Framsókn og Vinstri græn hafa tapað um átta prósentustigum af fylgi frá síðustu kosningum

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem tapar ekki fylgi frá kosn­ingum er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Rík­is­stjórnin næði ekki meiri­hluta á þingi ef kosið yrði í dag. Sam­fylk­ingin hefur bætt lang­mestu fylgi við sig og er næst stærsti flokkur lands­ins.

Það er sennilega ekki gleði með stöðu mála í könnunum hjá formönnum Framsóknarflokksins og Vinstri grænna um þessar mundir.
Það er senni­lega ekki gleði með stöðu mála í könn­unum hjá for­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna um þessar mundir. Mynd: Eyþór Árnason

Rúmir þrettán mán­uðir eru liðnir frá síð­ustu kosn­ingum. Samkvæmt nýj­ustu könnun Gallup hafa rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír tapað alls 7,7 pró­sentu­stigum af fylgi. Mest hafa Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, tapað eða 4,2 pró­sentu­stigum. Fylgi þess flokks mælist nú 8,4 pró­sent sem gerir hann, ásamt Viðreisn, að fimmta til sjötta stærsta flokknum á þingi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem bætti miklu við sig í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra, hefur einnig fallið nokkuð skarpt það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn fékk 17,3 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust og bætti þá við sig 6,6 pró­sentu­stigum milli kosn­inga. Enginn annar flokkur bætti við sig meiru en 1,9 pró­sentu­stigi, ef frá er tal­inn Sós­í­alista­flokkur Íslands sem var að bjóða fram í fyrsta sinn og fékk 4,1 pró­sent atkvæða. Gott gengi flokks­ins hélt áfram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor sem skil­aði honum meðal ann­ars inn í meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

[adspot]Nú er Framsókn að mæl­ast með 13,8 pró­sent fylgi og flokk­ur­inn er ansi langt frá því að vera sá næst stærsti í land­inu, líkt og hann var eftir síð­ustu kosn­ingar.

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem hefur engu fylgi tapað á kjör­tíma­bil­inu er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem mælist með nákvæm­lega sama fylgi og hann fékk upp úr kjör­köss­unum fyrir þrettán mán­uðum, eða 24,4 pró­sent. Það er þó næst minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur fengið frá upp­hafi í þing­kosn­ing­unum og í þeim for­manns­slag Bjarna Bene­dikts­sonar og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar sem nú stendur yfir í aðdrag­anda lands­fundar Sjálf­stæð­is­flokks, sem fer fram um næstu helgi, hefur fylgið verið gert að helsta ásteyt­ing­ar­stein­inum. Guð­laugur Þór segir það allt of lítið og beri þess merki að flokk­ur­inn nái ekki lengur til verka­stétta sem kusu hann einu sinni. Bjarni segir að horfa þurfi til þess að flokk­ur­inn sé enn sá stærsti í afar breyttu póli­tísku lands­lagi, kom­ist þrátt fyrir allt alltaf í rík­is­stjórn og tryggi sér þannig áhrif.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist 46,6 pró­sent og sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup fyrir októ­ber­mánuð myndi það, í ljósi þess að flokk­arnir á þingi yrðu níu ef kosið yrði í dag, ein­ungis skila þeim 30 þing­mönnum, eða sex færri en hún hefur nú. Alls 32 þarf til að mynda meiri­hluta og því mælist rík­is­stjórnin fallin eins og er.

Samfylkingin tekið til sín þorra þess sem stjórnin hefur tapað

Sá flokkur sem hefur bætt lang­mestu fylgi við sig á kjör­tíma­bil­inu sam­kvæmt könn­unum er Sam­fylk­ingin, en hún kaus Kristrúnu Frosta­dóttur sem nýjan for­mann um síð­ustu helgi og skipti raunar út allri for­ystu sinni á lands­fundi. Alls mælist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar nú 16,6 pró­sent, sem er 6,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber. Fylgið hefur ekki mælst hærra síðan í byrjun árs 2021 og flokk­ur­inn hefur nú mælst sá næst stærsti í land­inu í þrjá mán­uði í röð. Þessi fylg­is­aukn­ing, og það að níu flokkar næðu inn, myndi skila Sam­fylk­ing­unni fimm fleiri þing­mönnum en hún er með í dag, eða ell­efu tals­ins.

Píratar hafa einnig bætt umtals­verðu við sig, eða 4,3 pró­sentu­stigum, og mæl­ast með 12,9 pró­sent fylgi. Þing­mönnum flokks­ins myndi fjölga úr sex í átta yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga.

[adspot]Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur sömu­leiðis þok­ast upp á við og mælist nú með fimm pró­sent stuðn­ing, sem er 0,9 pró­sentu­stigum meira en hann fékk í kosn­ing­unum í fyrra. Þessi fylg­is­aukn­ing myndi að öllum lík­indum duga til að flokk­ur­inn fengi þrjá þing­menn, en hann hefur engan í dag.

Viðreisn stendur nán­ast í stað frá kosn­ing­unum, mælist með 8,4 pró­sent sem er 0,1 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk í fyrra­haust. Þing­manna­fjöld­inn myndi verða óbreyttur, eða fimm.

Flokkur fólksins tapað næst mest allra

Tveir flokkar í stjórn­ar­and­stöðu hafa verið að tapa fylgi. Þar ber fyrst að nefna Flokk fólks­ins, sem hefur gengið í gegnum allskyns inn­an­mein það sem af er kjör­tíma­bili. Flokkur Ingu Sæland fékk 8,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra en mælist nú ein­ungis með 5,3 pró­sent stuðn­ing. Einungis Vinstri græn hafa tapað meira fylgi það sem af er kjör­tíma­bili.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar mælist nú með slétt fimm pró­sent fylgi, sem er 0,5 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi. Það myndi þó mögu­lega skila honum fleiri þing­mönnum en þing­flokk­ur­inn telur í dag, en auk for­manns­ins er ein­ungis Bergþór Ólason þar að finna. Það skýrist þó af því að Birgir Þór­ar­ins­son, sem kjör­inn var á þing fyrir Mið­flokk­inn í fyrra­haust, ákvað að skipta yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn nokkrum vikum eftir kosn­ingar.

Könnunin var gerð dag­anna 3. til 31. októ­ber 2022. Heild­ar­úr­taks­stærð var 8.267 og svar­hlut­fallið 49,9 pró­sent. Vikmörk á fylgi flokka eru 0,8 til 1,5 pró­sentu­stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár