„Stöðvið talninguna“ segir forseti Bandaríkjanna, eins og við mátti búast

Donald Trump virðist hafa tapað forseta­kosningunum og eftir því sem fleiri atkvæði eru talin í lykil­ríkjum skýrist sú mynd. Í dag hefur hann lýst því yfir að stöðva eigi atkvæða­talninguna og „svindlið“ sem hann hefur verið að tala um mánuðum saman.

Stuðningsmenn forsetans fyrir utan talningarstað í Phoenix í Arizona.
Stuðn­ings­menn for­set­ans fyrir utan taln­ing­ar­stað í Phoenix í Arizona. Mynd: EPA

Það er orðið nokkuð ljóst að Donald Trump Bandaríkja­forseti ætlar ekki að játa sig sigraðan fyrr en í fulla hnefana. Eftir því sem liðið hefur á daginn hafa vonir hans um sigur þrengst verulega, að því gefnu að öll atkvæði sem greidd voru og móttekin verði talin með.

Pennsylvanía virðist ætla að falla í skaut Joe Biden og þá skiptir ekki máli hvernig leikar enda í Nevada, Arizona, Norður-Karólínu og Georgíu, því kjör­mennirnir tuttugu í Pennsylvaníu myndu fleyta Biden yfir 270 kjörmenn, óháð niður­stöðunni í hinum ríkjunum sem enn er óvissa um.

Forsetinn og fylgi­tungl hans hafa byrjað herferð um að nú beri að hætta talningu atkvæða, enda atkvæðin sem verið er að ljúka við að telja, í Pennsylvaníu og Georgíu til dæmis, að miklum meirihluta póst­atkvæði frá demó­krötum, sem valda því að það saxast á „forskot“ Trumps.

Af þessum sökum hefur framboð Trumps ákveðið að höfða dómsmál um gildi kjörseðla í nokkrum ríkjum nú þegar, fá talningu hætt eða þá að óska eftir því að atkvæði verði talin aftur í einstaka ríkjum þar sem Biden hefur haft sigur.

Viðbúið að þetta yrðu viðbrögðin

Þetta er afar fyrir­sjáanlegt, enda eru margir mánuðir síðan að Trump byrjaði að halda því fram að Demókrata­flokkurinn myndi reyna að „stela kosningunum“ af sér með póst­atkvæðum, sem hann hefur ítrekað fullyrt án nokkurra stoða í raun­veru­leikanum að leiði til kosninga­svindls.

En Trump er búinn að sá fræjum efans um gangverk lýðræðisins í Banda­ríkjunum í huga margra kjósenda sinna og fréttir hafa nú borist af mótmælum fyrir utan talningar­staði. Í Detroit í Michigan safnaðist hópur fólks saman í gær og kyrjaði það sama og forsetinn sagði á Twitter í dag: „Stöðvið talninguna.“

Reyndar eru mótmælin misjöfn eftir ríkjum. Í Phoenix í Arizona, þar sem póst­atkvæði voru talin fyrst og forsetinn hefur verið að saxa á „forskot“ Bidens, söfnuðust stuðnings­menn Trumps saman og kröfðust þess að hvert einasta atkvæði yrði talið.

Í Arizona hefur sú samsæris­kenning verið á flugi að kjósendur í Maricopa-sýslu, þar sem repúblikanar eru í meirihluta þeirra sem kusu á kjördag, hafi verið látnir kjósa með tússpennum sem talningar­vélarnar lesi ekki. Þetta er ekki rétt.

Formleg niðurstaða gæti verið langt undan

Þrátt fyrir að flest bendi til þess að Joe Biden verði fljótlega kominn upp í 270 kjörmenn, er ljóst að niður­staða talningar í einstaka ríkjum gæti orðið deiluefni í dómsölum vikum og mögulega mánuðum saman. Þessi mál virðast ætla að verða fjölmörg og mismun­andi.

Eitt dæmi: Í Pennsylvaníu-ríki er lögmætt samkvæmt reglum ríkisins að telja öll atkvæði sem eru póstlögð fyrir kjördag eða á kjördag og berast á áfanga­stað innan þriggja daga frá kjördegi. Lögmanna­teymi Trumps er að reyna að koma í veg fyrir að þau atkvæði sem koma í hús með lögmætum hætti verði talin.

Óljóst er hversu mörg þau verða og hvort slíkt sé líklegt til að hafa áhrif á niður­stöðuna í ríkinu, sem Trump verður að vinna, ætli hann að eygja nokkurn möguleika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár