Svaf á fjörutíu sentímetra löngum steinbít

Ester Rut Unn­steins­dóttir spen­dýra­vist­fræð­ingur er komin suður eftir reglu­bundna vett­vangs­ferð að vetri í friðlandið á Horn­ströndum. Hún segir okkur sögur af brim­sköflum sem skol­uðu reið­innar býsn af sjáv­ar­fangi á land svo ref­irnir urðu saddir og sælir.

Í kjöl­far storms og mik­ils brims í Hornvík á Horn­ströndum á dög­unum fyllt­ist fjaran af nýdauðum stein­bít, kross­fiskum og öðru sem lifir á sjáv­ar­botni. Þetta reynd­ist hinn vænsti fengur fyrir refi sem gengu fjör­urnar og tíndu upp ferskan fisk­inn, báru upp á sjáv­ar­kamb og grófu hér og hvar í snjónum.

„Ég hef ekki áður séð við­líka reka af stein­bít eins og gerð­ist í þess­ari heim­sókn,“ segir Ester Rut Unn­steins­dóttir spen­dýra­vist­fræð­ingur í sam­tali við Kjarnann. Hún er nýkomin suður eftir 11 daga ferð á Horn­strandir. Ester fer í slíkar ferðir þrisvar á ári ásamt fleirum á vegum Nátt­úru­fræði­stofn­unar til að kanna við­komu refa í friðland­inu á Horn­ströndum. Í fyrra­sumar var ástandið með slakasta móti. Óðul voru færri en venju­lega, got sjald­gæfari og yrð­lingar fáséð­ari en áður.

En nú gætir auk­innar bjart­sýni hjá Ester og félögum.

„Fyrir refi er þetta krítískur tími fyrir dýr sem hafa lifað af vet­ur­inn og eru nú að und­ir­búa fjölgun,“ segir hún. „Þær læður sem eru sæmi­lega feitar í mars og fá nægi­legt æti fram í maí, ættu að geta eign­ast yrð­linga í vor. Miðað við hvað tímgun gekk illa á síð­asta ári þá er von til þess að í ár verði ástand ref­anna mun betra, jafn­vel eins og best getur orðið.“

Hún nefnir dæmi máli sínu til stuðn­ings: Árið 2014 var slæmt ár hjá ref­unum í Hornvík og fáir yrð­lingar komust á legg. Ári seinna varð mik­ill sjó­fugla­dauði í mars og mikið af sjó­reknum fugli í fjör­unni. „Í kjöl­farið varð vorið 2015 eitt hið besta sem við höfum séð hvað varðar fjölda yrð­linga í vík­inni,“ útskýrir hún. „Þetta er gott dæmi um hversu mik­il­vægt sam­band er milli fæðu­skil­yrða að vetri og tímg­un­ar­ár­ang­urs refa að vori.“

Ester fer í vett­vangs­ferð til Horn­víkur í mars á hverju ári til að athuga með ástand ref­anna. Í friðland­inu njóta þeir verndar og hefur svo verið allt frá árinu 1994. Horn­strandir eru eitt mik­il­væg­asta griðland teg­und­ar­innar á Íslandi.

Í ár var ferðin farin dag­ana 15.-25. mars. Fyrstu tvo sól­ar­hring­ana var vetr­ar­legt um að lit­ast og bál­hvasst og í kjöl­farið fyllt­ist fjaran af nýdauðum fiski og fleiru sem ref­irnir gerðu sér að góðu.

Mjög góðu reyndar.

Ester lýsir því að ein læðan hafi dregið um 40 sentí­metra langan stein­bít upp á bjarg og sást svo til hennar efst í Miðdal þar sem hún svaf á fengnum. Eftir góðan lúr vakn­aði hún, hristi af sér snjó­inn og fékk sér vænan bita af fisk­inum áður en hún hélt áfram lengra upp, nær bjarg­brún­inni.

Mórauð tófa með hálfétinn steinbít í kjaftinum.
Mórauð tófa með hálf­ét­inn stein­bít í kjaft­inum.

Ester segir að snjó­koma hafi verið flesta daga og kaf­djúpt fyrir lág­fótu að vaða lausa­mjöll­ina. Refir eru harð­gerð dýr og virt­ist allt vera með besta móti hjá þeim flestum. Nokkur þeirra voru í til­huga­líf­inu og ef allt gengur vel má að sögn Esterar eiga von á því að það verði flest, ef ekki öll pör með got í vor, ólíkt því sem gerð­ist síð­asta sumar þegar aðeins um 25% óðal­anna í Horn­bjargi voru með yrð­linga.

„Refir sem sáust voru í góðu ástandi, einn var reyndar með lélegan feld en þó enn á lífi og mikið á ferð­inni,“ segir Ester. „Það sem vakti athygli var að mikið virt­ist af nýjum dýrum og vant­aði nokkur af þeim sem við þekkjum frá fyrra ári og þar á undan. End­ur­nýjun er eðli­leg en við sjáum gjarnan sömu dýrin ár eftir ár, í allt að 5-6 ár. Ekki er alveg ljóst hvort þessi nýju dýr séu ung dýr af svæð­inu eða aðkomu­dýr og það kemur í ljós í vor hvort við munum sjá nýja ábú­endur á óðulum í bjarg­inu.“

Mórauð refalæða á leið upp á Hornbjarg með steinbít úr fjörunni.
Mórauð refa­læða á leið upp á Horn­bjarg með stein­bít úr fjör­unni.

Hvað fugla­lífið á svæð­inu varðar þá var ekki að sjá að bjarg­fugl væri kom­inn að björg­unum, fyrir utan fýl. Einn dag­inn birti til, það hlán­aði og sjó­inn kyrrði. Þann dag komu stórir hópar af ritu inn í vík­ina en þær voru farnar aftur dag­inn eftir þegar tók að hvessa og snjóa á ný. Á heim­leið­inni þann 25. mars sáust nokkrar lang­víur á sjónum utan við Hæla­vík­ur­bjarg en oft eru þar hund­ruð, jafn­vel þús­und fuglar á þessum tíma. „Svart­fugl var ekki kom­inn að björg­unum og ég myndi telja að þeir séu óvenju seint á ferð­inni þó svo það þýði ekki endi­lega að þeir séu ekki vænt­an­legir innan tíðar,“ segir Ester.

Að Horni voru nokkrir hrafnar og sáust þeir flestir 14 saman við Skipa­klett, við sömu iðju og ref­irnir, þ.e. að tína í sig nýmetið sem rak á fjörur þeirra. Nokkrir send­lingar voru einnig í fjör­unni og létu brimið lítið trufla sig. Ríflega hund­rað æðar­fuglar sáust á víð og dreif á sjónum, þrír æðar­kóngar þar á meðal, tugir af hávellum, nokkrar teistur og topp­endur. Nokkrir hvít­máfar kropp­uðu í kross­fiska sem rak á land í brim­inu og stöku svart­bakar sáust líka. Við húsin að Horni héldu til ríf­lega 20 snjó­titt­lingar og einn fálki sást á flugi.

Þessi tvö létu vel hvort að öðru. Tilhugalífið er hafið.
Þessi tvö létu vel hvort að öðru. Til­huga­lífið er hafið.

„Nokkrir útselir sáust í sjónum meðan mestu brim­skafl­arnir gengu yfir og síðar voru land­selir að reka upp haus­inn af og til en einn þeirra lagði sig á steini við Hornána,“ skrifar Ester um ferð­ina í færslu á Facebook-síðu Nátt­úru­fræði­stofn­unar.

Henni lýkur hún með þessum orðum: „Má segja að allt gangi með eðli­legum hætti hvað varðar líf­ríkið á svæð­inu, þrátt fyrir heims­far­aldur og sam­komu­bann víð­ast hvar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár