kjörið verður í Tjörneshreppi í þetta sinn því aðeins einn listi er í framboði.

Lögmenn og lögfræðingar eru hlutfalls­lega flestir á listum Sjálfstæðis­flokksins. Tuttugu slíkir, af þeim 72 sem gefa kost á sér, skipa lista flokksins víðsvegar um landið. Til saman­burðar þá eru aðeins þrír lögfræðingar og lögmenn í framboði fyrir Vinstri græn.

Sextán læknar, þar af fjórir dýra­læknar, eru í kjöri. Mun fleiri hjúkrunar­fræðingar eru á framboðs­listunum eða 49. Þá eru fjölmargir námsmenn í framboði eða samtals 232. Nám þeirra er alls konar. Einn stundar nám í húsgagna­smíði, annar í búfræði og nokkrir eru í hjúkrunar­fræði. Þá er nemi í landslags­arkitektúr á lista í Bolungarvík, flugnemi á lista í Garðabæ, þjóðfræði­nemi í framboði fyrir Vinstri græn í Hafnar­firði og nemi í almanna­tengslum fyrir Sjálfstæðis­flokkinn í Reykjavík.

Rúmlega sextíu „konur“ eiga sæti á listum. Það er að segja manneskjur sem hafa orðið „kona“ í starfs­heiti sínu: Fjöl­listakona, afgreiðslu­kona, sjúkra­flutninga­kona, hágreiðslu­kona, fyrr­verandi alþingis­kona, knattspyrnu­kona, söngkona, verkakona, listakona, lögreglu­kona, gler­listakona, athafna­kona, stjórnar­kona, fiskvinnslu­kona og leikkona. Að ógleymdri afreks­konu í Crossfit. Sú er engin önnur en Katrín Tanja Davíðs­dóttir sem tvisvar hefur sigrað á heims­leikunum í crossfit. Katrín skipar 16. sætið hjá sjálfstæðis­mönnum í Reykjavík. Ein göldrótt tónlistar­kona er svo í framboði fyrir Pírata í Reykjavík.

Fimm fram­bjóðendur eru einhvers konar „stýrur“. Á listunum er skóla­stýra, framkvæmda­stýra, kynningar­stýra og sérkennslu­stýra og auk þess ein bæjar­stýra en þann titil ber Íris Róberts­dóttir sem setið hefur við stjórnar­taumana í Vestmanna­eyjum síðustu fjögur árin.

„Stjórarnir“ eru mun fleiri eða 672 talsins enda orðið algengt í starfs­heitum fólks af öllum kynjum. Einn viðburða­stjóri er í framboði og einn upplifunar­stjóri. Svo eru 20 skip­stjórar á listum og auðvitað fjölmargir framkvæmda­stjórar auk teymis­stjóra og skóla­stjóra svo dæmi séu nefnd.

559 „fræðingar“ bjóða fram krafta sína, þar af fjórir skóg­fræðingar og svo vill til að þeir eru flestir ofarlega á þeim listum sem þeir bjóða sig fram fyrir.

Alls konar sérfræðingar í umhverfinu

Umhverfis­málin hafa verið áberandi í samfélags­umræðunni og stjórn­málum síðustu ár. Loftslags­ógnin vofir yfir og orku­skipti eru m.a. sú leið sem feta á út úr þeim vanda. Skiptar skoðanir eru svo hvort virkja þurfi meira til orku­skipta og því víst að náttúru­vernd og orkumál verða fyrirferðar­mikil í pólitíkinni á næstu misserum, áfram sem hingað til. Þeir sem bera þekkingu á þessum mála­flokki í starfs­heiti sínu eru m.a. tveir sérfræðingar hjá Umhverfis­stofnun, annar er í framboði fyrir Vinstri græn á Akureyri og hinn fyrir Samfylkinguna í Reykjavík. Þá er umhverfis­verk­fræðingur á lista Framsóknar­flokksins í Garðabæ og annar slíkur í framboði fyrir VG í Reykjavík. Umhverfis- og auðlinda­fræðingur býður sig fram fyrir Samfylkinguna í Mosfellsbæ og umhverfis- og orku­fræðingur fyrir Sjálfstæðis­flokkinn í Múlaþingi. Umhverfis­skipulags­fræðingur er á lista Fram­sóknar í Árborg og vara­formaður Ungra umhverfis­sinna skipar 14. sæti á lista Samfylkingarinnar í sama sveitar­félagi.

Fólk náttúrunnar

Náttúran sjálf er svo í starfs­titli fimm fram­bjóðenda. Náttúru­fræðingur er á Vopna­fjarðar­listanum og annar slíkur er í framboði fyrir Vinstri græn í Múlaþingi. Náttúru- og land­fræðingur skipar annað sæti á lista VG í Fjarða­byggð og náttúru­landa­fræðingur fer fram fyrir Pírata í Akureyrarbæ. Náttúruvár­sérfræðingur er svo í kjöri fyrir Samfylkinguna í Kópavogi.

Svo má geta þess að tvær Stellur eru í framboði. Viðskipta­fræðingurinn Stella Stef­ánsdóttir skipar 8. sæti á lista sjálfstæðis­manna í Garðabæ og Kolbrún Stella Indriðaþóttir, einnig viðskipta­fræðingur en líka bóndi, er á lista Framsóknar­flokksins í Húnaþingi vestra.

Nöfn fram­boðanna eru svo einnig skemmtilega ólík og alls konar.

Byggða­listinn, Bæjar­listinn, Íbúa­listinn, Nýtt afl og Ný sýn eru þeirra á meðal.

Í sveitar­stjórnar­málunum eru flokks­línurnar oft ekki jafn skýrar og í landspólitíkinni og bera nöfn lista þess glögglega merki: Framsókn og frjálsir, Framsókn og aðrir framfara­sinnar, Framsókn og félags­hyggju­fólk og listi Framsóknar­félags Grinda­víkur. Í þessum svipaða anda eru svo Framfara­listinn, Framboðs­listi um framsýni og fyrir­hyggju og Listi framfara­sinna.

Þá bjóða VG og óháðir fram, Sjálfstæðis­menn og óháðir, Sjálfstæðis­menn og aðrir lýðræðis­sinnar, Samfylking og óháðir, Samfylkingin og annað félags­hyggju­fólk, Miðflokkurinn og óháðir, Miðflokkurinn og sjálf­stæðir og Píratar og óháðir.

Mörg framboð vilja kenna sig við sitt sveitar­félag með einhverjum hætti og fara ýmsar leiðir að því:

Okkar Hvera­gerði, Saman í sveit, Vinir Kópavogs, Vinir Mosfells­bæjar, Áfram Árborg, Stranda­bandalagið, Strandar­listinn, Ströndungur og Fyrir Heimaey eru dæmi þar um.

Frum­legheitin eru svo enn meiri hjá nokkrum framboðum:

Gerum þetta saman (Blönduós) Katta­listinn (Akureyri), Máttur meyja og manna (Bolungarvík), Rödd unga fólksins (Grindavík), Gróska, Allra (Mýrdals­hreppur), Listi samfélagsins, Umbót, Bein leið, Öflugt samfélag, Umhyggja – umhverfi – uppbygging og ekki má gleyma Kex framboði í Sveitar­félaginu Horna­firði. Slagorð þess nýja framboðs er: „Við viljum að allir íbúar hafi rödd, þess vegna er Kex við öll.“

Í dag verða kjörnar 64 sveitar­stjórnir. Í tveimur sveitar­félögum kom aðeins fram einn framboðs­listi og fara því engar kosningar þar fram því fram­bjóðendur teljast sjálf­kjörnir. Í þrettán sveitar­félögum kom ekki fram neinn framboðs­listi og þar verða því haldnar svokallaðar óbundnar kosningar, persónu­kjör. Allir með lögheimili á staðnum og eru á kosninga­aldri eru framboði nema þeir skorist sérstak­lega undan því og hafi til þess gildar ástæður. Í þeim sveitar­félögum þar sem persónu­kjör fer fram eru yfir 3.000 manns því „í framboði“. Á þeim 179 listum sem boðnir voru fram á landinu öllu eiga svo yfir 6.000 manns sæti. Það er því dágott hlutfall íbúa landsins sem er í kjöri með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár