ÍFF óskar eftir rannsókn á hlunnindum til blaðamanna

Í ljósi „óvæginnar“ umfjöllunar um WOW air óskar Íslenska flugmannafélagið, stéttarfélag flugmanna WOW air, eftir rannsókn á hlunnindum til blaða­manna frá helsta samkeppnis­aðila WOW air.

Stéttar­félag flugmanna WOW air, ÍFF, óskar eftir rannsókn á „hlunnindum og sporslum“ til blaða­manna, svo sem fríð­miða­hlunnindum frá helsta samkeppnis­aðila WOW air. Stéttar­félagið óskar eftir þessari rannsókn í ljósi „óvæginnar“ umfjöllunar íslenskra frétta­miðla um WOW air að undan­förnu. Þetta kemur fram í bréfi frá stéttar­félaginu sem stílað er á Hjálmar Jónsson, formann Blaðamanna­félags Íslands.

Vilja einnig láta kanna heimildaöflun íslenskra blaðamanna

Í bréfinu segir að stéttar­félagið óski eftir þessari rannsókn með tilliti til gagnsæis blaða­manna gagnvart lesendum sínum. Í bréfinu segist stéttar­félagið ennfremur vilja láta kanna heimilda­öflun íslenskra blaða­manna um málefni WOW air hverju sinni. Það sé vegna þess að margir þeirra reiða sig meðal annars á upplýsingar frá bloggara, búsettum í Svíþjóð, sem sé „sjálf­skipaður helsti sérfræðingur Íslands í flugmálum og oftar en ekki sé vitnað í „órökstuddar hugleiðingar hans.“

Þar er líkast til átt við vefinn Túristi.is sem haldið er úti af Kristjáni Sigurjóns­syni, Íslendingi sem býr í Svíþjóð, og hefur um margra ára skeið sérhæft sig í umfjöllun um ferða­þjónustu á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár