Formaður BÍ: Fjarstæðukenndir órar hjá stjórn Íslenska flugmannafélagsins

Hjálmar Jónsson segist hafa skilning á því að starfs­menn WOW air hafi áhyggjur af störfum sínum en að rekja einhvern hluta af rekstrar­vanda fyrir­tækisins til umfjöllunar blaða­manna sé að fara í geitarhús að leita ullar.

Hjálmar Jónsson
Hjálmar Jónsson Mynd: Kjarninn.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamanna­félags Íslands, segir að ekki þurfi annað en horfa til umfjöllunar blaða­manna um Icelandair og erfið­leika þess félags, samkeppnis­aðila WOW, til að sjá hversu fjarstæðu­kenndir órar séu á ferðinni í stjórn Íslenska flugmanna­félagsins. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá formanninum sem birt er á vef BÍ.

Stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW a­ir, ÍFF, hefur óskað eftir rann­sókn á „hlunn­indum og sporsl­um“ til­ ­blaða­manna, svo sem fríð­miða­hlunn­indum frá helsta sam­keppn­is­að­ila WOW a­ir. Stétt­ar­fé­lagið óskar eftir þess­ari rann­sókn í ljósi „óvæg­inn­ar“ umfjöll­unar íslenskra frétta­miðla um WOW air að und­an­förnu.

„Það er ábyrgð blaða­manna að fjalla á gagnrýnin hátt um mikilvæg fyrirtæki í íslensku efnahags­lífi, að ekki sé talað um flugfélög sem starfa á viðkvæmum neytenda­markaði. Það er skuld­binding blaða­manna gagnvart íslenskum almenningi. Ég hef skilning á því að starfs­menn WOW air hafi áhyggjur af störfum sínum, en að rekja einhvern hluta af rekstrar­vanda fyrir­tækisins til umfjöllunar blaða­manna er að fara í geitarhús að leita ullar,“ segir Hjálmar í yfir­lýsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár