Völdu sér óðal í ætt við Downton Abbey

Parið sem sást í mars bera steinbít frá fjöru og upp í bjarg heldur til í greni í Horn­bjargi. Þar dvelur það ásamt yrðlingum „í flottasta óðalinu á svæðinu sem er næstum eins og Downton Abby,“ segir Ester Rut Unnsteins­dóttir, spendýra­vist­fræðingur.

Grensteggur í Hælavíkurbjargi að merkja stein og sýna fram á eignarhald sitt á þessu svæði (óðali).
Gren­steggur í Hæla­vík­ur­bjargi að merkja stein og sýna fram á eign­ar­hald sitt á þessu svæði (óðali). Mynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

Ester Rut Unnsteins­dóttir, spendýra­vist­fræðingur hjá Náttúru­fræði­stofnun, færir okkur góðar fréttir af refunum í frið­landinu á Horn­ströndum. Í fyrra­sumar var útlitið dökkt. Eitthvað var á seyði meðal refanna – óðul voru færri en venjulega, got sjaldgæfari og yrðlingar fáséðari en áður.

En í vettvangs­ferð vetrarins, þrátt fyrir vonsku­veður, var útlitið bjartara. Kannski var það einmitt vegna veðursins því brimskaflar sem mynduðust í storminum skoluðu reiðarinnar býsn af sjávar­fangi á land svo refirnir urðu saddir og glaðir.

Það var því ekki laust við að Ester, sem leiddi sumar­leiðangurinn á svæðið að venju, væri full eftir­væntingar að sjá hvernig lágfótan hefði náð að fóta sig þetta sumarið.

Rúmlega tveggja vikna leiðangur Esterar og fjögurra annarra, þeirra Ingva Stígs­sonar, Birte Technau, Anni Malinen og Lucía Raba Tortosa hófst þann 23. júní.

Vegna COVID-faraldursins komust ekki aðrir sem gert hafði verið ráð fyrir í ferðina en að jafnaði eru sex aðstoðar­menn í sumar­leiðöngrunum sem sjá um að vakta þrjú greni og skrá atferli refa og ferða­manna. Þessi fjögur eru búsett á Íslandi og gátu því að sögn Esterar tekið að sér þetta mikilvæga verkefni með litlum fyrirvara.

Farið var á þrjátíu þekkt greni og „útibú“ eða kot út frá nokkrum þeirra í Hælavík, Rekavík bak Höfn, Hornvík og Látravík. Einnig fengust ítarlegar upplýsingar um refi i Hlöðuvík. Alls voru skráðar upplýsingar af 37 grenjum af um 30 þekktum óðulum. Af þeim reyndust níu í ábúð og sáust í þeim 40 yrðlingar eða að meðaltali 4,4 á hverju greni.

Tvö greni voru vöktuð í 12 tíma í senn í fimm daga og allt atferli manna og dýra skráð og tímasett. Önnur greni voru heimsótt í nokkur skipti í mislangan tíma.

Ný dýr áberandi

Ester segir að flest grendýrin sem sáust hafi verið „ný“ en að minnsta kosti tvö þeirra voru þekkt frá fyrri árum. Ein þeirra er hvít læða, dóttir læðu sem fylgst var með árin 2014-2018 áður en hún hvarf.

„Þessi hvíta læða hefur fært sig milli dala í Horn­bjargi en heldur sig við sömu kröfur og áður en hún tekur yfir tvö greni sem hún notar bæði og ganga yrðlingar hennar á milli, um það bil 600 metra,“ útskýrir Ester. „Á gamla óðalinu hennar er nú par sem sást til í mars þegar það bar steinbít alla leið frá fjöru og upp á bjarg. Verður að segjast að það þrekvirki sýnir hversu hörð dýrin eru af sér og hversu mikið þau leggja á sig til að koma sér og sínum fyrir á góðum stað. Hvíta læðan sást líka í mars og hefur haldið sig á sömu slóðum en steggurinn hennar virðist nýr og er þá sá þriðji sem hún eignast afkvæmi með frá því hún hóf búskap.“

Fæðu­leifar við greni voru ekki áberandi og segir Ester það benda til þess að yrðlingar séu enn ungir og að fæða sé borin inn. „Reyndist það raunin því flestir yrðlingar voru smáir og þó nokkur munur var á elstu og yngstu yrðlingunum sem sáust. Einnig voru læður gjarnan inni í grenjunum en það gera þær helst þegar þeir eru enn litlir. Sumir yrðlinganna voru þó farnir að þvælast verulega langt frá greninu.“

Ester greinir svo frá því að eitt parið hafi staðið í flutningum, mögulega vegna truflunar og voru yrðlingar þeirra afar smáir. „Einn þeirra var í nær þrjár klukku­stundir einn á þvælingi og skældi mikið en var ekki sinnt af foreldrum, líklega vegna nærveru fólks,“ útskýrir hún. Sá sem var að vakta grenið var staddur í um 100 metra fjarlægð og tók á endanum ákvörðun um að færa yrðlinginn á nýja grenið. „Sá stutti skalf, en ekki er ljóst hvort það var af ótta eða kulda. En hann tók síðan að éta lítinn fisk sem fannst við grenið og lagði sig eftir það. Tveimur dögum síðar sást hann að leik við gotsystkini sín og virtist við hesta­heilsu.“

Ester ítrekar að ekki sé þó mælt með að fólk bjargi yrðlingum sem það finnur á víðavangi heldur ætti það að halda sig fjarri þeim og leyfa foreldrum að ljúka við flutninga og koma afkvæmum sínum í skjól. „Flutningar sem þessir eru oft af völdum truflunar og því skal gefa dýrunum svigrúm til að leita skjóls á nýjum stað ef þau telja sig þurfa þess.“

En að gleði­fréttunum:

Refirnir í Hornvík og nágrenni virðast hafa komið vel undan vetri og er ábúð og tímgun með besta móti, eða 40 prósent, segir í samantekt úr leiðangrinum. Ekki hefur verið eins hátt hlutfall grenja í austan­verðri Hornvík frá árinu 2015. Enn hefur stofninn þó ekki náð sér frá því sem var fyrir hrunið árið 2014.

Eitt af því sem kemur Ester á óvart er hversu fá hvít dýr virðast þrífast á svæðinu og afföll hvítra yrðlinga virðist mun hærra en þeirra mórauðu. Ester segir að þetta þurfi að skoða betur út frá þeim gögnum sem safnað hefur verið á undan­förnum tveimur áratugum. Ljóst sé að miðað við þann fjölda hvítra dýra sem sjást sem yrðlingar ættu að vera fleiri hvít fullorðin dýr en raun ber vitni.

En sumarið er ekki úti. Það er ekki fyrr en lok þess sem í ljós mun koma hvernig yrðlingunum sem Ester og félagar skráðu á dögunum mun reiða af. Hún segir fæðu­skilyrði séu betri núna en á síðasta ári og flest óðulin hafa stækkað svo meiri mögu­leikar eru fyrir foreldrana að afla fæðu en áður þegar þrengra var um dýrin. „Árið 2020 virðist ekki líta út fyrir að verða slæmt fyrir refina á Horn­ströndum,“ segir Ester.

Í fyrra benti Ester á að svo virtist sem ljós­myndarar með stórar aðdráttar­linsur hefðu haft einhver áhrif á refina. Þeir hafi hreinlega lagt á flótta undan þeim. En í upphafi sumars voru mun færri ferðamenn á Horn­ströndum en á undan­förnum árum. Og ferða­mennirnir sem lögðu þangað leið sína voru ekki þangað komnir til að liggja við greni og mynda. „Það gæti alveg skipt máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár