Sigríður áfram með málefni dómstóla og brotaþola þrátt fyrir hneykslismálin

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra var staðin að því að brjóta lög við skipun dómara, var í brennidepli vegna hneykslis­mála er vörðuðu uppreist æru kynferðis­brotamanna og hefur hert verulega á útlendinga­stefnu Íslands. Hún mun áfram gegna embætti dómsmála­ráðherra og fara með þessi málefni í nýrri ríkis­stjórn.

Sigríður Andersen
Sigríður Andersen Dóms­mála­ráð­herra ræddi við dóm­ara í síð­ustu viku um að „opin­berar per­sónur“ ættu ekki að þola minni „rétt­ar­vernd“ en aðrir borg­arar lands­ins, þegar kæmi að tak­mörkun tján­ingar um þær. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Sigríður Á. Andersen, þingkona Sjálfstæðis­flokksins, mun áfram fara með málefni dómstóla, brotaþola kynferðis­ofbeldis, útlendinga og mann­réttinda í nýrri ríkis­stjórn. Þetta var staðfest með forseta­úrskurði á ríkis­ráðsfundi í dag. 

Leyndi upplýsingum um uppreist æru

Tveir og hálfur mánuður er liðinn síðan ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var slitið vegna mála er vörðuðu uppreist æru dæmdra kynferðis­brotamanna. Í ljós kom að dómsmála­ráðuneytið, undir yfir­stjórn Sigríðar Andersen, hafði gengið lengra í upplýsinga­leynd en lög heimiluðu þegar upplýsingum um meðmæli föður þáverandi forsætis­ráðherra fyrir kynferðis­brota­manninn Hjalta Sigurjón Hauksson var haldið frá almenningi. Um leið hafði hún sagt Bjarna Benedikts­syni einum frá því að faðir hans hefði veitt Hjalta meðmæli. 

Úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst að þeirri niður­stöðu um miðjan september að almenningur hefði átt rétt á upplýsingum um málefni kynferðis­brotamanna sem höfðu sótt um uppreist æru, þvert á þá hörðu afstöðu sem dómsmála­ráðuneytið og þingmenn Sjálfstæðis­flokksins tóku. 

Eftir að stjórnar­samstarfi Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var slitið kallaði ráðgjafaráð Viðreisnar eftir því að fram færi „rannsókn“ á embættis­færslum Sigríðar Andersen og Bjarna Benedikts­sonar. Slík rannsókn fór aldrei fram.

Eins og Stundin greindi frá í gær hefur dómsmála­ráðuneytið enn ekki afhent Alþingi umbeðin gögn um málin sem sprengdu fyrri ríkis­stjórn né svarað upplýsinga­beiðni þingkonu Pírata um málið.

Braut lög við skipun dómara

Í sömu vikunni og í ljós kom að dómsmála­ráðuneytið hafði ekki fylgt upplýsinga­lögum þegar almenningi var neitað um upplýsingar um málefni manna sem höfðu fengið uppreist æru komst Héraðs­dómur Reykja­víkur að þeirri niður­stöðu að Sigríður Andersen hefði brotið lög þegar hún vék frá niður­stöðu hæfis­nefndar við skipun dómara við Landsrétt, nýtt dómsstig sem hafði verið í undir­búningi um árabil.

Sigríður valdi meðal annars umsækjanda sem hafði lent í 30. sæti á lista dómnefndar yfir þá sem metnir voru hæfastir. Sá umsækjandi er eigin­maður fyrr­verandi samstarfs­konu Sigríðar og vinnu­veitanda til margra ára á lögfræði­stofunni Lex. Jafnframt valdi Sigríður eiginkonu Brynjars Níels­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins, sem dómara þótt hún hefði ekki verið í hópi þeirra umsækjenda sem metnir voru hæfastir. 

Að því er fram kom í dómi Héraðs­dóms vegna kærumáls Ástráðs Haralds­sonar, eins þeirra fimmtán sem metnir höfðu verið hæfastir sem dómarar við Landsrétt, var stjórnsýslu­meðferð ráðherra „ekki í samræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórnsýslu­réttarins um rannsókn máls, mat á hæfni umsækjenda og innbyrðis samanburð þeirra.“ Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar sem hefur ekki kveðið upp dóm, en Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, hefur boðað vantrausts­tillögu gegn dómsmála­ráðherra ef Hæstiréttur stað­festir þá niður­stöðu Héraðs­dóms að ráðherra hafi ekki fylgt lögum við meðferð málsins. 

Samkvæmt forseta­úrskurði mun Sigríður Andersen áfram fara með málefni dómstóla og réttar­fars í nýrri ríkis­stjórn. Þá munu málefni er varða „náðun, sakar­uppgjöf og uppreist æru“ heyra undir dómsmála­ráðherra ríkis­stjórnarinnar, Sigríði Andersen.

Rekur harða útlendingastefnu

Á meðal annarra mála sem heyra undir dómsmála­ráðherra eru málefni útlendinga, Útlendinga­stofnunar og Kæru­nefndar útlendinga­mála. Sem dómsmála­ráðherra hefur Sigríður Andersen beitt sér fyrir hertri stefnu í útlendinga­málum.

Að frumkvæði hennar voru til dæmis sett lög þann 6. apríl síðastliðinn sem sviptu tiltekna hópa hælis­leitenda réttinum til að fá réttar­áhrifum ákvörðunar Útlendinga­stofnunar um brott­vísun frestað vegna kæru til æðra stjórn­valds eða dómstóla. Rauði krossinn á Íslandi og Lögmanna­félagið vöruðu við laga­breytingunum og töldu að með þeim væri réttar­öryggi hælis­leitenda skert og mann­réttindum þeirra ógnað.

Í lok ágúst setti svo Sigríður Andersen reglugerð sem felur í sér að útlendingar eru sviptir réttinum til framfærslu­fjár eftir að hælis­umsóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Þá fólst í reglu­gerðinni að ef hælis­leitandi er frá ríki sem er á lista yfir örugg uppruna­ríki og umsókn er metin „bersýni­lega tilhæfu­laus“ getur Útlendinga­stofnun jafnframt fellt niður alla þjónustu við viðkomandi eftir að framkvæmdarhæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. Rauði krossinn gagnrýndi reglu­gerðina og benti á að vegna hennar gætu hælis­leitendur lent milli steins og sleggju, án atvinnu­réttinda og framfærslu­fjár, jafnvel vikum saman meðan þeir biðu eftir að vera sendir úr landi. Undir lok síðasta þings beittu þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, með Sigríði Andersen í farar­broddi, sér af mikilli hörku gegn réttar­bótum fyrir barna­fjölskyldur sem höfðu sótt um hæli á Íslandi. Aðrir flokkar á Alþingi sameinuðust um laga­breytingarnar, en Sjálfstæðis­flokkurinn greiddi atkvæði á móti þeim.

Sigríður Andersen fer einnig með málefni mann­réttinda í nýrri ríkis­stjórn, en undir þetta falla til dæmis tjáningar­frelsismál og mál er varða friðhelgi einkalífs. Sigríður hefur vakið athygli fyrir sjónarmið sín er snúa að þessum réttindum. Nýlega lýsti hún því yfir í ávarpi á aðalfundi Dómara­félags Íslands að hún teldi að í stjórnar­skrá Íslands væri tjáningar­frelsinu skipað skör lægra en réttinum til einkalífs. Þá furðaði hún sig á að dómstólar gerðu greinarmun á opinberum persónum og óbreyttum borgurum í dóma­framkvæmd sinni.

„Í dóma­framkvæmd undan­farið er nokkuð gert með það hvort að sá sem telur að sér vegið sé svokölluð opinber persóna eða ekki. Hafa slíkar persónur þurft að búa við lakari réttar­vernd en hinar. Þó hefur löggjafinn hvorki skilgreint hverjir það eru sem geta talist opinberar persónur né gert þennan skilsmun í lagatexta,“ sagði Sigríður.

„Ég veit ekki hvenær „opinberri persónu“ skaut fyrst upp í dómum hér á landi en ég er ekki viss um að þessi skilsmunur sé sanngjarn eða í þágu almennings. Þetta er í öllu falli til umhugsunar fyrir löggjafann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár