Íslenskir sérhagsmunaaðilar með „erlenda orkurisa í farteskinu“

Þótt ekkert vind­orkuver sé risið hafa áform um fjölmörg slík þegar valdið sundrungu og deilum innan samfélaga út um landið, segir Andrés Skúlason, verkefnis­stjóri hjá Landvernd. Hann segir vind­orku­fyrirtæki beita miklum þrýstingi og jafnvel blekkingum.

Horft niður í Hvalfjörð frá Brekkukambi í Hvalfjarðarsveit. Á fjallinu stendur til að byggja vindorkuver.
Horft niður í Hval­fjörð frá Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit. Á fjall­inu stendur til að byggja vind­orku­ver.

„Það má hverjum sem fylgst hafa með vera ljóst að hafin er mikil herferð vind­orku­fyrirtækja á náttúru og víðerni Íslands,“ segir Andrés Skúlason, verkefnis­stjóri hjá Landvernd og fyrr­verandi oddviti í Djúpa­vogshreppi og formaður Náttúru­verndar­samtaka Austur­lands. Andrés hefur aflað sér viða­mikillar þekkingar á vind­orkuverum, m.a. frá Noregi, og fylgst vel með fram­komnum áformum hér á landi.

„Brekku­kambur er einmitt dæmi um staðarval sem mun hafa gríðarleg ásýndar­áhrif auk annarra mengunar­þátta,“ skrifar Andrés í ítarlegri umsögn sinni um áformað 50 MW vind­orkuver með 8-12 vind­myllum á Brekku­kambi, hæsta fjallinu á Hval­fjarðar­strönd. „Svo mikill er þrýstingurinn frá vindorku­geiranum orðinn að hvorki fulltrúar sveitar­félaga og eða stjórn­völd virðast geta staðið með eðlilegum hætti að málum heldur láta undan þrýstingi sérhagsmuna á kostnað íslenskrar náttúru og almennings í þessu landi.“

Tugir íbúa og sumarhúsa­eigenda gera alvarlegar athuga­semdir við byggingu vind­orkuversins í landi jarðarinnar Brekku í Hval­fjarðar­sveit. Þá hafa stofnanir ýmsar athuga­semdir um fyrir­ætlanirnar, líkt og Kjarninn hefur rakið síðustu daga. Umhverfis­mats­ferli framkvæmdarinnar er hafið.

„Ísland er í einstakri stöðu er varðar orkuöflun og það er enginn að brenna út á tíma hér á landi í þeim efnum,“ segir Andrés um þann æðibunu­gang sem einkenna virðist áform í uppbyggingu vind­orkuvera hér á landi. Að mati Andrésar gildir nú aldrei sem áður að vanda sérstak­lega til verka „og það gera menn ekki á sprett­hlaupi sem nú þó stefnir í“.

34 virkjunar­kostir í vindorku fóru til umfjöllunar 4. áfanga ramma­áætlunar á árunum 2020-2021. Verin eru áformuð um allt land, jafnt í nágrenni byggðar sem á fáfarnari slóðum á hálendi eða í nágrenni þess. Áhuginn á því að virkja vindinn hafði því verið bersýni­legur í nokkur ár áður en ríkis­stjórnin ákvað að setja á laggirnar starfshóp til að skapa ramma um slíka orku­nýtingu. Hópurinn á að skila af sér tillögum í febrúar á næsta ári.

„Það er kunnugra en frá þurfi að segja að nú um stundir hagnýtir orku­geirinn sér upplýsinga­óreiðuna um orkumálin og sækir fram sem aldrei fyrr í nafni orku­skipta,“ segir Andrés. Fámennur hópur sveitar­stjórnar­fulltrúa ásamt fulltrúum vind­orku­fyrirtækja með stórar verkfræði­stofur að baki sér hafi þegar valdið „sundrung og deilum“ innan samfélaga út um landið. Íbúum smærri samfélaga sé gjarnan stillt upp að vegg og „valtað yfir þá með ósann­gjörnum og ólýðræðislegum þrýstingi“. Andrés segir það rannsóknar­efni að „misbjóða íbúum um land allt með þessum hætti“.

Í huga Andrésar sætir það furðu hversu skipulags­valdið virðist veiga­lítið og lítt áberandi meðal margra sveitar­félaga þegar orku­geirinn mæti í hlað, þá virðist öllum prinsippum vikið til hliðar. Sífellt auknum þrýstingi hafi verið beitt og hafi hann marg­faldast þegar sýnt var loks að setja ætti lög og reglur um vindorku­geirann. „Þá stekkur orku­geirinn fram á sviðið og setur mál í skipulags­ferli og rekur á eftir og telja þannig að þeir séu að styrkja stöðu sína.“ Segir hann þetta svipað og þegar erlend fiskeldis­fyrirtæki byrjuðu að hamstra leyfi til fiskeldis áður en lög og reglur voru settar um þá starfsemi.

Andrés segir alla umræðu og áætlanir í kringum vind­orkuver hér á landi ekki hafa verið í neinum samhljómi við þær stað­reyndir sem í ljós eru komnar erlendis um neikvæð áhrif vind­orkuvera. „Þessi upplýsinga­óreiða eða öllu heldur skortur á réttum upplýsingum hefur leitt til þess að orku­geirinn hefur hagnýtt sér stöðuna hérlendis og ríkjandi stefnu­leysi og þess vegna hafa þeir einfald­lega gert eigin áætlanir með ráðnum verkfræði­stofum og fullkomlega vanmáttugum sveitar­félögum sem trúa því að því er virðist að vind­orkuver séu góð lausn í orkumálum sem þau eru alls ekki.“

Það er fyrir­tækið Zephyr Iceland sem áformar að reisa verið á Brekku­kambi. Fjallið er í 647 metra hæð og vind­myllurnar yrðu um 250 metrar á hæð. Þær munu því sjást mjög víða að.

Gagnrýnir harðlega vinnubrögð móðurfélagsins

Zephyr Iceland er í eigu norska móður­félagsins Zephyr AS. Andrés segir að það hafi „farið offari“ í samskiptum við samfélög erlendis og brotið á þeim með „alvarlegum afleiðingum“ fyrir íbúa á viðkomandi svæðum. Í Noregi hafi tilraunir þeirra með risa­vindorkuver valdið marg­víslegum og alvarlegum mengunar­áhrifum og sundrungu meðal íbúa. „Þau vinnu­brögð sem þar hafa verið viðhöfð eru ekki til þess fallin að stuðla að sátt í nokkru samfélagi. Er þetta það sem Ísland þarf á að halda? Svarið er nei.“

Andrés leggur í umsögn sinni sérstaka áherslu á að íslenskir sérhagsmuna­aðilar með erlenda orkurisa í farte­skinu verði ekki látnir komast upp með að leita viðmiða um stað­setningar og ásýndar­áhrif erlendis frá. „Við getum ekki borið okkur saman við aðrar þjóðir og heima­tilbúin viðmið í öðrum löndum í ljósi sérstæðu íslenskrar náttúru og landslagsheilda,“ skrifar hann. Brekku­kambur í Hval­fjarðar­sveit sé gott dæmi um „fyrirséða hrikalega ásýndar­mengun“.

Losunarbókhald nái yfir allt framleiðsluferlið – líka framleiðslu spaða

Í ljósi „meints áhuga viðkomandi orku­fyrirtækja á svokallaðri grænni orku“ og með sjálf­bærri virðis­keðju á öllum stigum máls að best verður skilið þá sé mjög mikilvægt að Skipulagstofnun kalli almennt eftir nákvæmu losunar­bókhaldi frá framkvæmda­aðila og það allt frá fyrstu stigum fram­leiðslu mann­virkis og spöðum ásamt meðfylgjandi fram­leiðslu á margskonar íhlutum vind­orkuversins.

Andrés bendir á nýjar rann­sóknir sem sýni að gríðarleg örplasts­mengun sé frá spöðum vind­myllanna. Um sé að ræða „stór­fellda mengun sem vind­orku­fyrirtækin hafa reynt að halda frá allri umræðu með því að kaupa sérfræðinga til að skila beinlínis röngum upplýsingum“. Um bæði risastórt náttúruverndarmál sé að ræða sem og stórt heilbrigðis­vandamál. Eitt þeirra efna sem t.d. er notað í spaða í dag er Bisphenol A sem talið er geta valdið þroska­frávikum hjá börnum og hafi, ef það komist inn í líkama fólks jafnvel áhrif á blóð­þrýsting þess og þar af leiðandi ýmsa sjúkdóma.

Mikil veðrun í íslensku veðurfari

„Ef magn Bisphenol A er eitthvað nálægt þeirri stærðar­gráðu sem kemur fram í skýrslunni að sé í vindmyllu­spöðum er ljóst að vindorku­fram­leiðendur eru að halda gríðar­lega mikil­vægum og alvarlegum upplýsingum leyndum fyrir eftirlits­aðilum,“ skrifar Andrés í umsögn sinni. Skipulags­stofnun verði einfald­lega að fá út úr þessum þáttum skorið. „Ýmislegt bendir til þess að Ísland henti einmitt mjög illa vegna vindorku­örplasts­mengunar vegna úrkomu í formi bæði rigningar og éljagangs, ísingar og fleiri veðrabrigða sem auka slit á spöðum. Brekku­kambur í Hval­fjarðar­sveit er sérstak­lega illa í sveit settur vegna þessara áhrifa.“

Talið er að vindorku­spaðar þurfi yfirhalningu á um það bil 5 ára fresti vegna slits, skrifar Andrés. Heildar­líftími spaðanna er um 10-15 ár og þá þarf að skipta þeim út og farga – oftast urða – með tilheyrandi neikvæðum umhverfis­áhrifum. „Öllum þessum neikvæðu áhrifum og upplýsingum hafa þau vind­orku­fyrirtæki sem haldið hafa kynningar­fundi hér á landi hreinlega sleppt að upplýsa íbúa um.“ Hann segir ekki ganga að fyrirtæki í mengandi iðnaði komist upp með að villa svo mjög fyrir almenningi og stjórn­sýslunni einnig.

„Ísland á að sýna meiri metnað en svo að gera meiri kröfur en svo að láta draga sig niður á lægsta plan er varðar umhverfis­viðmið með því að horfa í gegnum fingur sér í trausti þess að vind­orku­fyrirtækin hafi eftirlit með sjálfum sér og leggi allt um kring mat á eigið ágæti. Vindorku­geirinn er ekkert öðruvísi en annar orkugeiri – arðsemis­útreikningar og sérhagsmuna­gæsla vigta þar meira en umhverfi og náttúra.“

Andrés segir að „undir engum kringum­stæðum“ megi gefa afslátt af kröfum er varðar mengunar­þætti. Því verði Skipulags­stofnun að gera ítrustu kröfur í því „áhlaupi sem hin erlendu vind­orku­fyrirtæki“ séu að gera á auðlindir Íslendinga. „Ef áform um vind­orkuver við Brekku­kamb í Hval­fjarðar­sveit verða að veruleika er einsýnt að verið er að fórna hagsmunum samfélagsins alls fyrir sérhagsmuni.“

Og ef Skipulags­stofnun og stjórn­völdum tekst ekki að koma böndum á þessa tegund orku­framleiðslu „mun Ísland standa með þver­klofna þjóð ef gefið verður eftir“.

Ávísun á ófullnægjandi vinnubrögð

Í umsögn Land­verndar á mats­áætlun Zephyr Iceland vegna áformanna í Hval­fjarðar­sveit segir að ljóst sé að margir fjár­sterkir aðilar séu með áform um vind­orkuver og það skapi bæði þrýsting og hættu á að aðilar sem ekki hafa sama fjárhags­lega bolmagn njóti jafnræðis við að koma sjónar­miðum sínum á framfæri. Hlutverk Skipulags­stofnunar og annarra yfirvalda sé að tryggja réttláta meðferð og koma í veg fyrir að þrýstingi sé beitt frá einka­aðilum eins og orku­geiranum.

„Í mörgum tilfellum er um erlend stór­fyrirtæki að ræða og reynslan sýnir að það er mikil hætta á að eðlilegur hluti arðsins skili sér hvorki til nær samfélagsins né til þjóðarinnar. Þeir sem verða fyrir mestu ónæði og tjóni njóta ekki góðs af ávinningi,“ skrifar Ágústa Þ. Jóns­dóttir, vara­formaður Land­verndar.

Starfs­hópi um vindorku sem nýlega var skipaður sé „því miður“ ætlað að vinna flókið viðfangs­efni á óraunhæfum hraða. „Landvernd óttast mjög að þetta sé ávísun á ófullnægjandi vinnu­brögð með alvarlegum afleiðingum á kostnað náttúru landsins og tilheyrandi klofningi meðal samfélaga vítt og breytt um landið af áður óþekktri stærðar­gráðu.“

Stjórn Land­verndar telur skynsamlegt að leggja öll áform um vind­orkuver á ís þar til niður­staða starfs­hópsins liggur fyrir og afstaða hefur verið tekin til hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár