Áformin einkennist af „einhvers konar firringu“

Zephyr Iceland, sem áformar vind­orkuver í Hvalfirði, „forðast að snerta á kjarna málsins“ í mats­áætlun á fram­kvæmd­inni. Kjarninn er sá að mati Skúla Mogensen, eiganda sjóbað­anna í Hvammsvík, að áformin einkennast af „einhvers konar firringu“.

Skúli Mogensen hefur byggt upp mikla ferðaþjónustu í Hvammsvík i Hvalfirði.
Skúli Mogensen hefur byggt upp mikla ferða­þjón­ustu í Hvamms­vík i Hval­firði. Mynd: Samsett mynd

Ef vind­orkuver Zephyr Iceland verður reist á Brekku­kambi í Hval­fjarðar­sveit mun það gjör­breyta útsýni gesta sjóbaða Skúla Mogensen í Hvammsvík. Hann er vægast sagt ósáttur við áformin. Í umsögn sem lögmaður sendir fyrir hans hönd segir að mats­áætlun Zephyr um framkvæmdina sé haldin „stórkost­legum annmörkum“. Í henni sé farið vítt og breitt yfir ýmis atriði sem varða áformað vind­orkuver en „forðast að snerta á kjarna málsins“. Hann er sá að mati Skúla að áformin einkennist af „einhvers konar firringu“.

Þeta megi ráða t.d. af því að ætlunin sé að byggja orkuverið á 647 metra háu fjalli, að hver vindmylla verði svo um 250 metrar á hæð sem samsvarar 3,3 Hallgríms­kirkju­turnum. Þær munu því teygja sig í um 900 metra hæð yfir sjávar­máli. „Ætlunin er að gera þetta rétt hjá höfuð­borgar­svæðinu og í námunda við helstu útivistar­svæði borgarbúa og öll þau helstu svæði sem ferðamenn leita helst til.“

Umhverfismat Zephyr Iceland á vind­orkuveri í landi bæjarins Brekku í Hval­fjarðar­sveit hófst í sumar með kynningu á mats­áætlun sem auglýst var á vef Skipulags­stofnunar. Verið myndi telja 8-12 vind­myllur, verða 50 MW að afli, og vegna hæðar sinnar yfir sjávar­máli blasa við víða að – allt frá sveitinni sem það yrði byggt í upp á Langjökul og Skjald­breið.

Tugir íbúa og sumarhúsa­eigenda í nágrenninu sendu inn athuga­semdir um mats­áætlunina og gagnrýna þeir allir fyrir­ætlanir Zephyr harðlega líkt og Kjarninn hefur fjallað ítarlega um. Verið er aðeins eitt af mörgum sem fyrir­tækið áformar á Íslandi. Zephyr Iceland er í meirihluta eigu norska fyrir­tækisins Zephyr AS.

Lögmaður Skúla segir hann hafa fjárfest verulega í vistvænni ferða­þjónustu í Hvammsvík og að hann yrði „óþyrmilega fyrir barðinu á því ef þessi áform myndu raun­gerast“. Tilvist versins myndi orka sem „stórkost­legur hemill“ á fjár­festingu í ferða­þjónustu í Hvalfirði og víðar enda myndi sjást til vind­myllanna frá Húsafelli, lengst innan úr Norður­árdal, frá Langjökli, Þóris­jökli, frá Skjald­breið, frá Gjástykki við Þingvelli og ofan af Mosfells­heiði.

„Í þessu myndi felast ómældur skaði, langt umfram ávinning af framkvæmdum, sem framkvæmda­aðilar virðast ekki leggja raunhæft mat á með nokkrum hætti,“ segir í umsögninni.

Þá séu ótalin ýmis önnur umhverfis­áhrif sem hljótast myndu af vind­orkuverinu. Þekkt sé að vistkerfi og víðerni landsins eru mun viðkvæmari fyrir hvers kyns raski eftir því sem leitað er hærra yfir sjávarmál. „Sætir samkvæmt þessu furðu að engir aðrir valkostir séu teknir til skoðunar en sá sem kynntur er og hann borinn saman við svonefndan „núllkost“.“ Fjölmargir aðrir valkostir hljóti að vera til staðar en að byggja vind­orkuver á toppi Brekku­kambs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár