Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður vilja kaupa Grænland. Það segja heimildarmenn the Wall Street Journal. Heimildarmennirnir halda því fram að Trump hafi oft íhugað að kaupa Grænland og spurt þá hvort Bandaríkin gætu gert það. Trump er sagður hafa einstakan áhuga á auðlindum og strategískri legu Grænlands.
Því er jafnframt haldið fram að Trump hafi leitað til ráðgjafa Hvíta hússins um hvort möguleiki sé á kaupunum. Sumir ráðgjafar forsetans eru sagðir styðja hugmyndina og segja hana hagkvæma á meðan aðrir ráðgjafar telji hugmyndina vera fjarstæðukennda.
Þá segir að árið 1946 hafi Bandaríkin gert 100 milljóna dollara tilboð til Danmerkur um kaup á Grænlandi. 80 árum áður hafi bandaríska utanríkisráðuneytið einnig spurst fyrir um kaup á bæði Grænlandi og Íslandi. Ljóst er þó að ekkert hafi orðið af þeim kaupum.
Á grænlensku fréttasíðunni Sermitsiaq stendur að óvíst sé hversu langt bandaríski forsetinn vilji fara með hugmynd sína. Þá liggi Grænland landfræðilega í Norður-Ameríku, en eigi söguleg-, pólitísk- og hagfræðileg tengsl við Evrópu.
Trump heimsækir Danmörku 2. til 3. september, þar sem hann mun hitta bæði Mette Frederiksen og Kim Kielsen og ræða málefni Grænlands og norðurslóða.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir