Flokkur fólksins mælist stærri en Björt Framtíð

Samkvæmt nýjum Þjóðar­púlsi Gallup mælist Flokkur fólksins með 3,8 prósenta fylgi en Björt Framtíð aðeins 3,3 prósenta fylgi.

Þingflokkur Bjartrar framtíðar
Þing­flokkur Bjartrar fram­tíðar Stuðn­ingur við Bjarta fram­tíð hefur aldrei mælst minni. Mynd: Facebook

Fylgi Bjartrar framtíðar mælist minna en fylgi Flokks fólksins samkvæmt nýjum þjóðar­púlsi Gallup. Björt framtíð mælist aðeins með 3,3 prósenta fylgi en 5 prósent atkvæða þarf til þess að ná manni inn á þing. Flokkur fólksins mælist hins vegar með 3,8 prósenta fylgi.

Í síðustu viðhorfs­könnun Gallup sem fram fór í lok maí mældist Flokkur fólksins í fyrsta sinn stærri en Björt framtíð. Þá mældist fylgi Flokks fólksins 4,2 prósent en fylgi Bjartrar framtíðar var aðeins 3,6 prósent.

Björt framtíð hefur frá kosningum ekki mælst með minna fylgi. Flokkurinn hlaut 7,2 prósent atkvæða í alþingis­kosningunum í fyrra en stuðningur við flokkinn hefur minnkað jafnt og þétt síðan í nóvember í fyrra.

Páll Valur Björns­sonSagði sig úr Bjartri fram­tíð vegna rík­is­stjórn­ar­við­ræðna flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Ríkis­stjórnar­samstarf Bjartrar framtíðar við Sjálfstæðis­flokkinn og Viðreisn vakti ólgu innan Bjartrar framtíðar. Þannig greiddi fjórðungur stjórnar­manna flokksins atkvæði gegn stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar. Þá hafa þrír fyrr­verandi þingmenn sagt sig úr flokknum frá kosningum. Páll Valur Björnsson, fyrr­verandi þingmaður flokksins, gagnrýndi stjórnar­myndunar­viðræður Bjartrar framtíðar við Viðreisn og Sjálfstæðis­flokkinn harðlega frá upphafi viðræðna í nóvember 2016. Sagði hann Bjarta framtíð og Sjálfstæðis­flokkinn eiga enga samleið saman og sagði sig því úr flokknum. Auk Páls hafa Brynhildur Péturs­dóttir og Róbert Marshall sagt sig úr flokknum en þau vildu ekki tengja þá ákvörðun við samstarf flokksins við Sjálfstæðis­flokk og Viðreisn.

Viðreisn mælist með 5,6 prósenta fylgi sem er með því lægsta sem flokkurinn hefur mælst hjá Gallup frá kosningum. Viðreisn hlaut 10,2 prósent atkvæða í síðustu alþingis­kosningum og sjö þingmenn en kæmist rétt inn á þing miðað við mælingar í dag.

Sjálfstæðis­flokkurinn mælist með 27,5 prósenta fylgi, Vinstri græn með 21,5 prósenta fylgi, Píratar með 14,2 prósent, Framsókn með 11,3 prósent og Samfylkingin 9,2 prósent.

Gallup gerði mælinguna dagana 15. júní til 2. júlí. Úrtakið var 2.870 manns og var þátttöku­hlutfallið 56,5 prósent. Rúmlega 10 prósent tóku ekki afstöðu og nær 9 prósent svarenda sögðust myndu skila auðu ef kosið yrði til Alþingis í dag.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár