Fjallið Brekkukambur í Hvalfirði er 647 metrar á hæð þar sem það er hæst. Vindmyllurnar yrðu um 250 metra háar.
Fjallið Brekku­kambur í Hval­firði er 647 metrar á hæð þar sem það er hæst. Vind­myll­urnar yrðu um 250 metra háar. Mynd: Google Maps

„Eins og að krota inn á málverk eftir Kjarval“

Ef vind­orku­ver Zephyr Iceland fær að rísa á Brekku­kambi, hæsta fjalli Hval­fjarð­ar­strand­ar­innar, mun það blasa við úr öllum áttum – gnæfa yfir sveitir, frí­stunda­byggðir og úti­vist­ar­svæði. Íbúar segja nóg komið af „stór­karla­legri starf­semi“ í Hval­firði.

Þetta má alls ekki ger­ast.“

Sara Matí Guð­munds­dóttir

„Hvernig dettur ein­hverjum slík della í hug?“

Ólafur Magn­ús­son og Katrín Val­ent­ín­us­dóttir

Fyr­ir­tækið Zephyr Iceland, sem er að stærstum hluta í eigu norska fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr AS, áformar að reisa 50 MW vind­orku­ver á Brekku­kambi í landi jarð­ar­innar Brekku í Hval­fjarð­ar­sveit. Þótt orðið „kambur“ láti ekki mikið yfir sér er þetta fjall, 647 metrar yfir sjáv­ar­máli þar sem það er hæst, það hæsta á allri Hval­fjarð­ar­strönd­inni. Á því vill Zephyr reisa 8-12 vind­myllur sem hver um sig yrði tæp­lega 250 metra há, sem jafn­ast á við rúm­lega þre­falda hæð Hall­gríms­kirkju­turns.

„Vind­myll­urnar myndu bera við himin í um 900 metra hæð yfir sjáv­ar­máli – ekk­ert mun skyggja á þær,“ benda eig­endur jarð­ar­innar Kala­staða á. „Þetta mun því valda sjón­mengun víða og til allra átta. Hvernig verða lífs­gæði allra sem sviptir verða þeim lífs­gæðum sem fel­ast í kyrrð og nátt­úru­hljóðum metin?“

Sjón­meng­unin er stórt atriði í hugum þeirra tuga manna sem ýmist búa á svæð­inu eða dvelja þar í sum­ar­húsum sínum hluta úr ári og gerðu athuga­semdir við mats­á­ætlun Zephyr fyrir vind­orku­verið. Yfir þús­und manns til við­bótar skrif­uðu svo undir mót­mæli vegna áfor­manna.

Ferða­þjón­ustan er orðin mjög mik­il­væg grein í Hval­fjarð­ar­sveit og nábýli við vind­orku­garð mun skaða hana, er m.a. ítrekað bent á. Vind­myll­urnar munu sjást frá mjög fjöl­sóttum ferða­manna­stöðum eins og foss­inum Glym, Síld­ar­mann­götum, Leggja­brjóti og Þing­völlum. Þær munu einnig sjást úr Kjós, Skorra­dal, frá Akranesi og upp­sveitum Borg­ar­fjarðar. Frá Langjökli, Þór­isjökli og af Skjald­breið.

„Við þurfum þetta ekki og við viljum þetta ekki,“ segir einn íbúi í sinni umsögn. Þar með kjarnar hann inn­tak allra athuga­semd­anna sem sendar voru Skipu­lags­stofnun vegna mats­á­ætl­un­ar­innar. Í þeim er vakin athygli á þekktum umhverf­is­á­hrifum vind­orku­vera, m.a. sjón- og hljóð­mengun sem og hætt­unni sem steðjar að fuglum, en einnig á lítt þekkt­ari áhrifum á borð við örplast sem veðr­ast í tuga kílóa­vís af hverri vind­myllu á hverju ein­asta ári. Bent er á að plastið ber­ist um allt og ótt­ast að það mengi vatns­ból og ógni heilsu.

Laumað inn í samfélagið

Fólkið gagn­rýnir einnig algjört sam­ráðs­leysi fyr­ir­tæk­is­ins, hvort sem er við næstu nágranna jarð­ar­innar Brekku eða við aðra land­eig­endur, ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem eru mörg og fer fjölg­andi eða eig­endur sum­ar­húsa. Einnig er bent á að meira að segja sveit­ar­fé­lögin á svæð­inu hafi litlar eða engar upp­lýs­ingar fengið um hvað þarna stendur til. „Næstu nágrannar hafa ekk­ert heyrt um þessar fyr­ir­ætl­anir fyrr en mats­á­ætlun var aug­lýst á vef Skipu­lags­stofn­unar,“ segja íbúar á Hrafna­björgum í Hval­fjarð­ar­sveit. „Þessu er laumað inn í sam­fé­lagið og á að nást í gegn með því að vaða yfir íbúa.“

Hulda Guð­munds­dóttir, sem býr að Fitjum í Skorra­dal, segir að því miður hafi fyr­ir­tækið Zephyr, sem seg­ist leggja mikið upp úr far­sælum sam­skiptum við hags­muna­að­ila og að sam­skipti við land­eig­endur og íbúa séu mik­il­væg­ust, ekki haft sam­band eða verið í nokkru sam­ráði við land­eig­endur á Fitjum eða sum­ar­húsa­eig­endur á svæð­inu. Þó sé bein sjón­lína frá bænum að Brekku­kambi.

Óvönduð vinnubrögð

Bærinn Bjart­eyj­ar­sandur er næsti byggði bær við Brekku og segja eig­endur hans algjör­lega óásætt­an­legt að fá vind­orku­ver – iðnað – í sitt næsta nágrenni. „Við mats­á­ætl­un­ina hefur á engum tíma verið leitað eftir sam­ráði við næstu nágranna sem verður að telj­ast til óvand­aðra vinnu­bragða,“ skrifa Kolbrún Eiríks­dóttir og Sigurjón Guð­munds­son. „Nei takk. Við skorum á Skipu­lags­stofnun og sveit­ar­stjórn Hval­fjarð­ar­sveitar að ýta þessum áformum út af borð­inu áður en frekara tjón hlýst af.“

Staðsetning vindorkuversins í gulum lit.
Stað­setn­ing vind­orku­vers­ins í gulum lit.

Hval­fjarð­ar­svæðið er „því­líkt ger­semi“ í næsta nágrenni þétt­býlasta svæðis lands­ins, skrifar Hilmar Þór Björns­son arki­tekt. „Þar fer frí­stunda- og ferða­þjón­usta vax­andi og með vind­orku­veri yrði meiri hags­munum kastað á glæ fyrir minni og gríð­ar­leg tæki­færi til langrar fram­tíðar glat­ast.“

Hvar sem drepið er niður í áætl­un­inni eru rauð flögg, skrifar Ólafur Helgi Ólafsson, sum­ar­húsa­eig­andi í Hval­fjarð­ar­sveit. „Það er í raun furðu­legt að ein­hverjum skuli hafa látið sér detta í hug að setja þarna upp vind­orku­garð,“ segir hann og bætir við: „Að halda áfram með þetta verk­efni væri eins og að krota inn á mál­verk eftir Kjarval.“

Mótmælt „af miklum þunga“

Félag sum­ar­búa­staða­eig­enda í Forna­stekk segir það lítt skilj­an­legt að fram­kvæmda­að­ila komi til hugar að ráð­gera upp­bygg­inu og starf­semi vind­orku­vers á Brekku­kambi „þar sem vind­myllur munu gnæfa yfir, í nálægð við mörg svæði sem skipu­lögð hafa verið sem frí­stunda­byggðir svo ekki sé talað um þá sem hafa fasta búsetu í Hval­firði og nágrenni“.

Sum­ar­húsa­fé­lagið í landi Kambhóls mót­mælir áformunum „af miklum þunga“ og „leggst heils­hugar“ gegn þeim.

Fossinn Glymur í Botnsdal í Hvalfirði er vinsæll áfangastaður útivistarfólks.
Fossinn Glymur í Botnsdal í Hval­firði er vin­sæll áfanga­staður úti­vi­star­fólks.

Bæta þyrfti nýrri raflínu við

Í skýrsl­unni er dregin upp sú mynd að það sé mik­il­vægt fyrir stað­ar­valið að Sult­ar­tanga­línur 1 og 3 séu við hið fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði. „Þetta er væg­ast sagt kjána­leg athuga­semd þar sem teng­ing 50 MW afls kæmi aldrei til greina inn á aðra hvora lín­una vegna þess kostn­aðar sem því yrði sam­fara,“ skrifar einn sum­ar­húsa­eig­andi. Teng­ingin myndi alltaf fel­ast í loft­línu eða jarð­streng inn að spenni­stöð í Brenni­mel. Svæðið beri hins vegar ein­fald­lega ekki eina háspennu­línu til við­bótar.

Eigendur Kala­staða segja að um land þeirra liggi nú þegar þrjár stórar raf­línur. „Við munum ekki sætta okkur við eina lín­una enn fyrir einka­fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eigu Norð­manna og okkur er full­kunn­ugt um að því er einnig þannig farið með nágranna okkar.“

Slóðar þola ekki þungaflutninga

Annar bendir á að í áætl­un­inni sé gert ráð fyrir að fara eftir gömlum vinnu­slóða að fram­kvæmda­svæð­inu og „styrkja hann eftir þörfum“ líkt og það er orðað í skýrslu Zephyr. „Þeir gríð­ar­legu þunga­flutn­ingar sem verk­efnið útheimtir þurfa minnst 5-6 metra breiðan veg sem þolir akst­urs­þunga tuga tonna öku­tækja,“ skrifar Elísabet Hall­dórs­dóttir. Fyr­ir­hug­aður vegur liggi í gegnum jörð­ina Þór­is­staði í Svínadal og þar hafi ekk­ert verið rætt við land­eig­anda sem sé alfarið á móti fram­kvæmd­inni. „Sum­ar­húsa­eig­endur í landi Brekku telja sig svikna með fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum þar sem engin slík áform voru uppi þegar þeir keyptu lóðir sínar af sömu aðilum og standa nú fyrir áformum um vind­myllu­garð á Brekku­kambi.“

Vindorkuverum á ekki að tylla á fjallatoppa

Jörðin Stóri-Botn komst árið 1939 í eigu fjöl­skyldu sem á hana enn í dag. Innan jarð­ar­innar er meiri­hluti Botns­dals og foss­inn Glymur. Hefur fjöl­skyldan æ síðan staðið vörð um fram­tíð dals­ins sem nátt­úruperlu, segir í umsögn hennar. Hún segir fram­kvæmda­menn oft hafa litið svæðið hýru auga og gert áætl­anir um t.d. virkjun í Botnsá, lagn­ingu háspennu­línu um dal­inn og veg til Þing­valla. „Þessar fram­kvæmdir hefðu gjör­spillt dalnum sem nátt­úruperlu og úti­vistar­para­dís enda börð­ust eig­endur Stóra-Botns hart gegn þeim,“ skrifar fjöl­skyldan.

„Iðn­að­ar­svæðið á Grund­ar­tanga er nú þegar ærinn óskapn­aður á ásýnd lands­ins í Hval­firði og er frá­leitt að kór­óna þá ásýnd með vind­myllu­garði sem bæri við him­inn á Brekku­kambi og það í grennd við þétt­býlasta hluta lands­ins. Svona mann­virkjum á ekki að tylla á fjallatoppa. Myndi ein­hverjum detta í hug að byggja vind­orku­ver á Úlf­ars­felli, Mosfelli, Esjubrún eða Akra­fjalli?“

Hvað með að setja verið í 101 Reykjavík?

Því ekki að nýta Kol­beinsey til að reisa vind­myllur, leggur Björn Hall­dórs­son, sum­ar­húsa­eig­andi í Skorra­dal til, „eða finna stað þar sem þær blasa við öllum úr 101 Reykja­vík hvar skrif­stofa Zephyr Iceland er stað­sett. Þeim sem þannig er umhugað um vind­myllur geta þá dáðst að þeim í sínu nærum­hverfi“.

Brekkukambur frá hringveginum.
Brekku­kambur frá hring­veg­inum.

Ekki brjóta ísinn

Útsýni er ein af nátt­úru­auð­lindum Íslands, skrifar Gunn­laugur A. Júl­í­us­son hag­fræð­ingur. „Mik­il­vægt er að spilla ekki yfir­bragði lands­ins meira en þegar hefur verið gert með lagn­ingu raf­magns­lína. Að byggja risa­vaxin vind­orku­ver uppi á hálsum og heiðum sem munu sjást í tuga eða hund­ruð kíló­metra fjar­lægð er veru­legt inn­grip í ásýnd og yfir­bragð lands­ins.“

Með því að hleypa af stað einni fram­kvæmd af þess­ari gerð, sem hefur áhrif á ásýnd lands­ins í tuga kíló­metra rad­íus væri „ísinn brot­inn og upp­bygg­ing áþekkra mann­virkja væri hafin um allt land,“ skrifar hann.

Elísabet Hall­dórs­dóttir tekur undir þetta og þykir það ekki heilla­væn­leg þróun að fjár­sterkir, erlendir aðilar geti „ætt af stað og byggt upp vind­myllu­garða hvar sem þeir vilja“. Viss lík­indi séu með öllum þessum vind­orku­á­formunum og því þegar norskir aðilar hófu að byggja upp fisk­eldi áður en ríkið var búið að setja reglu­verk um slíka starf­semi við Íslands­strendur.

Einu hvatarnir að græða

„Það hlýtur að vera eðli­leg og sann­gjörn krafa að stjórn­völd fari fyrst í að skoða og greina mögu­leg svæði sem gætu nýst fyrir orku­öflun með vind­myllum í stað þess að taka ein­stök verk­efni einka­að­ila fyrir sem hafa enga hvata aðra en að græða á umræddu verk­efni með sem minnstum til­kostn­aði,“ segja Friðrik Frið­riks­son og Bryndís María Leifs­dóttir, íbúar í Hval­fjarð­ar­sveit, í sinni umsögn.

„Ein megin ástæða þess að við fjár­festum á sínum tíma í sum­ar­húsi að Vatns­enda­hlíð var sú að eignin stóð á vatna­lóð og bauð upp á ein­stakt útsýni þar sem Skorra­dals­vatn og fjöllin í kring mynd­uðu ein­staka og óskerta nátt­úru­sýn,“ skrifar Sjöfn Everts­dóttir. „Ef af fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum verður er aug­ljóst að sú sýn mun ekki lengur vera til staðar.“

Munu engu skila fyrir nærsamfélagið

Hulda Guð­munds­dóttir, Fitjum, hefur staðið fyrir göngu­ferðum skammt frá Brekku­kambi og víðar á svæð­inu. Einn aðalsjarmi svæð­is­ins eru hin ósnortnu víð­erni. „Engar mót­væg­is­að­gerðir munu nokkru sinni geta breytt þeirri stað­reynd að vind­myllur eru fram­andi og var­an­legt lýti á allri ásýnd lands­lags­ins. Þær munu blasa við frá stórum hluta Borg­ar­fjarðar.“

Heiðrún Jóns­dóttir, eig­andi jarð­ar­innar Dag­verð­ar­ness segir fram­kvæmd­ina engu skila í sam­fé­lagið „nema ömur­legri ásýnd og óaft­ur­kræfum skemmdum á umhverfi í Hval­fjarð­ar­sveit, Skorra­dal og nálægum sveitum“.

Ábúendur og ferða­þjón­ustu­bændur á Kala­stöðum telja að vand­fund­inn sé sá staður á land­inu þar sem vind­myllur eiga síður heima en einmitt á Brekku­kambi. „Fjalla­sýnin hér er ein­stök.“ Þeir segja að velta megi fyrir sér hvort Zephyr Iceland sé að setja fram óraun­hæfa áætlun vís­vit­andi til að geta bakkað, ákveðið að setja upp lægri vind­myllur, og haldið því svo fram „að með því hafi verið komið til móts við íbúa og aðra sem and­mælt hafa fram­kvæmd­inni“.

Mats­á­ætlun Zephyr fyrir vind­orku­ver í landi Brekku var aug­lýst í sumar og skil­uðu líkt og að ofan er rakið tugir fólks umsögnum auk þess sem yfir 1.000 ein­stak­lingar skrif­uðu nafn sitt á skjal þar sem því er harð­lega mót­mælt að verið rísi.

Reikna með að umhverfismatið takið 2-3 ár

Mats­á­ætlun er eitt fyrsta skrefið sem fram­kvæmda­að­ilar taka í átt að mati á umhverf­is­á­hrifum. Það næsta felst í því að yfir­fara inn­komnar athuga­semdir, bæði frá ein­stak­lingum og stofn­unum og svara þeim og senda Skipu­lags­stofnun sem mun svo gefa álit sitt á mats­á­ætl­un­inni.

Þá hefst síð­asta skrefið, að skila umhverf­is­mats­skýrslu sem allir geta einnig skilað athuga­semdum við. Ferlinu lýkur svo með áliti Skipu­lags­stofn­unar.

Í mats­á­ætl­un­inni, sem verk­fræði­stofan EFLA vann fyrir Zephyr Iceland, segir óvíst hvenær fram­kvæmdir við upp­setn­ingu vind­orku­garðs­ins gætu haf­ist. Fram kemur að umhverf­is­mats­ferlið geti tekið 2-3 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið undanfarið ár