Hvorki „ofurloforð“ né „brjálæðislegar töfralausnir“

Flokkur fólksins ætlar ekki að koma sér á framfæri með „ofur­loforðum og brjál­æðislegum töfra­lausnum,“ segir Kolbrún Baldurs­dóttir. Hún gagnrýnir menninguna í borgar­pólitíkinni og segir að ef hún komist í meirihluta verði hlustað á minni­hlutann.

Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík.
Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins í Reykja­vík. Mynd: Arnar Þór

Kolbrún Baldurs­dóttir sálfræðingur segist hafa lært mjög margt á þeim fjórum árum sem hún hefur setið í borgar­stjórn fyrir hönd Flokks fólksins. Í viðtali í þættinum Með orðum oddvitanna, hlaðvarps­þætti Kjarnans, er henni tíðrætt um þau „mann­skemmandi“ vinnu­brögð og menningu sem ríki í borgar­pólitíkinni sem hafi oft orðið til þess að hana langar ýmist að gráta eða öskra. Tillögum hennar og annarra í minni­hlutanum hefur í tugatali verið vísað frá án frekari umræðu „eins og hverri annarri drullugri tusku“. Komist Kolbrún inn í borgar­stjórn og í meirihluta vill hún breyta þessu.

„Þú leggur dag við nótt ef þú ætlar virkilega að láta rödd þína heyrast,“ segir hún um þau tól sem fulltrúar minni­hlutans nota sem felast m.a. í bókunum, tillögum og fyrir­spurnum. „Ég ákvað það þegar ég uppgötvaði að ég væri ekki manneskjan sem væri með í ákvarðana­tökunni að nota þetta eins vel og ég gæti.“

Hún segir að Flokki fólksins langi nú að komast á þann stað að geta komið einhverju til leiðar. „Draumurinn er að geta myndað meirihluta með fólki sem hefur áhuga á okkar málum, sem er að setja fólkið í fyrsta sæti og sjá til þess að allir geti átt mann­sæmandi líf í borginni.“

Meðal áherslu­mála sé aðbúnaður barna, eldra fólks, fatlaðra og öryrkja. Henni er skemmt að heyra forystu­menn flokka í núverandi meirihluta veifa gjald­frjálsum leikskóla framan í kjósendur og segist ekki trúa öðru en að fólk sjái í gegnum slíkt. „Flokkur fólksins er ekki flokkur sem ætlar að koma sér á framfæri með ofur­loforðum, brjál­æðislegum töfra­lausnum.“

Börn sem búa við fátækt séu þau sem eigi að einbeita sér að. Um sé að ræða nokkur þúsund börn í Reykjavík. „Fyrir þennan hóp verður bara að vera frítt vegna þess að foreldrarnir eiga ekki krónu með gati til að gera neitt [þegar leigu og öðrum útgjöldum sleppir].“ Ekki eigi að „kreista hverja krónu“ út úr þeim sem minnst hafa á milli handanna.

Kolbrún vill að lögð verði áhersla á að eyða biðlistum barna sem bíða eftir þjónustu á borð við sálfræði- og talmeina­aðstoð. Þá vill hún fleiri sérskóla eins og Kletta­skóla þar sem skóli án aðgreiningar, sem sé falleg hugmynd á blaði, virki ekki fyrir alla.

Hvað varðar húsnæðis­málin segir hún þéttingu byggðar góða og gilda en að fleira þurfi að koma til. Byggja þurfi meira í úthverfunum og í fram­tíðinni ný hverfi. Ekki sé svo nóg að byggja, fólk verði að hafa efni á að kaupa sér íbúðir eða leigja.

Fólk fái að nota þann samgöngumáta sem því henti

Borgar­línan er ekki sérstakt baráttumál Flokks fólksins en fólk þurfi að geta komist á milli staða „tafar­laust“ með þeim leiðum sem það kýs. Núverandi meirihluti vilji koma bílum af götunum en „við viljum að fólk fái að nota sinn bíl ef það kýs og þarf“. Efla þurfi svo almennings­samgöngur samtímis enda séu mörg ár í það að borgar­lína verði að veruleika.

„Ef þú ætlar að eyða biðlistum barna þá kostar það. Það kostar að fjölga fagfólki. Ef þú ætlar að sjá til þess að allir eigi þak yfir höfuðið þá kostar það,“ segir Kolbrún. Peningana megi fá með því að breyta forgangs­röðun. Segir hún í „raun áfall“ að sjá hvernig farið hafi verið með fjármagn í átaki í borginni sem miði að stafrænni umbreytingu. Á þremur árum hafi verið varið þrettán milljörðum í verkefni sem þeirri vegferð tengjast sem hún segir að mörg hver hefðu mátt bíða. „Þetta er svo brjál­æðisleg upphæð.“ Til saman­burðar hafi borgin hingað til sett 1,7 milljarð í borgar­línu­verkefnið.

Gengið verður til kosninga í Reykjavík líkt og öðrum sveitar­félögum landsins þann 14. maí. „Nú er spurningin, er fólk ánægt með mig og okkur í Flokki fólksins í borginni,“ spyr Kolbrún. „Nógu ánægt til að finna að þetta sé fólk sem það vill kjósa aftur?”

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér fyrir neð­an:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár