Taka ekki afstöðu til vindorkuversins fyrr en stefna stjórnvalda liggur fyrir

Fulltrúar vind­orku­fyrir­tækisins Zephyr Iceland hafa ekki verið í beinum samskiptum við sveitar­stjórn Hval­fjarðar­sveitar. Engu að síður hefur fyrir­tækið auglýst mats­áætlun fyrir vind­orkuver á hæsta fjalli Hval­fjarðar­strandar.

Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, segir sveitarstjórna ekki hafa tekið afstöðu til byggingar vindorkuvers á Brekkukambi.
Linda Björk Páls­dóttir, sveit­ar­stjóri Hval­fjarð­ar­sveitar, segir sveit­ar­stjórna ekki hafa tekið afstöðu til bygg­ingar vind­orku­vers á Brekku­kambi. Mynd: Samsett mynd

Sveitar­stjórn Hval­fjarðar­sveitar hefur ekki fjallað um eða tekið afstöðu til byggingar vind­orkuvers á Brekku­kambi í Hvalfirði enda hefur málið ekki komið inn á borð hennar nema að því leyti að gefa umsögn um mats­áætlun framkvæmdarinnar.

Þetta segir Linda Björk Páls­dóttir, sveitar­stjóri Hval­fjarðar­sveitar, við Kjarnann. Tugir athugasemda bárust við mats­áætlunina, allar á einn veg: Fólkið í nágrenni hins fyrir­hugaða vind­orkuvers vill að horfið verði frá áformunum.

„Ég fagna því að sem flestar umsagnir berist og að íbúar, land­eigendur, frístunda­húsa­eigendur og aðrir hagsmuna­aðilar komi sjónar­miðum sínum á framfæri,“ segir Linda. „Ég ber virðingu fyrir þeim skoðunum sem fram eru komnar og ítreka það að framkvæmdin, eins og henni er lýst í drögum að mats­áætlun framkvæmdar­aðila, er ekki í samræmi við aðal­skipulag Hval­fjarðar­sveitar og ekki verður tekin afstaða til breytinga aðal­skipulags vegna vindlunda og/eða vind­rafstöðva yfir 35 metra nema fyrir liggi skýr stefnu­mörkun á landsvísu um vind­orkunýtingu og/eða í ramma­áætlun.“

Fyrir­tækið Zephyr Iceland, sem er í meirihluta eigu norska fyrir­tækisins Zephyr AS, vill reisa 50 MW vind­orkuver á hæsta fjallinu við Hval­fjarðar­strönd. Vind­myllurnar, sem yrðu 8-12 talsins og 250 metrar á hæð, myndu því sjást víða að. Kjarninn hefur áður fjallað um athuga­semdir íbúa sem og stofnana við áformin.

Mats­áætlun verk­efnisins, sem verkfræði­stofan EFLA vann fyrir Zephyr, var auglýst á vef Skipulags­stofnunar í vor. Í áætluninni er útskýrt hvernig staðið verði að umhverfis­mati framkvæmdarinnar og hvaða þættir verði teknir til skoðunar. Skipulags­stofnun gefur svo álit sitt á mats­áætluninni, að teknu tilliti til athugasemda og umsagna.

Umhverfismatið rétt að hefjast

Framkvæmda­aðili, í þessu tilviki Zephyr Iceland, þarf að taka tillit til þess sem Skipulags­stofnun kveður á um varðandi umhverfis­matið. Þá hefst ferli hjá framkvæmda­aðila sem er gagna­öflun, rann­sóknir o.s.frv. Þegar öll gögn liggja fyrir gerir framkvæmda­aðili umhverfis­mats­skýrslu, þar sem umhverfis­áhrif eru metin.

Umhverfis­matið er síðan auglýst af Skipulags­stofnun og enn á ný leitar hún umsagnar meðal hagsmuna­aðila og almennings, þ.m.t. sveitar­félagsins. „Þegar þessu ferli lýkur getur, að undan­genginni umfjöllun í sveitar­stjórn, hafist ferli deili­skipulags og mögulega breytinga á aðal­skipulagi, en þessi tvö skipulags­ferli má einnig auglýsa samhliða umhverfis­mats­skýrslu,“ útskýrir Linda. „Sveitar­félagið hafi skipulags­valdið varðandi þessi tvö ferli, þ.e.a.s. varðandi aðal- og deili­skipulag.“ Að loknu skipulags­ferli vegna aðal- og deili­skipulags, gefur sveitar­félagið út framkvæmda­leyfi vegna fyrir­hugaðra framkvæmda.

Linda ítrekar að vind­orkuver á Brekku­kambi, eins og framkvæmdinni er lýst í drögum að mats­áætlun, sé ekki í samræmi við gildandi aðal­skipulag Hval­fjarðar­sveitar né endur­skoðað aðal­skipulag Hval­fjarðar­sveitar til ársins 2032 sem væntanlega muni hljóta stað­festingu ráðherra og öðlast gildi í árslok 2022. Hún ítrekar einnig að samkvæmt ákvæðum í endur­skoðuðu aðal­skipulagi verði ekki tekin afstaða til breytinga aðal­skipulags vegna vind­orkuvera og/eða vind­rafstöðva yfir 35 metra nema fyrir liggi skýr stefnu­mörkun á landsvísu um vind­orkunýtingu og/eða í ramma­áætlun.

Engin bein samskipti við Zephyr

Hún segir sveitar­stjórn Hval­fjarðar­sveitar ekki hafa átt í beinum samskiptum við Zephyr ehf. fyrir utan forsamráðsfund vegna fyrir­hugaðs vind­orkuvers við Brekku er haldinn var á vegum Skipulags­stofnunar líkt og stofnunin fór fram á. „Á þeim fundi bentu fulltrúar Hval­fjarðar­sveitar á að takmarkaðar upplýsingar lægju fyrir um afstöðu íbúa til vind­orkuvera og ítrekuðu mikilvægi samráðs við nærsamfélagið við undir­búning verk­efnisins,“ segir Linda.

Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra skipaði í sumar starfshóp sem á að gera tillögur að lagaramma fyrir nýtingu vindorku hér á landi. Hópurinn á að skila af sér tillögum í febrúar á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár