Fjármagnshöft aflögð og búist við lækkun vaxta

Stjórn­völd tilkynna um afléttingu fjármagns­hafta eftir sjö og hálfs árs höft. Óttinn við skaðlegar gengis­sveiflur krónunnar er enn við lýði. Ný nefnd hefur verið stofnuð til að meta peninga­stefnu.

Tilkynning um afnám hafta
Til­kynn­ing um afnám hafta Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra greindu frá afnámi fjár­magns­hafta og sam­komu­lagi við aflandskrónu­eig­endur. Mynd: Pressphotos

„Til hamingju Ísland!“ segir Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra af því tilefni að fjármagns­höft verða afnumin á Íslandi liðlega sjö og hálfu ári eftir að þau voru lögð vegna banka- og gjaldmiðilskreppunnar 2008. „Með þessu stígum við mikilvægt skref í átt til að skapa aðstæður til lækkunar vaxta,“ segir Benedikt jafnframt.

Breytingin tekur gildi á þriðjudag þegar „öll fjár­magns­höft á ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði verða af­num­in“. Stór hluti afléttingarinnar hefur hins vegar átt sér stað nú þegar. Með þessu verður fjármagns­flæði til og frá landinu gefið fjálst og innlendir aðilar geta fjárfest erlendis án takmarkana. Enn gilda hins vegar varúðar­reglur um svokölluð vaxta­muna­viðskipti, en meðal vanda íslenska hagkerfisins fyrir hrun var að þegar stýri­vextir voru hækkaðir til að minnka ofþenslu hafði það ekki eins dempandi áhrif á hagkerfið og fyrir­hugað var, vegna þess að fjármagn streymdi til landsins með fyrir­heitum um að njóta hærri vaxta.

Búist við vaxtalækkun

Næsta vaxta­ákvörðun peninga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands er á miðvikudag. Stýri­vextir eru nú 5 prósent, en meðal þeirra ríkja sem hafa hærri stýri­vexti eru þriðja heims ríki og svo ríki eins og Rússland, Tyrkland, Indland, Indónesía og Suður-Afríka. Stýri­vextir eru hálft prósent í Noregi, 0,25 prósent í Bretlandi og neikvæðir um hálft prósent í Svíþjóð, sem hefur meðal annars þau áhrif að húsnæðis­vextir eru mun hagstæðari fyrir almenning en á Íslandi.

Bæði Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra og Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra lýsa áhyggjum sínum af styrkingu á gengi krónunnar að undan­förnu. Sterkara gengi hefur í för með sér meiri kaupmátt íslenskra launþega í útlöndum og fræðilega séð lægra verð innfluttra vara, en jafnframt skaðar sterkara gengi krónunnar ferðamanna­iðnaðinn og sjávar­útveginn, þar sem vörur þeirra hækka í verði á erlendum mörkuðum og eftir­spurn eftir þeim gæti minnkað í kjölfarið.

Veruleg styrking gengis

Seðla­bankinn segir frá því í yfir­lýsingu sinni að hann bjóðst til að kaupa krónurnar fyrir andvirði 90 milljarða króna samkvæmt tilboðinu. Í yfir­lýsingu bankans kemur fram að gjaldeyris­varaforði hafi aukist úr 600 milljörðum króna í rúmlega 800 milljarða króna frá júní 2015.

Gengi krónunnar hefur styrkst verulega síðustu árin, einna helst vegna mikillar fjölgunar ferða­manna. Frá árinu 2013 hefur stig­vaxandi árleg fjölgun verið frá 20 til 40 prósent. Árið 2013 komu 807 þúsund ferðamenn til landsins, en í fyrra voru þeir 1,7 milljón. Miðað við 47 prósent fjölgun ferða­manna milli ára í febrúar virðist stig­mögnunin enn aukast.

Í mars 2013 borgaði Íslend­ingur ígildi 770 króna fyrir sex dollara Big Mac máltíð í Banda­ríkjunum á föstu þarlendu verðlagi. Nú borgar Íslend­ingur 650 krónur fyrir sömu máltíð. Það segir ekki alla söguna, því laun á Íslandi hafa hækkað að meðaltali um 30 prósent á sama tímabili, samkvæmt launa­vísitölu, og því ljóst að meðal-Íslend­ingur á mun fleiri krónur. 

Nefnd stofnuð um endurskoðun gjaldmiðilsstefnu

Óljóst er hins vegar hvert íslenska krónan stefnir í kjölfarið. Ákvörðun stjórn­valda að tilkynna samdægurs um skipun nýrrar nefndar um endur­skoðun peninga­stefnunnar gefur til kynna, það sem hefur verið viðurkennt, að krónan er sveiflu­gjarn og ótraustur gjald­miðill sem getur með óstöðug­leika sínum veitt helstu atvinnu­vegum hagkerfisins högg og umbylt húsnæðis­lánum og verðlagi. Markmið nefndarinnar er „að finna þann ramma peninga- og gjaldmiðils­stefnu sem til lengri tíma litið er heppilegastur til að styðja við efnahags­legan og fjármála­legan stöðug­leika með tilliti til hagvaxtar, verðbólgu, vaxta, gengis og atvinnu­stigs“.

Óljóst er hvaða beinu áhrif afnám hafta hefur á hagsmuni almennings. Til skemmri tíma eru áhrifin mest á aflands­krónu­eigendur, sem að stórum hluta eru vogunar­sjóðir, eða hrægammar eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, kallar þá.

Vogunarsjóðir borga meira en græddu á biðinni

Í samkomu­lagi sem Seðla­banki Íslands hefur boðið aflands­krónu­eigendum er þeim boðið að kaupa evrur á genginu 137,5, sem sagt greiða 137,5 krónur fyrir hverja evru, sem er um 23 krónum meira en skráð gengi evru, 114,7 krónur, eða 20 prósent yfir skráðu gengi. Þetta er hins vegar hagstæðari leið en aflands­krónu­eigendum stóð til boða í júní í fyrra þegar þeim bauðst að kaupa evrur á 190 krónur og losna þannig út úr íslenska gjald­miðlinum. Af þessu tilefni hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknar­flokksins, gagnrýnt stjórn­völd harðlega „stjórn­völd ætla að nota tækifærið til að leysa vogunar­sjóðina út með gjöfum, alla á einu bretti.“ Hann hefur fullyrt að vogunar­sjóðir hafa staðið að baki „tilefnis­lausri og ótrúlega grófri árás“ á sig á síðasta ári, án þess að útskýra með hvaða hætti. Sigmundur Davíð sagði af sér embætti í kjölfar þrýstings eftir að leki úr panamaísku lögfræði­stofunni Mossack Fonseca leiddi í ljós að hann hefði leynt verulegum hagsmunum sínum, en og eiginkona hans áttu á sínum tíma hálfs milljarðs kröfur á hendur íslensku bönkunum án þess að hann greindi frá því í hagsmuna­skráningu. 

Yfirlýsing fjármálaráðuneytisins um afnám hafta

Öll fjár­magns­höft á ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði verða af­num­in með nýj­um regl­um Seðla­banka Íslands um gjald­eyr­is­mál.

Þótt höft­in hafi verið nauðsyn­leg hef­ur hlot­ist tals­verður kostnaður af þeim, sér­stak­lega til lengri tíma litið. Fyrst um sinn höfðu þau tölu­verð áhrif á dag­legt líf fólks. At­vinnu­lífið hef­ur einnig þurft að glíma við tak­mark­an­ir á fjár­fest­ingu í er­lendri mynt og skila­skyldu gjald­eyr­is. Einkum hef­ur það komið sér illa fyr­ir fyr­ir­tæki í alþjóðleg­um viðskipt­um og sprota­fyr­ir­tæki. Þá hef­ur höft­un­um fylgt um­sýslu­kostnaður og ýmis óbeinn kostnaður.

Þrátt fyr­ir þetta hef­ur ís­lenskt efna­hags­líf tekið við sér á síðustu árum. Greitt hef­ur verið úr stór­um hluta vand­ans sem hrunið olli. Sam­hliða hef­ur verið losað um höft­in í nokkr­um skref­um. Árið 2015 var áætl­un um los­un hafta sett fram, sem meðal ann­ars fólst í aðgerðum til lausn­ar á upp­gjöri slita­búa með stöðug­leikafram­lög­um og upp­boði á krón­um sum­arið 2016. Aðgerðirn­ar nú eru næsti stóri áfang­inn í þeirri áætl­un.

Fjár­magns­flæði að og frá land­inu verður nú  gefið frjálst og ein­stak­ling­ar, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóðir geta fjár­fest er­lend­is án tak­mark­ana. Þetta er ekki síst mik­il­vægt fyr­ir líf­eyr­is­sjóði sem þurfa að dreifa áhættu af fjár­fest­ing­um sín­um. Eft­ir af­nám haft­anna standa þó eft­ir varúðarregl­ur vegna vaxtamun­ar­viðskipta og tak­mark­an­ir á af­leiðu­viðskipti með ís­lensk­ar krón­ur, sem eru þær teg­und­ir spá­kaup­mennsku sem urðu til þess að snjó­hengja af­l­andskróna myndaðist.

Af­námið felst í því að Seðlabank­inn nýt­ir heim­ild í lög­um um gjald­eyr­is­mál til að veita und­anþágur frá þeim tak­mörk­un­um á gjald­eyrisvið­skipt­um og fjár­magns­hreyf­ing­um sem nú gilda. Það ger­ir hann með út­gáfu á nýj­um regl­um um gjald­eyr­is­mál. Sam­hliða verða gerðar smá­vægi­leg­ar breyt­ing­ar á regl­um nr. 490/2016 um bind­ingu reiðufjár vegna nýs inn­streym­is er­lends gjald­eyr­is.

Dregið úr hættu á óstöðug­leika

Sam­hliða af­námi hafta á inn­lenda aðila hef­ur stærsti hluti vanda sem stafað hef­ur af svo­kallaðri snjó­hengju af­l­andskróna verið leyst­ur með sam­komu­lagi Seðla­banka Íslands við eig­end­ur krón­anna.

Sam­komu­lagið snýst um að Seðlabank­inn kaup­ir af­l­andskrónu­eign­ir fyr­ir er­lend­an gjald­eyri.  Viðmiðun­ar­gengi í viðskipt­un­um er 137,5 krón­ur fyr­ir evr­una, sem er um 20% yfir skráðu gengi evru síðastliðinn föstu­dag. Kaup Seðlabank­ans hafa í för með sér bók­halds­leg­an hagnað sem kem­ur á móti kostnaði vegna upp­bygg­ing­ar gjald­eyr­is­vara­forða.

Gjald­eyr­is­forðinn er nú í sögu­legu há­marki. Í lok fe­brú­ar nam hann um 809 millj­örðum króna og hafði þá vaxið um rúm­lega 220 millj­arða frá því í júní 2015, þegar áætl­un um los­un fjár­magns­hafta var kynnt. Þessi styrka staða hef­ur náðst þrátt fyr­ir tals­verðar end­ur­greiðslur er­lendra lána, hækk­un krón­unn­ar og gjald­eyr­isút­boð í júní 2016 og ger­ir hún Seðlabank­an­um kleift að hleypa af­l­andskrónu­eign­um út.

Af­l­andskrónu­eign­ir nema um 195 ma.kr., en munu við kaup Seðlabank­ans nú á eign­un­um verða um 105 ma.kr. Öllum af­l­andskrónu­eig­end­um verður boðið að eiga viðskipti við Seðlabank­ann á sama gengi og sam­komu­lagið hljóðar upp á næstu tvær vik­urn­ar. Vænt­ing­ar standa því til þess að eft­ir­stæð fjár­hæð af­l­andskrónu­eigna geti lækkað enn frek­ar á næstu vik­um.

Þær af­l­andskrón­ur sem ekki verða seld­ar Seðlabank­an­um verða áfram háðar tak­mörk­un­um þangað til lög­in sem gilda um þær hafa verið end­ur­skoðuð.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár