Formaður VR segist hafa verið niðurlægður þrisvar á sólarhring og sleit því viðræðum

VR er búið að slíta viðræðum um gerð kjara­samnings. Tilboð sem félagið fékk frá Samtökum atvinnu­lífsins í gærkvöldi um 14 mánaða samning var kornið sem fyllti mælin. Yfir­lýsingar seðla­bankastjóra og Bjarna Benedikts­sonar skiptu einnig sköpum.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Launafólk hefur verið niðurlægt þrisvar á rúmum sólar­hring. Fyrst af seðla­bankastjóra, svo af fjármála­ráðherra og loks af Samtökum atvinnu­lífsins.“ Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, en stéttar­félagið, það stærsta á Íslandi, sleit í gærkvöldi viðræðum sínum um gerð kjara­samnings við Samtök atvinnu­lífsins.

Ragnar segir að ákvörðun Seðla­banka Íslands um að hækka stýri­vexti á miðvikudag, og orð Ásgeirs Jónssonar um að ástæður þeirrar hækkunar væri eyðsla heimil­anna, hafi sent kjara­viðræður á mjög viðkvæman stað. Í gærmorgun hafi Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra boðað aðila vinnu­markaðarins á fund til að reyna að draga úr spennunni sem hafði myndast. „Fjármála­ráðherra kemur svo nánast strax í kjölfarið með yfir­lýsingu á Peningamála­fundi Viðskipta­ráðs þar sem hann tekur nánast undir hvert orð seðla­bankastjóra og segir að við þurfum að vakna. Hér sé vanda­málið fyrst og fremst kröfur verkalýðs­hreyfingarinnar. Þegar tilboð Samtaka atvinnu­lífsins um skammtíma­samning bættist við var alveg ljóst að við gætum ekki dvalið við þetta lengur. Ég var með umboð til að slíta viðræðum og nýtt það umboð. Ég fundaði svo með samninga­nefndinni í morgun og þar er algjör einhugur um þessa ákvörðun. Hún er tekin af yfirvegun og upplýstu mati á stöðunni í hagkerfinu.“

Kjarninn hefur heimildir fyrir því að að Samtök atvinnu­lífsins hafi boðið að lágmarki 17 þúsund krónur ofan á launa­taxta og að hámarki 30 þúsund krónur í launa­hækkanir í samningi sem átti að gilda í 14 mánuði, eða út næsta ár. Mat verkalýðs­hreyfingarinnar er að kostnaðar­hækkanir heimila landsins vegna aukinnar greiðslu­byrði lána, hækkana á verði á vöru. þjónustu og gjöldum vegna verðbólgu og hækkana sé langt umfram þær tölur.

Segir að það ríki í raun góðæri

Ragnar Þór segir allar greiningar VR sem unnar hafi verið vegna kjara­samninga­gerðar sýna að afkoma margra fyrir­tækja sé gríðar­lega góð. Það ríki í raun góðæri. Það sé eðlileg krafa að kalla eftir því að launafólk fái hlutdeild í henni en verði ekki gert að sætta sig við minnkandi kaupmátt. Það megi til að mynda benda á að methagnaður var í sjávar­útvegi í fyrra þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­­örðum króna eftir skatta og gjöld. Alls jókst hagn­að­­ur­inn um 124 pró­­sent milli ára. Þá hafi vaxta­tekjur stærstu bankanna þriggja aukist um 16,9 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins í ár þegar þær eru bornar saman við sama tímabil í fyrra. Fjölmörg fyrirtæki hafi auk þess velt kostnaðar­hækkunum út í verðlagið og varið, jafnvel aukið, arðsemi sína með þeim aðgerðum.

Ragnar Þór segir næstu skref vera þau að fylgjast með því sem gerist í kjara­viðræðum Starfs­greina­sambandsins og iðnaðar­manna. „Við förum í það að upplýsa okkar félags­fólk og almenning í landinu um það sem var í boði og þá stöðu sem okkar greiningar sýna að sé uppi í hagkerfinu. Hver afkoma fyrir­tækjanna er í raun og hversu burðug þau eru til að milda það högg sem heimilin eru að verða fyrir. Við munum viðhalda samfloti við Starfs­greina­sambandið og mögulega víkka það út með til dæmis iðnaðar­mönnum og kannski Eflingu um mögulegar aðgerðir.“

Hann reiknar með að ríkis­sátta­semjari boði til fundar í næstu viku og VR muni að sjálfsögðu mæta til þess fundar. „Markmiðið er áfram að reyna að klára kjara­samning. Hvort þessi ákvörðun okkar um að slíta viðræðum breyti afstöðu Samtaka atvinnu­lífsins veit ég þó ekki.“

Tene-tal seðlabankastjóra hleypti öllu upp

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti í tíunda skiptið í röð á miðvikudag, og eru þeir nú sex prósent. Hinar miklu vaxta­hækkanir hafa aukið greiðslu­byrði íbúðalána gríðar­lega. Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að greiðslu­byrði 50 milljón króna óverðtryggðs láns á breyti­legum vöxtum hafi aukist um næstum 1,5 milljónir króna á ári miðað við þau vaxtakjör sem voru í boði áður en vaxta­hækkunar­ferlið hófst í maí í fyrra.

Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri sagði á kynningar­fundi í kjölfar hækkunarinnar að þjóðin væri „bara dálítið að eyða og spenna.“ Vöxtur einka­neyslu væri að koma niður á gengi krónunnar og því þyrfti að hækka vexti áfram. Það væri mikill vöruskipta­halli til staðar. „Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyri.“ Seðla­bankinn gæti ekki verið að eyða gjaldeyris­vara­forðanum í inngrip til að verja krónuna fyrir veikingu vegna þessa. Hann gæti „ekki fjár­magnað Tene-ferðir úr forðanum.“ Fyrir liggur að hin aukna einka­neysla er dregin áfram af uppsöfnuðum sparnaði og auknum ráðstöfunar­tekjum á undan­förnum árum, en ekki aukinni skulda­söfnun. Hærri vextir bíta ekki nýtingu sparnaðar.

Ummæli Ásgeir féllu ekki í góðan jarðveg, hvorki hjá verkalýðs­forystunni né Samtökum atvinnu­lífsins. Rökstuðningurinn fyrir stýri­vaxtar­hækkuninni var auk þess sagður þunnur og Seðla­bankinn lá undir ámæli fyrir að hafa sett kjara­samninga­viðræður í uppnám.

Þess vegna boðaði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra aðila vinnu­markaðarins á fund í gærmorgun. Samkvæmt heimildum Kjarnans var óljóst á fundinum hvað stjórn­völd ætluðu að koma með nýtt að borðinu en minnt var á að starfandi væru hópar sem ætlað er að koma með jákvæðar tillögur í húsnæðis­málum og umbætur á barna­bótakerfinu. Tilgangurinn var að reyna að slökkva þá elda sem seðla­bankastjóri hafði kveikt daginn áður.

Bjarni hellti olíu á eldinn

Skömmu síðar mætti Bjarni Benediktsson á Peningamála­fund Viðskipta­ráðs og hellti þar olíu á ný á þá elda. Samkvæmt endursögn Innherja, undirvefs Vísis sem fjallar um efnahagsmál og viðskipti, sagði Bjarni þar meðal annars. „Við þurfum aðeins að vakna.“ Þótt vaxta­hækkun Seðla­bankans hafi verið köld vatnsgusa fyrir einhverja þá kunni hún að hafa sent nauðsynleg skilaboð til aðila vinnu­markaðarins.

„Vanda­málið er ekki Ásgeir Jónsson,“ sagði Bjarni, heldur skortur á samhljómi milli þeirra aðila sem væru að reyna að gera kjara­samninga. Sumir væru að krefjast mikilla krónutölu­hækkana en aðrir prósentu­hækkana. Kröfu­gerðir tækju aðeins mið af „punkt­stöðunni“ um þessar mundir en verðbólga mælist núna 9,4 prósent. Við sem þjóð værum föst í því að „biðja alltaf um aðeins meira“ en þjóðar­búið stæði undir hverju sinni. Þessar hugmyndir sagði Bjarni að væru óraunhæfar.

Þessar yfir­lýsingar Bjarna fóru verulega illa í forystu­fólk verkalýðs­hreyfingarinnar. Þegar við bættist það tilboð sem Samtök atvinnu­lífsins lögðu fyrir VR í gærkvöldi var ekki lengur við setið, og viðræðum slitið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár