Joe Biden verður næsti forseti Bandaríkjanna

Joe Biden mun fá fleiri atkvæði en Donald Trump þegar allt verður saman talið í Pennsylvaníu-ríki og því verða næsti forseti Banda­ríkjanna. Decision Desk HQ reið á vaðið og lýsti yfir sigri demó­kratans, sem hefur tryggt sér að minnsta kosti 273 kjörmenn.

Joe Biden mun hafa betur í Pennsylvaníu og verður því næsti forseti Bandaríkjanna.
Joe Biden mun hafa betur í Penn­syl­vaníu og verður því næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Joe Biden hefur verið kjörinn 46. forseti Banda­ríkjanna, sagði í yfir­lýsingu frá fyrir­tækinu Decision Desk HQ kl. 13:50 að íslenskum tíma í dag, kl. 8:50 að austur­strandar­tíma í Banda­ríkjunum.

Tölfræði­fyrirtækið, sem þjónustar fjölmarga fjölmiðla um gögn varðandi niður­stöður kosninganna, reið á vaðið og varð fyrst til þess að lýsa því yfir að Joe Biden myndi hafa betur í Pennsylvaníu­ríki.

Hann væri því búinn að tryggja sér að minnsta kosti 273 kjörmenn, en 270 slíka þarf til þess að hafa betur í kosningunum.

Yfir­lýsingin frá Decision Desk kom nánast í sama mund og nýjar tölur frá Pennsylvaníu sýndu fram á að Biden væri kominn með forskot á Trump í ríkinu, þegar enn á eftir að telja tugi þúsunda póst­atkvæða frá svæðum í ríkinu þar sem demó­kratar eru með sterka stöðu. Trump á enga leið til baka.

Þegar þetta er skrifað hafa ekki fleiri tölfræði­deildir vestanhafs lýst yfir sigri Biden í kosningunum og ekki nein af stóru sjónvarps­stöðvunum. Þess ætti þó ekki að vera langt að bíða, enda ljóst í hvað stefnir í Pennsylvaníu.



„Gott hjá þeim. Niður­staðan hefur verið ljós um nokkra hríð. Það er enn nokkur vafi um niður­stöðuna í Georgíu og Arizona, en Biden þarf ekki þessi ríki til þess að vera kjörinn,“ skrifaði Nate Silver, ritstjóri vefsíðunnar FiveThirtyEight, um yfir­lýsingu Decision Desk.

Decision Desk HQ er í hópi þeirra 7 greiningar­aðila sem samfélags­miðillinn Twitter sagði fyrir kosningarnar að væru nægilega áreiðanlegir til þess að „kalla“ niður­stöður kosninganna, ásamt Associated Press, ABC, NBC, CBS, Fox News og CNN.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár