Segir stöðu Sjóðs 9 og Glitnis hafa verið ótengda

Ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra eru á skjön við þær álykt­anir um Sjóð 9 og Glitni sem dregnar eru í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í gær að Sjóður 9 og staða hans í aðdrag­anda hruns­ins hefði í raun verið ótengd stöðu Glitnis á þeim tíma.

„Þetta er pen­inga­mark­aðs­sjóður, þetta eru víxlar og ýmsar aðrar kröfur á fyr­ir­tæki út um allan bæ og er í raun og veru óskylt því nákvæm­lega hver staða Glitnis var á þessum tíma,“ sagði hann í við­tali við RÚV í gær þegar hann svar­aði fyrir inn­lausn sína úr Sjóði 9 dag­ana fyrir setn­ingu neyð­ar­lag­anna.

Ummæli Bjarna eru á skjön við þær álykt­anir um Sjóð 9 og Glitni sem dregnar eru í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið. Þar er rakið hvernig „slá­andi hátt hlut­fall eigna sjóðs­ins“ var bundið í Glitni banka og félögum tengdum honum. Nið­ur­staðan er sú að staða Sjóðs 9 og staða Glitnis hafi einmitt verið náskyld – svo notað sé orða­lag sam­bæri­legt því sem for­sæt­is­ráð­herra notar – í aðdrag­anda hruns­ins.

„Í maí 2007, um það leyti sem stærð sjóðs­ins náði hámarki, fór fjár­fest­ing sjóðs­ins í verð­bréfum þess­ara félaga í 73% af heild­ar­verð­bréfa­eign sjóðs­ins og eru þá inn­lán í Glitni banka ekki með­talin,“ segir í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Bent er á að í sjóðnum hafi orðið gríð­ar­leg sam­þjöppun eigna í félögum sem voru aug­ljós­lega nátengd hvort sem er rekstr­ar­lega og/eða gegnum eign­ar­hald. „Það mátti því ætla að það hefði mark­tæk áhrif á greiðslu­getu félag­anna ef kæmi til gjald­þrots eins aðila.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna

Greining

Öll hneyksl­is­málin sem Bjarni stóð af sér

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tengd­ist ýmsum hneyksl­is­málum sem komu upp á Íslandi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008. Hann stóð þau öll af sér og var fyrir vikið oft kenndur við efnið teflon vegna þess að hann náði alltaf að hrista af sér erfið mál á meðan aðrir stjórn­mála­menn gátu það ekki.

13 mín. lestur

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár