Framkvæmdastjóri Intel segir af sér í kjölfar brots á fyrirtækjareglum

Brian Krzanich framkvæmda­stjóri Intel gerðist sekur um brot á fyrirtækja­reglum samkvæmt innri rannsókn fyrir­tækisins og lét því af störfum fyrr í dag.

Brian Krzanich, fráfarandi framkvæmdastjóri Intel.
Brian Krzanich, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri Intel. Mynd: EPA

Brian Krzanich, framkvæmda­stjóri bandaríska tölvu­fyrir­tækisins Intel, sagði af sér fyrr í dag eftir að innri rannsókn leiddi í ljós að samband hans við starfs­mann fyrir­tækisins hafi brotið í bága við fyrirtækja­reglur.

Í frétt um máliðá vef Reuters er atvikið tengd við #MeToo byltinguna, en hún átti þátt í því að skapa umræðu um óviðeigandi samskipti valda­mikilla karlmanna við samstarfs­félaga sína. Umræðan hafi leitt til mikilla hræringa í heimi stjórn­mála og viðskipta, en afsögn Krzanich sé nýjasta dæmi þess.

Intel gaf út opinbera yfir­lýsingu um málið og sagði í henni að innri rannsókn hafi staðfest brot á siða­reglum innan fyrir­tækisins sem bannar ástar­sambönd milli starfs­manna, en þeim þurfi allir yfirmenn fyrir­tækisins að fylgja eftir. Hins vegar hafi fyrir­tækið ekki gefið neinar frekari upplýsingar um rann­sóknina.

Krzanich var ráðinn framkvæmda­stjóri Intel í maí 2013 og sá um breytingu á áherslum fyrir­tækisins úr fram­leiðslu fyrir einka­tölvur í gagnavers­þjónustu. Í stjórnartíð hans hækkuðu hlutabréf Intel um meira en 100%.

Hlutabréfa­markaðurinn brást illa við fréttunum fyrr í dag, en virði hlutafjár fyrir­tækisins hefur lækkað um rúmt prósent frá opnun markaða vestanhafs fyrir einum og hálfum tíma síðan.

Stjórn Intel hefur ráðið fjármála­stjóra fyrir­tækisins, Robert Swan, sem framkvæmda­stjóri til bráða­birgða og leitar nú bæði innan og utan fyrir­tækisins að nýju framkvæmda­stjóra­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár