Vindorkuverið hefði „veruleg áhrif á ásýnd“ Hvalfjarðar og nágrennis

Hval­fjörður er þekktur fyrir fjöl­breytt og fallegt landslag. Stofnanir segja „mjög vandasamt“ að skipuleggja svo stórt inngrip sem vind­orkuver er á slíku svæði og að það yrði „mikil áskorun“ að ná sátt um byggingu þess.

Vindmyllurnar sem yrðu notaðar í vindorkuverið í Hvalfirði yrðu um 250 metrar á hæð. Þær yrðu á fjalli sem er 647 metrar á hæð og því sjást mjög víða að.
Vind­myll­urnar sem yrðu not­aðar í vind­orku­verið í Hval­firði yrðu um 250 metrar á hæð. Þær yrðu á fjalli sem er 647 metrar á hæð og því sjást mjög víða að. Mynd: EPA

Ljóst er að vind­orkuver sem Zephyr Iceland áformar á Brekku­kambi í Hval­fjarðar­sveit hefði mikil áhrif á ásýnd svæðisins enda Hval­fjörður svæði sem er þekkt fyrir fjöl­breytt og fallegt landslag .Að mati Náttúru­fræði­stofnunar er mjög vandasamt að skipuleggja svo stórt inngrip í landslag á svæði af slíkum toga. Heilbrigðis­eftirlit Vestur­lands telur það mikla áskorun að ná sátt um byggingu vind­orkuvers í svo lítilli fjarlægð frá sumar­húsum og lögbýlum og Umhverfis­stofnun telur að frekar ætti að staðsetja vind­myllur á núverandi orkuvinnslu­svæðum þar sem allir innviðir til flutnings raforku og vegir eru til staðar og á landi hefur þegar verið raskað.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum stofnana við mats­áætlun Zephyr Iceland á fyrir­huguðu vind­orkuveri í Hval­fjarðar­sveit. Verið yrði 50 MW að afli og ráðgert er að það rísi á um 300 hektara svæði á Brekku­kambi, í landi Brekku. Reistar yrðu 8-12 vind­myllur sem hver um sig yrðu 250 metrar á hæð. Brekku­kambur er 647 metra hátt fjall í norðan­verðum Hvalfirði.

Til framkvæmdarinnar þyrfti m.a. að steypa grunn undir hverja vindmyllu og gera vinnuplan fyrir þær allar. Reisa á safnstöð á framkvæmda­svæðinu og byggingar fyrir skrif­stofur, snyrtingu, eldhús, geymslu og fleira tengt rekstri vind­orkuversins. Innan framkvæmda­svæðisins á svo að leggja nýja malar­slóða, alls 12 kílómetra á lengd og 6 metra á breidd. Gert er ráð fyrir að lagðir verði um 36 kíló­metrar af jarð­strengjum á milli vindmylla og að safnstöð og alls 12 km af loftlínum frá tilteknum vind­myllum að safnstöð. Þá er gert ráð fyrir að loftlína frá safnstöð að tengi­virki Landsnets verði um 10 kíló­metrar. Loks er gert ráð fyrir að nýr slóði verði lagður frá Dragavegi að framkvæmda­svæðinu.

Tugir athugasemda frá fólki sem býr í Hvalfirði og næsta nágrenni mótmæla byggingu versins líkt og Kjarninn fjallaði nýverið um. Sjón­mengun, hávaða­mengun og áhrif á fuglalíf eru þeim ofarlega í huga. Vind­myllurnar myndu gnæfa yfir stórt svæði og sjást í tuga kílómetra fjarlægð.

Mjög nálægt mikilvægu fuglasvæði

Náttúru­fræði­stofnun hefur skilgreint Hvalfjörð sem mikilvægt fugla­svæði og er það tilnefnt á B-hluta náttúru­minjaskrár. Um fjörðinn liggja m.a. farleiðir margæsa, rauðbrystinga og fleiri farfugla og þar verpa ýmsar tegundir. Hafernir heimsækja fjörðinn, íbúar segja þá hafa átt sér varpstað þar í áratugi.

„Þótt framkvæmda­svæðið skarist ekki við mörk fugla­svæðisins er það mjög nálægt því og afar mikilvægt er að meta hvort farleiðir t.d. margæsa liggi þar um,“ segir í umsögn stofnunarinnar. „Sérkennilegt og óheppilegt“ sé að ekki sé stefnt að því að framkvæma ratsjár­mælingar við fugla­rann­sóknirnar sem eru að mati stofnunarinnar nauðsynleg viðbót við sjónarhóls­mælingar til að meta far fugla um svæðið.

Ljóst er að áhrif framkvæmdarinnar á landslag og ásýnd svæðisins verða mikil og í umhverfis­matinu þurfi því að taka tillit til margra ásýndar­sjónarhorna til að fá heild­stæða sýn yfir landslags­áhrifin. Náttúru­fræði­stofnun telur ástæðu til að bæta við allmörgum mynda­tökustöðum t.d. viðkomu­stöðum ferða­fólks eins og á útsýnis­staðnum ofan við Hvalfjarðar­eyri vestan Kjósar, Hvammsvík og Hvítanes í innan­verðum Hvalfirði, af Þyrilsnesi, af gönguleið á Leggja­brjóti, af göngu­leiðum í Skorradal og af útsýnis­stöðum á göngu­leiðum upp á Akrafjall, Esju, Móskarðs­hnúkum og Skarðs­heiði.

Þá bendir Náttúru­fræði­stofnun á að í mats­áætluninni sé ekki fjallað um mögulega plast­mengun frá vindmyllu­spöðum en í nýlegu áliti Skipulags­stofnunar um mats­áætlun fyrir áformað vind­orkuver í Múla í Norður­árdal var gerð krafa um að í umhverfis­matinu væri lagt mat á losnun örplasts.

Gera þarf nákvæma fornleifaúttekt

Minja­stofnun telur ekki nóg að styðjast við fornleifa­skráningu af svæðinu sem gera á í tengslum við nýtt aðal­skipulag Hval­fjarðar­sveitar líkt og framkvæmda­aðili hugðist gera. Stofnunin bendir á í umsögn sinni að fornleifa­skráning sem fram fari í tengslum við aðal­skipulags­vinnu sé oft ónákvæmari en skráning sem unnin er t.d. vegna deili­skipulags þar sem verið er að ákveða endanlega nýtingu lands. Þá sé mjög ólíklegt að við skráningu fornleifa vegna aðal­skipulags sé lögð áhersla á skráningu svæða fjarri þéttbýli og „öruggt að það svæði sem hér er til umfjöllunar hefur ekki verið gengið í leit að forn­leifum,“ segir í umsögn Minja­stofnunar. Því telur stofnunin að fá þurfi fornleifa­fræðing til að skrá allt það svæði sem áætlað er að fari undir vind­orkuverið sem og svæði sem annað jarðrask er fyrir­hugað vegna framkvæmd­anna, s.s. vegna vega­gerðar, endur­gerðar vega eða lagningu rafstrengja.

Veður­stofan fer ekki mörgum orðum um mats­áætlunina í sinni umsögn en bendir þó skýrt á að þar sem Brekku­kambur sé í yfir 600 metra hæð sé líklegt að þar sé töluverð ísing að vetrar­lagi, bæði slyddu­ísing og skýja­ísing.

Landsnet ítrekar í sinni umsögn mikilvægi þess að samráð verði haft við fyrir­tækið um tengi­möguleika. Brýnt sé að huga sérstak­lega að því að þeir falli að framtíðar­hugmyndum Landsnets um uppbyggingu flutnings­kerfisins á svæðinu. Enn fremur þurfi að kanna sérstak­lega hvort mögulegar jarðstrengs­lagnir frá vind­orkuverinu að tengi­punkti við flutnings­kerfið hafi áhrif á afhendingar­gæði raforku.

Landsnet bendir á að háspennu­línur fyrir­tækisins myndu þvera vegi sem Zephyr áætlar að flytja vind­myllurnar um frá höfninni á Grundar­tanga að framkvæmda­svæðinu. Vinna þurfi áhættumat vegna þessa.

Að vera í þögn og vera ekki lengur í þögn

Heilbrigðis­eftirlit Vestur­lands segir margt enn vera óljóst hvað varðar hina fyrir­huguðu framkvæmd, s.s. hvar vegagerð að svæðinu mun liggja. Bendir Þorsteinn Narfason, framkvæmda­stjóri stofnunarinnar á að áhrif af byggingu vega þurfi að vera innifalið í mats­áætlun. Það stækki framkvæmda­svæðið til muna.

Heilbrigðis­eftirlitið telur að þó svo að unnt yrði að halda hljóðvist innan við reglugerðar­mörk s.s. í nálægri byggð þá geti hávaði eða hljóð frá vind­myllum valdið ónæði. Fram kemur að fjarlægð vindmylla frá manna­bústöðum yrði að lágmarki 500 metrar sem sé ekki endilega nægileg fjarlægð til að koma í veg fyrir ónæði. „Þannig getur stöðugur niður sem mælist innan við meðaltals­mörk fyrir heilan sólar­hring haft neikvæð áhrif á líðan og heilsu fólks. Fyrir íbúa og gesti getur þetta munað því að vera í þögn og vera ekki lengur í þögn,“ skrifar Þorsteinn. Heilbrigðis­eftirlitið telur að það geti verið mikil áskorun að ná sátt um þessi mál í svo lítilli fjarlægð frá sumar­húsum og lögbýlum.

Óbyggð víðerni eru svæði sem eru að verða æ sjaldgæfari í heiminum og má reikna með að virði slíkra svæða muni aukast mikið í fram­tíðinni. Í umhverfis­mats­skýrslu ætti að fjalla um verðmæti víðerna með tilliti til þess að manngera þau, segir í umsögninni.

Getur haft áhrif á verð fasteigna

Þorsteinn telur ekki útilokað að vind­myllur geti haft neikvæð áhrif á virði nálægs lands og fasteigna vegna sjónrænna áhrifa og vegna breytinga á hljóð­stigi. Kanna ætti í umhverfis­mati viðhorf íbúa á svæðinu og ferða­þjónustu­aðila til vind­orkuvers á þessum stað.

Að mati Umhverfis­stofnunar er ljóst að framkvæmdin mun hafa veruleg áhrif á ásýnd svæðisins og vera einkennandi í landslagi. Vind­myllurnar yrðu sýnilegar á stóru svæði.

„Á Íslandi er að finna stóran hluta allra óbyggðra víðerna í Evrópu og því mikilvægt að stuðla að verndun þeirra,“ segir í umsögn stofnunarinnar. „Þar sem vind­myllurnar verða líklega sýnilegar og þar af leiðandi ráðandi í landslagi á svæðum sem gætu flokkast sem óbyggð víðerni telur Umhverfis­stofnun að í umhverfis­mats­skýrslu ætti að fjalla sérstak­lega um áhrif framkvæmdar á upplifunar­gildi víðerna.“

Umhverfis­stofnun telur að gera skuli grein fyrir háspennu­línum sem reisa þyrfti vegna vind­orkuversins ef í ljós kæmi að jarð­strengur að næsta tengi­virki henti ekki rekstrar­forsendum Landsnets. Stofnunin telur að í stað þess að staðsetja vind­orkuver á svæðum þar sem innviðir eru ekki til staðar og nauðsynlegt yrði að leggja nýjar háspennu­línur sem séu „ekki sérlega vinsæl mannvirki um þessar mundir“ ætti frekar að staðsetja vind­myllur á núverandi orkuvinnslu­svæðum þar sem allir innviðir til flutnings raforku og vegir eru til staðar og í landi hefur þegar hafi verið raskað.

Reikna með að umhverfismatið takið 2-3 ár

Mats­áætlun er eitt fyrsta skrefið sem framkvæmda­aðilar taka í átt að mati á umhverfis­áhrifum. Það næsta felst í því að yfirfara innkomnar athuga­semdir, bæði frá einstaklingum og stofnunum og svara þeim og senda Skipulags­stofnun sem mun svo gefa álit sitt á mats­áætluninni.

Þá hefst síðasta skrefið, að skila umhverfis­mats­skýrslu sem allir geta einnig skilað athuga­semdum við. Ferlinu lýkur svo með áliti Skipulags­stofnunar.

Í mats­áætluninni, sem verkfræði­stofan EFLA vann fyrir Zephyr Iceland, segir óvíst hvenær framkvæmdir við uppsetningu vindorku­garðsins gætu hafist. Fram kemur að umhverfis­mats­ferlið geti tekið 2-3 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár