Austurríki grípur til refsiaðgerða gegn innflytjendum

Þjóðar­flokkur Austur­ríkis og Frelsis­flokkurinn, sem nú sitja við völd þar í landi, hafa sett á stefnu­skrá sína að refsa útlendingum sem aðlagast samfélaginu ekki nægilega mikið.

Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis.
Sebast­ian Kurz, kansl­ari Aust­ur­ríkis. Mynd: EPA

Stjórn­völd í Austur­ríki eru komin með áætlun fyrir refsiaðgerðir gegn innflytjendum sem leitast við að halda í eigin menningararf og sem aðlagast þjóð­félaginu ekki nægilega mikið.

Þetta kemur fram í frétt The Indepentent.

Tveir flokkar sitja nú við stjórnvölinn, Þjóðar­flokkur Austur­ríkis (OVP) og Frelsis­flokkurinn (FPO). Þeir samþykktu stefnumál um síðustu helgi þess efnis að þeir innflytjendur sem „neita að samlagast“ ættu von á refsiaðgerðum í kjölfarið.

Í fréttinni segir jafnframt að í áætluninni sé styrkur til hælis­leitenda lækkaður. Refsiaðgerðir séu hins vegar hægt að taka til baka með því að fjöl­skyldur vinni sér inn „aðlögunar-bónus“ ef þær eru duglegar að samlagast austurrísku samfélagi.

Áætlunin felur einnig í sér hraðari vinnslu brott­vísana úr landi og verður reynt að sporna við myndun annarra menningarlegra samfélaga.

„Við viljum vernda heimaland okkar, Austur­ríki, sem stað sem fýsilegt sé að búa á með öllum þeim menningar­legum eigin­leikum sem landið hefur upp á að bjóða. Í þessu felst að við veljum hverjir geti flutt inn í landið, búið með okkur og að binda endi á ólöglegan innflutning fólks,“ segir í stjórnar­sáttmála flokkanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár