Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að fresta boðuðum fundi sínum með Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, vegna þess að hún hefur gefið það út að hún vilji ekki ræða sölu á Grænlandi til Bandaríkjanna. Fundurinn átti að fara fram eftir tvær vikur. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu sem hann setti á Twitter í nótt.
Þar segir forsetinn að Danmörk sé mjög einstakt land með frábæru fólki, en í ljósi ummæla hennar um áhuga Bandaríkjanna á að kaupa Grænland, þar sem Frederiksen hefur meðal annars kallað hugmyndina fáránlega, muni hann fresta fundinum. Trump segir að með því að vera jafn beinskeytt og raun bar vitni hafi Frederiksen getað kostnað og átök. Hann þakki henni fyrir það og hlakki til að skipuleggja annan fund með henni í framtíðinni.
Trump átti að koma til Danmerkur 2. september næstkomandi. Heimsóknin var í boði Margrétar Þórhildar drottningar. Einungis þrír starfandi Bandaríkjaforsetar hafa komið til Danmerkur. Barack Obama árið 2009, George W. Bush árið 2005 og Bill Clinton árið 1997.
Í síðustu viku tók undirbúningur heimsóknarinnar óvænta stefnu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var þá sagður vilja kaupa Grænland og vildi ræða þau kaup við forsætisráðherra Danmerkur. Heimildarmenn Wall Street Journal héldu því þá fram að Trump hafi oft íhugað að kaupa Grænland og spurt þá hvort Bandaríkin gætu gert það. Trump er sagður hafa einstakan áhuga á auðlindum og strategískri legu Grænlands.
Því var jafnframt haldið fram að Trump hafi leitað til ráðgjafa Hvíta hússins um hvort möguleiki sé á kaupunum. Sumir ráðgjafar forsetans voru sagðir styðja hugmyndina og segja hana hagkvæma á meðan aðrir ráðgjafar telji hugmyndina vera fjarstæðukennda.
Hann staðfesti stuttu síðar áhuga sinn á hugmyndinni í samtali við fjölmiðla og sagði að hann myndi ræða möguleg kaup í opinberu heimsókninni til Danmerkur. Trump sagði Grænland vera byrði á Danmörku sem borgaði um 700 milljónir dali með landinu á ári. Rétt upphæð er hins vegar um 600 milljónir dalir. Þegar Frederiksen var spurð um málið í heimsókn hennar til Grænlands var svarið afdráttarlaust: „Þetta er fáránleg umræða“. Kim Kielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, hefur tekið í sama streng og sagt að Grænland sé alls ekki til sölu. Í gær bætti hann um bætur og sagði Grænland vera tilbúið að kaupa Bandaríkin.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir