Draumur um landakaup

Ein­hverjir hafa kannski, til öryggis, litið á daga­talið sl. föstu­dag þegar fréttir bár­ust af því að Banda­ríkja­for­seti hefði viðrað þá hug­mynd að kaupa Grænland. Þetta var þó ekki apr­ílgabb og ekki í fyrsta skipti sem þessi hug­mynd skýtur upp koll­inum.

Banda­ríska dag­blaðið The Wall Street Journal greindi síð­ast­lið­inn föstu­dag, 16. ágúst, frá því að Donald Trump hefði að und­an­förnu, oftar en einu sinni, rætt landa­kaup við ráð­gjafa sína og sam­starfs­fólk. Í for­seta­tíð Trump hafa borist margar fréttir frá Hvíta hús­inu, um hug­dettur og ummæli for­set­ans, en full­yrða má að að fréttin um hugs­an­leg kaup á Græn­landi taki þeim flestum fram enda vakti hún heims­at­hygli. Í umfjöllun The Wall Street Journal kemur fram að for­set­inn hafi falið tveimur nánum sam­starfs­mönnum sínum að kanna málið nánar. Fram hefur komið að for­set­inn hafi fyrst nefnt hug­mynd­ina um kaupin eftir að hann frétti af árlegum styrk sem Grænland fær frá danska rík­inu , hið svo­nefnda bloktil­skud. Á síð­asta ári nam þessi fjár­veit­ing 3.8 millj­örðum danskra króna sem sam­svarar um það bil 70 millj­örðum íslenskra króna.

Grænland er stærsta eyja jarð­ar­innar, sem ekki telst sér­stök heims­álfa, 2,2 millj­ónir fer­kíló­metra. Fjar­lægðin frá nyrsta odda til þess syðsta er 2.650 kíló­metrar og strand­lengjan er 39.330 kíló­metrar, nán­ast sama vega­lend og ummál jarðar við mið­baug. Íbúar Græn­lands eru 55 þús­und og búa lang­flestir við firði á suð­vest­ur­hluta lands­ins. Um það bil 80% lands­ins er þakið jöklum en lofts­lags­breyt­ingar hafa haft þar mikil áhrif á síð­ustu árum.

Andrew Johnson vildi líka kaupa Ísland

Þótt fréttir af hug­mynd Donald Trump hafi komið flestum á óvart er hann ekki fyrsti banda­ríski for­set­inn sem rennir hýru auga til Græn­lands. Harry Truman (for­seti frá 1945 – 1953) gerði árið 1946 Dönum til­boð um kaup á Græn­landi. Hann bauð jafn­virði 100 millj­óna doll­ara, í gulli. Sú upp­hæð mun í dag jafn­gilda 10,4 millj­örðum danskra króna, um það bil 192 millj­örðum íslenskum. Danir höfn­uðu til­boð­inu sam­stundis.

[adspot]Árið 1867 vildi Andrew Johnson (for­seti 1865 – 1869) kaupa Grænland. Johnson, sem hafði verið vara­for­seti og tók við for­seta­emb­ætt­inu eftir morðið á Lincoln, vildi þó ekki láta duga að kaupa Grænland, hann vildi nefni­lega láta Ísland fylgja með í kaup­unum. Hugmynd hans varð aldrei að form­legu til­boði.

Keyptu Dönsku Vestur - Indíur og Alaska

Árið 1917 keyptu Banda­ríkin Dönsku Vestur – Indíur í Karí­ba­hafi af Dönum. Eyjarnar höfðu þá verið í eigu Dana í rúm tvö hund­ruð ár. Danskir fjöl­miðlar fjöll­uðu í hitteð­fyrra tals­vert um sölu eyj­anna, sem Banda­ríkja­menn skírðu Jóm­frúr­eyjar (Banda­rísku Jóm­frúr­eyjar), en þá var öld liðin frá söl­unni. Í þeirri umfjöllun kom fram að Danir hefðu ekki riðið feitum hesti frá þeirri sölu. Banda­ríkin borg­uðu 25 millj­ónir doll­ara fyrir eyj­arnar, sú upp­hæð jafn­gildir í dag rúmum 57 millj­örðum íslenskra króna.

Árið 1867, sama árið og Johnson vildi kaupa Grænland og Ísland, keyptu Banda­ríkja­menn Alaska af Rússum.

Hvað gengur Trump til?

Eins og áður var nefnt hefur hug­mynd Trump um kaup á Græn­landi vakið mikla athygli, langt út fyrir banda­ríska og danska land­steina. Allir sem um málið hafa fjallað velta fyrir sér hvað for­set­anum gangi til og af hverju hann nefni þetta núna. Dönsku miðl­arnir setja hug­mynd­ina í sam­hengi við fyr­ir­hug­aða heim­sókn Trump til Dan­merkur í byrjun næsta mán­aðar, og for­set­inn sé þessa dag­ana að kynna sér mál­efni lands­ins, sem hann að sögn þekkir lítið til. Ein­hvers­staðar hefur því verið fleygt að for­set­inn hafi nefnt landa­kaupin sem ein­hvers konar spaug. Danskir stjórn­mála­skýrendur og sér­fræð­ingar um varnar- og örygg­is­mál segja ummæli for­set­ans ekki sögð í gríni. Þau séu sett fram í fullri alvöru, þótt hug­myndin um kaup á land­inu séu nokkuð „brött“ eins og blaða­maður Berl­ingske komst að orði.

[adspot]Banda­rísk stjórn­völd hafa lengi verið þeirrar skoð­unar að það sé óvið­un­andi að hafa þessa stóru eyju nán­ast í bak­garð­inum án þess að hafa þar nokkur áhrif og yfir­ráð. Áhyggjur þeirra hafa auk­ist mjög á allra síð­ustu árum og tengj­ast síauknum áhuga Kínverja og Rússa, auk Banda­ríkj­anna, á norð­ur­slóðum. Þar eru miklir hags­munir í húfi.

Henrik Kaufmann og Thule samningurinn

9.apríl 1941, ári eftir að Þjóð­verjar her­námu Danmörku, skrif­aði Henrik Kaufmann, sendi­herra Dana í Banda­ríkj­unum, í nafni kon­ungs­ins, undir sam­komu­lag við banda­rísk stjórn­völd. Sam­komu­lagið sem Franklin D. Roosevelt for­seti Banda­ríkj­anna stað­festi tveimur mán­uðum síðar kvað á um að Banda­ríkja­menn skyldu verja Grænland gegn hugs­an­legu her­námi Þjóð­verja. Dönsk stjórn­völd stað­festu ekki sam­komu­lagið og Henrik Kaufmann var rek­inn úr starfi, að kröfu Þjóð­verja, en varð síðar um tíma ráð­herra.

[adspot]Banda­ríkja­menn tóku, þrátt fyrir að hafa ekki fengið sam­þykki Dana, völdin (ef svo mætti segja) yfir Græn­landi og árið 1951 var gerður samn­ingur (Thule samn­ing­ur­inn) á grund­velli sam­komu­lags Henrik Kaufmann og banda­rískra stjórn­valda frá 1941. Þá var meðal ann­ars byggður flug­völlur í Thule á norð­vestur- Græn­landi. Á árum kalda stríðs­ins voru þar um 10 þús­und banda­rískir her­menn en í dag eru þeir innan við þrjú hund­ruð. Banda­rísk hern­að­ar­yf­ir­völd vilja mjög gjarna styrkja stöðu sína á Græn­landi, meðal ann­ars með bygg­ingu fleiri og stærri flug­valla og kæra sig lítt um að Kín­verjar og Rússar reyni að seil­ast til áhrifa í land­inu.

Miklar auðlindir

Þótt hern­að­ar­mik­il­vægið vegi þyngst í hugum Banda­ríkja­manna, hvað Grænland varðar, býr landið jafn­framt yfir miklum nátt­úru­auð­lindum, sem Kín­verjar hafa árum saman rennt hýru auga til. Þeir hafa lýst miklum áhuga á að leggja fé í upp­bygg­ingu flug­valla, en slíkum til­boðum hefur til þessa verið hafnað. Rússar hafa farið sér hægar, áhugi þeirra bein­ist einkum að þeim mögu­leikum sem skap­ast með land­fræði­legum breyt­ingum á norð­ur­slóðum.

Sala á Grænlandi kemur ekki til greina

Viðbrögð danskra og græn­lenskra stjórn­mála­manna eru öll á einn veg: sala á Græn­landi kemur ekki til greina. Allar hug­myndir um að eitt ríki kaupi heilt land, og íbú­ana með, séu leifar nýlendu­tím­ans sem sé löngu lið­inn. „Við erum opin fyrir við­skiptum, en ekki til sölu“ segir í yfir­lýs­ingu ráð­herra utan­rík­is­mála í græn­lensku land­stjórn­inni. Danskir stjórn­mála­menn segja þessa hug­mynd for­set­ans „lélegan brand­ara“. Søren Espersen, þing­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins, tekur dýpra í árinni og segir þetta stað­festa að „for­set­inn sé gal­inn“. Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sagði að „þetta hlyti að vera apr­ílgabb, á alröngum tíma“.

Eins og áður var nefnt kemur Donald Trump í opin­bera heim­sókn til Dan­merkur dag­ana 2. og 3. sept­em­ber. Danskir stjórn­mála­skýrendur telja ólík­legt að hug­mynd hans um kaup á Græn­landi verði rædd á fundi hans með Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana, en þó sé ekki hægt að úti­loka neitt í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár