Trump kemur til Danmerkur

Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna kemur í opin­bera heim­sókn til Dan­merkur 2. sept­em­ber. Að mati stjórn­mála­skýrenda er ástæða heim­sókn­ar­innar fyrst og fremst áhugi Banda­ríkja­manna fyrir Græn­landi og Norð­ur­skauts­svæð­inu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti ásamt Margréti Þórhildi Danadrottningu.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ásamt Margréti Þórhildi Dana­drottn­ingu.

Fyrir nokkru var ákveðið að Banda­ríkja­for­seti verði við­staddur sér­staka athöfn í Póllandi 1. sept­em­ber, þar sem þess verður minnst að þann dag verða liðin 80 ár frá inn­rás Þjóð­verja í landið. Á frétta­manna­fundi í lið­inni viku var Trump spurður hvort hann hygð­ist heim­sækja fleiri lönd í þess­ari ferð og svar­aði því til að „kannski förum við líka til Dan­merkur“. Daginn eftir stað­festu bæði Hvíta húsið og Amali­en­borg að heim­sóknin væri ákveðin. For­seta­hjónin koma til Dan­merkur 2. sept­em­ber og dvelja í tvo daga. Danir gera grein­ar­mun á „stats­besøg“ og „officielt besøg”, hið fyrr­nefnda er heim­sókn í boði þjóð­höfð­ingja við­kom­andi lands, dæmi um síð­ar­nefnda er þegar for­sæt­is­ráð­herra býður starfs­bróður sínum til lands­ins. Heimsókn Trump hjón­anna til Dan­merkur er „stats­besøg”, sem sé heim­sókn í boði Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar.

Óhætt er að segja að til­kynn­ingin um heim­sókn banda­rísku for­seta­hjón­anna til Dan­merkur hafi komið nokkuð á óvart. Danmörk hefur ekki oft verið við­komu­staður banda­rískra for­seta gegnum tíð­ina. Einungis þrír starf­andi Banda­ríkja­for­setar hafa komið til Dan­merkur. Barack Obama árið 2009, George W. Bush árið 2005 og Bill Clinton árið 1997. Í heim­sókn sinni flutti Clinton ræðu á Kóngsins Nýja­torgi að við­stöddum átta­tíu þús­und manns og álíka mörgum dönskum fánum!

Heppileg tímasetning fyrir Trump

Tíma­setn­ing Evr­ópu­ferðar for­set­ans ræðst vita­skuld af minn­ing­ar­at­höfn­inni í Póllandi 1. sept­em­ber. Tíma­setn­ingin er jafn­framt heppi­leg fyrir for­set­ann sem er, fyrir löngu, far­inn að und­ir­búa for­seta­kosn­ing­arnar á næsta ári. Mánu­dag­ur­inn 2. sept­em­ber er almennur frí­dagur í Banda­ríkj­unum (Labour day) og yfir­leitt lítið frétt­næmt að ger­ast þar vestra. Gúrkutíð. Þess vegna er lík­legt að banda­rískir fjöl­miðlar geri Evr­ópu­heim­sókn for­set­ans skil. Slík heim­sókn gefur jákvæða mynd af for­set­anum þótt hann hafi til þessa ekki verið ýkja hrif­inn af Danmörku og Dönum, ef marka má yfir­lýs­ingar hans, t.d um dönsku vind­myll­urnar (fugla­kirkju­garðar) og Margrethe Vestager fram­kvæmda­stjóra sam­keppn­is­mála ESB. „Hún hatar Banda­ríkin meira en nokkur mann­eskja sem ég hef hitt“ sagði for­set­inn „hún vill sekta öll okkar fyr­ir­tæki“ og vís­aði þar til banda­rískra fyr­ir­tækja sem ESB vill að borgi sann­gjarna og eðli­lega skatta af starf­semi sinni í Evrópu.

Heimsóknin gulls ígildi fyrir danskt atvinnulíf – og Trump

For­svars­menn danskra fram­leiðslu- og útflutn­ings­fyr­ir­tækja hafa lýst mik­illi ánægju með að for­seti Banda­ríkj­anna skuli heim­sækja Danmörku. Í frétta­til­kynn­ingu frá danska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu var greint frá því að verslun og við­skipti land­anna verða meðal þess sem rætt verður í heim­sókn­inni. Árlega flytja dönsk fyr­ir­tæki út vörur til Banda­ríkj­anna fyrir um 140 millj­arða danskra króna (2400 millj­arða íslenska) og hefur auk­ist jafnt og þétt á síð­ustu árum. Banda­ríkin eru í þriðja sæti þeirra ríkja sem kaupa mest af Dönum, á eftir Þjóð­verjum og Svíum. Samtök danska iðn­að­ar­ins telja að um 70 þús­und Danir hafi, beint og óbeint, atvinnu af útflutn­ingi til Banda­ríkj­anna. Samkvæmt tölum frá dönsku hag­stof­unni eru nú í Banda­ríkj­unum starf­andi um það bil 700 dótt­ur­fyr­ir­tæki danskra fyr­ir­tækja og danska utan­rík­is­ráðu­neytið telur að sam­tals starfi tæp­lega 130 þús­und manns vest­an­hafs hjá dönskum fyr­ir­tækjum og dótt­ur­fyr­ir­tækjum þeirra. Í ljósi þess­ara talna er ekki und­ar­legt að fram­kvæmda­stjóri sam­taka danskra atvinnu­rek­enda hafi sagt að heim­sókn Trump væri „gulls ígildi“. Dagskrá heim­sókn­ar­innar hefur ekki enn verið birt en danskir fjöl­miðlar segja aug­ljóst að það sé fyrst og fremst eitt mál sem for­seti Banda­ríkj­anna hefur áhuga á að ræða og það mál sé meg­in­á­stæða þess að hann heim­sæki Danmörku.

Grænland og Norðurskautið

Þegar Donald Trump tók við sem for­seti Banda­ríkj­anna var Norð­ur­skautið, og mál­efni því tengd, ekki ofar­lega á blaði for­set­ans og rík­is­stjórnar hans. Það hefur skyndi­lega breyst. Sem dæmi má nefna ræðu banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ans Mike Pompeo á ráð­herra­fundi Norð­ur­skauts­ráðs­ins í Finn­landi, í maí síð­ast­liðnum. Hann fór í ræðu sinni hörðum orðum um Rússa og Kínverja. „Við höfum séð að Rússar skirr­ast ekki við að beita valdi og yfir­gangi“ sagði ráð­herr­ann og vís­aði þar til átak­anna í Austur – Úkraínu og inn­limun Krím­skag­ans árið 2014. „Við vitum líka, í ljósi sög­unnar, að Kín­verjar svífast einskis til að ná sínu fram“ sagði Mike Pompeo.

Norð­ur­skauts­ráðið er sam­starfs­vett­vangur rík­is­stjórna landa sem liggja á eða að Norð­ur­slóðum, heims­hlut­anum í kringum Norð­ur­heim­skautið. Aðild­ar­ríki Norð­ur­skauts­ráðs­ins eru átta: Banda­ríkin, Finnland, Ísland, Kanada, Danmörk, Noregur, Rússland og Svíþjóð.

Við hátíð­leg tæki­færi hafa ráð­herrar talað um að Norð­ur­skautið eigi að vera svæði sem sátt og sam­lyndi ríki um, burt­séð frá deilum og átökum ann­ars staðar. Brestir eru nú komnir í þessa „glans­mynd“, en Rússar hafa að und­an­förnu aukið til muna hern­að­ar­um­svif sín á Norð­ur­slóðum. Í áður­nefndri ræðu sinni sagði banda­ríski utan­rík­is­ráð­herr­ann að Norð­ur­skauts­svæðið verði póli­tískt átaka­svæði. Banda­rískt her­skip siglir nú um Norð­ur­höf og yfir­menn i banda­ríska hernum leggja nú æ oftar leið sína til Græn­lands til að fylgj­ast með, og fræð­ast um, starf­semi danska hers­ins.

Í skýrslu sem unnin var á vegum banda­ríska hers­ins árið 2014 kom fram að hlýnun and­rúms­lofts­ins muni hafa, og hafi reyndar þegar, mikil áhrif á Norð­ur­slóðum. Til verði ný sigl­inga­leið, svo­nefnd Norð­vest­ur­leið, sem muni hafa miklar breyt­ingar í för með sér, og mikla skipa­um­ferð.

Samningurinn frá 1951 mikilvægur

Með varn­ar­samn­ingi sem und­ir­rit­aður var 27. apríl 1951, og við­bót frá árinu 2003, fengu Banda­ríkja­menn afnot af til­teknum svæðum á Græn­landi. Það leyfi stendur enn þótt umsvifin hafi minnkað síðan í Kalda Stríðinu og eru nú nær ein­göngu bundin við Thule her­stöð­ina á Norð­vestur- Græn­landi. Á síð­asta ári til­kynnti yfir­stjórn banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að her­inn hefði áhuga á að end­ur­bæta og byggja upp flug­velli, og til­heyr­andi aðstöðu, á Græn­landi.

Ráðamenn í Pentagon hrukku illi­lega við þegar af því bár­ust fréttir að kín­verskir bankar vildu gjarna lána Græn­lend­ingum pen­inga til að byggja nýja flug­stöð og flug­völl. James Mattis þáver­andi varn­ar­mála­ráð­herra hafði strax sam­band við Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra Danmerku í því skyni að koma í veg fyrir að lánið yrði þegið. Græn­lenskir stjórn­mála­menn hafa marg­sinnis hvatt danska stjórn­mála­menn til að krefj­ast þess að Banda­ríkja­menn „taki til eftir sig“ á stöðum þar sem her­inn hafði aðstöðu í Kalda stríð­inu.

Eins og fyrr var nefnt verða Grænland og Norð­ur­skautið það sem hæst ber í við­ræðum Donald Trump við danska stjórn­mála­menn. Greint hefur verið frá því að meðal þeirra sem for­set­inn hitti og ræði við verði for­maður græn­lensku land­stjórn­ar­innar og lög­maður Færeyja. Þetta segja danskir stjórn­mála­skýrendur sýna áherslu­at­riði for­set­ans og fylgd­ar­liðs hans í Dan­merk­ur­heim­sókn­inni.

Veit lítið um Danmörku og Dani

Danskir fjöl­miðlar greindu frá því að árið 2016, hafi Trump verið að tala í sím­ann og í miðju sam­tali hafi hann sagt við Vanessu þáver­andi tengda­dóttur sína „ég er að tala við danska kóng­inn“. Á lín­unni var danski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Lars Løkke Rasmus­sen. Skömmu eftir að Trump tók við for­seta­emb­ætt­inu sendi Hvíta húsið frá sér skýrslu þar sem full­yrt var að lífs­kjör almenn­ings í Banda­ríkj­unum væru umtals­vert betri en almenn­ings í Danmörku og jafn­vel fátæk­lingar í Banda­ríkj­unum hefðu það betra en „með­al­d­an­inn“. Danskir stjórn­mála­menn voru fljótir að hrekja þessar yfir­lýs­ingar.

Dag­blaðið Berl­ingske nefndi nokkur atriði sem kannski muni koma for­seta Banda­ríkj­anna á óvart. Í banda­rískum stór­borgum, og víðar, eru flug­vellir gjarna nefndir eftir for­setum lands­ins. Þannig er það eins og flestir vita, ekki í Kaup­manna­höfn, flug­völl­ur­inn ein­fald­lega kenndur við bæj­ar­hlut­ann Kastrup. Spyrji for­set­inn um minn­is­merki um danska stjórn­mála­menn verður líka fátt um svör, slík verk eru vand­fundin. Í Danmörku er heldur eng­inn her­manna­kirkju­garður, sam­bæri­legur við Arl­ington.

Hvort hinn óút­reikn­an­legi gestur (orða­lag Berl­ingske) velti þessu, sem hér var nefnt, eitt­hvað fyrir sér er ómögu­legt að segja til um, en danskir fjöl­miðlar og stjórn­mála­skýrendur eru sam­mála um að heim­sókn Donald Trump til Dan­merkur verði „við­burður árs­ins“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár