WOW air studdi þjóðaratkvæðagreiðslur um Reykjavíkurflugvöll

WOW air og stéttar­félag flugmanna félagsins studdu þjóðar­atkvæða­greiðslu um framtíð Reykja­víkur­flugvallar með umsögn sem dagsett er tíu dögum fyrir þrot flug­félagsins.

Áframhaldandi vera Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni hefur verið pólitískt bitbein árum saman.
Áfram­hald­andi vera Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni hefur verið póli­tískt bit­bein árum saman. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tíu dögum áður en að WOW air skilaði inn flug­rekstrar­leyfi sínu, hætti starfsemi og hóf gjaldþrota­meðferð skilaði fyrir­tækið og stéttar­félag flugmanna þess inn sameiginlegri umsögn um þings­ályktunar­tillögu um þjóðar­atkvæða­greiðslu um framtíð Reykja­víkur­flugvallar.

Í umsögninni, sem framkvæmda­stjóri flug­rekstrar­sviðs WOW, formaður íslenska flugmanna­félagsins og formaður Öryggis­nefndar íslenska flugmanna­félagsins skrifa saman undir segir að þessir aðilar telji „augljóst að þjóðar­atkvæða­greiðsla um þetta brýna samgöngumál þurfi að fara fram sem fyrst svo nást megi varanlegur friður um Reykja­víkur­flugvöll allra lands­manna.“

Umrædd þings­ályktunar­tillaga var lögð fram af fulltrúum fimm flokka á Alþingi í fyrra. Fyrsti flutnings­maður hennar er Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Auk hans eru sex aðrir þing­menn flokks­ins á meðal flutn­ings­manna henn­ar. Aðrir flutnings­menn koma úr Miðflokki, Framsóknar­flokki, Vinstri grænum og Flokki fólksins. Sambærilegar tillögur voru fluttar haustið 2016 og vorið 2017 en fengu ekki braut­­ar­­gengi á þingi.

Í grein­­ar­­gerð segir að mark­mið til­­lög­unnar sé að „ þjóðin fái tæki­­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­­­völl­­ur­inn og mið­­stöð inn­­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­­sjá­an­­legri fram­­tíð, m.a. með til­­liti til þjóð­hags­­legra hags­muna. Ljóst er að ríkir almanna­hags­munir fel­­ast í greiðum sam­­göngum innan lands og að stað­­setn­ing flug­­vall­­ar­ins, sem er mið­­stöð inn­­an­lands­flugs, hefur afar mikla þýð­ingu í því sam­hengi. Flug­­­völl­­ur­inn gegnir mjög mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir almenn­ing í land­inu vegna sjúkra- og neyð­­ar­flugs svo og sem vara­flug­­völl­­ur. Þá gegnir flug­­­völl­­ur­inn mjög mik­il­vægu hlut­verki í almanna­varna­­kerfi lands­ins.“

Telur sjálfstjórnarrétt skertan

Borgarráð Reykja­víkur samþykkti umsögn borgar­lögmanns í um tillöguna í síðustu viku. Hún var á þann veg að Reykja­vík­ur­borg legg­ist ein­dregið gegn því að til­lagan verði sam­þykkt, meðal ann­ars vegna þess að hún skerðir stjórn­skrár­varðan sjálf­stjórn­ar­rétt borg­ar­inn­ar, að slík laga­setn­ing gengi gegn skipu­lags­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins og væri í and­stöðu við óskráða meg­in­reglu stjórn­skip­unar um með­al­hóf. Sú umsögn bíður nú samþykki borgar­stjórnar. Þá hafa íbúa­samtök miðborgarinnar sent inn umsögn sem viðrar sambærileg sjónarmið og þau leggjast einnig gegn atkvæða­greiðslunni.

Flestir aðrir umsagnar­aðilar sem skilað hafa inn umsögn, að uppistöðu sveitar­félög á lands­byggðinni, styðja þings­ályktunar­tillöguna.

Flugmenn styðja þjóðaratkvæði

Það gera Félag íslenskra atvinnu­flugmanna og WOW air/Íslenska flugmanna­félagið líka.

Í umsögn WOW air/Íslenska flugmanna­félagsins, sem er dagsett 18. mars eða tíu dögum áður en WOW air fór í þrot, segir meðal annars að það sé mat umsagnar­aðila „að málefni Reykja­víkur­flugvallar séu ekki einkamál höfuð­borgarinnar, heldur alls landsins og þess vegna er þjóðar­atkvæða­greiðsla þjóðþrifamál. Sem dæmi á ríkið meirihluta landsins undir flug­vellinum og af þeim sökum hlýtur þjóðin að þurfa hafa lokaorð um framtíð Reykja­víkur­flugvallar, en ekki bara Reykja­víkurbúar.“

Í umsögn Félags íslenskra atvinnu­flugmanna segir meðal annars að það sé „mjög skiljanlegt að fólk sjái ofsjónum yfir því hvað Reykja­víkur­flugvöllur tekur mikið pláss. Reykja­víkur­flugvöllur var upphaf­lega hannaður sem herflugvöllur þar sem byggingum var dreift um í hernaðar­legum tilgangi. Vegna þeirrar tilvistar­kreppu sem flug­völlurinn hefur verið í er ásýnd og ástand bygginganna eins og raun ber vitni. Þar er fyrst og fremst um að kenna lang­varandi óvissu um framtíð vallarins. Þetta er í raun sú byggð sem mætti etv. þétta í Reykjavík, byggðin sem tilheyrir Reykja­víkur­flugvelli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár