Hagnaður sjávarútvegs jókst um 36 milljarða milli ára en opinber gjöld jukust um 4,9 milljarða

Frá 2009 og út síð­asta ár hefur hagn­aður sjáv­ar­út­veg­ar­ins fyrir greiðslu opin­berra gjalda verið 752 millj­arðar króna. Af þessum hagn­aði hefur tæp­lega 71 pró­sent setið eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent farið í opin­ber gjöld.

Frá árinu 2009 hefur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins hagn­ast um 533 millj­arða króna. Mestur var hagn­að­ur­inn í krónum talið á tíma­bil­inu í fyrra, árið 2021, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­arða króna. Hann jókst um 124 pró­sent á milli ára og var 36 millj­örðum krónum meiri í fyrra en árið 2020.

Á sama tíma­bili, frá 2009 og út síð­asta ár, hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn greitt 219,3 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 85,9 millj­arða króna í veiði­gjöld. Auk þess er um að ræða tekju­skatt og trygg­inga­gjald. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja er reikn­að­ur auk þess sem búið er að taka til­lit til fjár­fest­ingar í geir­anum, sem býr til eign.

Opinberu gjöldin voru 22,3 millj­arðar króna í fyrra, sem var 28 pró­sent meira en árið 2020. Á sama tíma og hagn­að­ur­inn sem sat eftir hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum jókst um 36 millj­arða króna milli ára juk­ust opin­beru gjöldin um 4,9 millj­arða króna.

Hagnaður geirans áður en hann greiddi veiði­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjald í rík­is­sjóð var sam­tals 752,3 millj­arðar króna frá 2009 og út síð­asta ár. Af þessum hagn­aði sat tæp­lega 71 pró­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent fór í opin­ber gjöld.

Þetta má lesa úr gagna­grunni Deloitte um rekstru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem inni­heldur 94 pró­sent af rekstr­ar­upp­lýs­ingum árs­ins 2021. Fjár­hæð­irnar í grunn­inum hafa verið upp­reikn­aðar til að end­ur­spegla 100 pró­sent geirans. Í kynn­ingu Jónasar Gests Jón­as­sonar, end­ur­skoð­anda hjá Deloitte, á nið­ur­stöðum Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunns­ins vegna síð­asta árs kom fram að fram­legð í sjáv­ar­út­vegi sé mikil um þessar mundir í sögu­legu sam­hengi, en EBITDA fram­legðin (fyrir fjár­magns­kostnað, afskriftir og skatta) var 27 pró­sent á síð­asta ári. Til sam­an­burðar var hún 18 pró­sent árið 2017.

Hlutfall hagnaðar sem greitt var út dróst verulega saman

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær voru greiddar 18,5 millj­arðar króna í arð út úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins í fyrra. Það var lægri upp­hæð en árið áður þrátt fyrir að hagn­að­ur­inn hafi verið meiri, en 2020 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin sér út arð upp á 21,5 millj­arð króna. Það var hæsta arð­greiðsla sem atvinnu­greinin hefur nokkru sinni greitt til eig­enda sinna á einu ári. Þá vakti það athygli í fyrra að geir­inn borg­aði eig­endum sínum meira í arð en hann greiddi sam­tals í opin­ber gjöld. Þannig var málum ekki háttað í fyrra, enda þá greiddur út 74 pró­sent af hagn­aði í arð­greiðslur. Það hlut­fall var ekki nema rúm­lega 28 pró­sent í ár.

Bókfært eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins var 353 millj­arðar króna í lok síð­asta árs og jókst um 28 millj­arða króna milli ára. Eigið fé geirans er þó stór­lega van­metið þar sem virði kvóta, sem útgerðir eign­færa, er bók­fært á miklu lægra verði en feng­ist fyrir hann á mark­aði.

Bók­fært fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefur auk­ist um alls 132 millj­arða króna frá árinu 2014.

Frá hruni og fram að þeim tíma batn­aði eig­in­fjár­­­staða sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækj­anna um 432 millj­­arða króna, en hún var nei­­kvæð í lok árs 2008. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 143,2 millj­­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­­ur. Hagur sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 575,2 millj­­arða króna frá hruni.

Samþjöppun aukist hratt

Mikil sam­­­­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­­­­ar­út­­­­­­­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­­­­stak­­­­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­­­­ar­­­­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­­­­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­­­em­ber í fyrra að það hlut­­­­fall væri komið upp í rúm­­­­lega 67 pró­­­­sent. Sam­­­þjöpp­unin jókst svo enn í sumar við kaup Síld­­­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur lengi haft til skoð­unar mögu­leg raun­veru­leg yfir­ráð yfir stærstu blokk­inni í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, þeirri sem hverf­ist utan um Sam­herja. Eft­ir­litið birti frum­mat í febr­úar 2021 þar sem nið­ur­staðan var sú vís­bend­ingar væru um að Sam­herji og tengd félög væru með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni og að sam­starf væri á milli útgerða í blokk­inn­i.

Kjarn­inn greindi frá því um miðjan júlí að engin ákvörðun hefði enn verið tekin um hvort ráð­ist yrði í form­lega rann­sókn á yfir­ráðum Sam­herja og tengdra aðila yfir Síld­ar­vinnsl­unni og sam­starfi þeirra á milli.

Stærstu eig­endur Síld­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­skyld­u­­­bönd­um, meðal ann­­ars syst­k­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­ar­halds­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­ur.

Að mati eft­ir­lits­ins voru veru­­­­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­­­­ar­vinnsl­unni og þrír af fimm stjórn­­­­­­­ar­­­­mönnum í Síld­­­­ar­vinnsl­unni á þeim tíma voru skip­aðir af eða tengdir Sam­herja og Kjálka­­­­nesi. Einn þeirra er Þor­­­­steinn Már Bald­vins­­­­son, for­­­­stjóri Sam­herja, sem er stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Síld­­­­ar­vinnsl­unn­­­­ar.

Björgólfur Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.
Björgólfur Jóhanns­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, var í fyrra­haust með fjórðu mestu afla­hlut­­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­­sögu allra sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­­sent. ­Út­­­­­­­­­gerð­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, hélt svo á 1,1 pró­­­­­­­­­sent kvót­ans.

Gjög­­­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­­­nes, hélt á 2,5 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­­­um.

Þessir aðil­­­­ar: Síld­­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­­­legt að séu tengd­ir, héldu því sam­tals á 22,14 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­­em­ber í fyrra.Í sumar bætt­ist 2,16 pró­­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mög­u­­legra tengdra aðila fór upp í 24,3 pró­­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár